Frjáls verslun - 01.11.2001, Qupperneq 25
ÁGÚST OG LÝÐURIVIENN ÁRSINS 2001
Saga Bakkauör Group
198G Bakkavör stofnað. Fyrstu árin sérhæfði fyrirtækið sig í vinnslu
hrogna.
1993 Bakkavör fékk vottun á ÍST ISO - 9002.
1994 Fyrsta dótturfélagið, Bakkavör UK, stofnað í Bretlandi.
1995 Grandi hf. varð hluthafi í Bakkavör og hlutaféð jókst um 36
milljónir króna.
1996 Starfsemin flutt til Reykjanesbæjar. Fyrirtækið fór í skuldabréfa-
útboð og var það gert í fyrsta skipti é íslandi.
1997 Annað dótturfélag stofnað í Frakklandi, Bakkavör France.
1998 20% í franska fyrirtækinu Comptoir Du Caviar keypt. Samningur
við Kaupþing um endurfjármögnun.
1999 Bakkavör eignaðist 100% hlut í Comptoir Du Caviar. Sænska
fyrirtækið Lysekils Flavsdelikatesser AB keypt.
2000 Nýtt hlutafélag stofnað utan um verksmiðjurnar á íslandi, Bakka-
vör (sland hf., og nafni móðurfélagsins breytt í Bakkavör Group
hf. Nýtt félag, Bakkavör Germany, stofnað og pólskt sölu- og
dreifingarfyrirtæki, Bakkavör Polska, keypt. Bakkavör France
keypti 42% í PIDR í Chile. Bakkavör Group keypti breska mat-
vælafyrirtækið Wine&Dine Plc. Félagið skráð á Verðbréfaþingi í
kjölfar hlutafjárútboðs.
2001 Breska matvælafyrirtækið Katsouris Fresh Foods, KFF, keypt.
Fllutafjárútboð á fslandi, í Danmörku og Svíþjóð heppnaðist afar
vel.
fl
meiri áhrif á þróun Bakkavarar en margir aðrir og óhætt sé að
fullyrða að það hafi haft mikil og jákvæð áhrif að fá þessa menn
til liðs við fyrirtækið. Bakkavör hafi verið lítið þekkt fyrirtæki
fram til þess tima að Grandi, sem hefur haft það orð-
spor að fjárfesta á réttum stöðum, kom inn. Fjárfest-
ing Granda hafi vakið athygli á Bakkavör og verið
ákveðinn gæðastimpill á þeim tíma.
„í fyrsta lagi hafði þetta ákveðin ímyndaráhrif, ef
við getum orðað það sem svo. I öðru lagi fengum við
þarna í fyrsta skipti alvöru peninga lil að standa
straum af frekari uppbyggingu. Þetta ljármagn gerði
okkur kleift að ráðast í tvær verksmiðjubyggingar í
Reykjanesbæ sem gerbreyttu fyrirtækinu á þeim
tíma. Við fórum úr þvi að vera eingöngu hrávöru-
vinnslufyrirtæki yfir í það að vera fyrirtæki sem
framleiðir nejdendavörur. Við fórum út í umbyltingu
sem við vorum auðvitað búnir að undirbúa í mörg ár
þar á undan. Að því leytinu til var þetta tvímælalaust
vendipunktur hjá okkur og kynnin af Brynjólfi hafa
verið afar góð. Hann hefur verið traustur liðsmaður
okkar í gegnum stjórn félagsins,“ segir Agúst
Kaupþing kom inn í fyrirtækið árið 1998 og
var ljármálum félagsins þá komið „í nútímalegt
horf,“ eins og Agúst orðar það. „I hlutafjáraukn-
ingunni keypti Kaupþing töluverðan hlut í félag-
Góður stjórnandi þarf að vera skipu-
lagður og kunna að setja fólkinu sínu
markmið, fá það til að fylgja sér.
Hann þarf að hafa yfirsýn, leyfa
mönnum að gera mistök og læra af
þeim. Stjórnandi þarf að kunna að
velja fólk með sér og vera óhræddur
að hreinsa til ef þarf. Hann þarf að
geta tekið erfiðar ákvarðanir.
inu með það að markmiði að koma okkur á markað tveimur
árum síðar og það stóðst með ágætum. Við fórum á markað
árið 2000 með góðum árangri og höfum upp frá því átt gott
öryggi
Öryggisskáparnir frá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem eru í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
25