Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 27

Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 27
AGÚST OG LÝÐUR MENN ÁRSINS 2001 Skráníng í kauphöllinni í Stokkhólmi Bræðurnir haía lögheimili á Islandi en búa stærstan hluta ársins í Danmörku. I Danmörku fer fram öll bakvinnsla flármálaupplýsinga og stýring fjármagns í íýrirtækinu. Kaupmannahöfn er góður fundarstaður. Samgöngur eru góðar en félagið er að öllu leyti íslenskt, skráð á Islandi. Þeir hafa lýst yfir að þeir hyggist skrá Bakkavör Group í kauphöllinni í Stokkhólmi og það kann að koma einhverjum á óvart því að sumir myndu eflaust stefna frekar að skráningu í kauphöllinni í London eða Danmörku. Það er því kannski eðlilegt að spyija: Af hveiju Stokkhólmur? „12 prósent af veltunni kemur frá Svíþjóð," byrja þeir og halda svo áfram: „Við erum náttúrulega Norðurlandabúar þannig að við höfurn skandinavíska tengingu. í útboðinu okkar vorum við að selja til norrænna flárfesta, þar á meðal sænskra Jjárfesta. Við erum með vörurnar okkar í Svíþjóð, íýrirtækið okkar þar er næststærst í allri samstæðunni og á sænskan mælikvarða er það meðalstórt Jýrirtæki. Svíarnir eru stærstir og bestir á Norður- löndum, þar er virkasti íjármálamarkaðurinn og því stefnum við að skráningu þar.“ - Marga dreymir um að komast inn á Þýskalandsmarkað. Af hverju ekki þangað? „Við erum með lítið söluJyrirtæki þar, sem við opnuðum í Jýrra,“ svarar Agúst „Fyrstu sölurnar sem við höfum verið að ná þar komu um mitt þetta ár. Þýskaland er auðvitað framtíðarmarkað- ur, það er enginn vafi á því, en Jýrsta skrefið er að kynnast mark- aðinum. Við höfum opnað litla starfsstöð sem er augu okkar og eyru á þýska markaðinum. Þannig lærum við á Þjóðveijana, för- um að skilja keppinautana, markaðinn og umhverfið. Þegar við erum komnir með nægilega þekkingu og sjálfstraust í Þýska- landi getum við farið að skoða í kringum okkur og kíkja á ein- hveija spennandi stækkunarmöguleika." Ehki borða fræin! Uppskriftin að árangri er mörgum hugleikin. Lýður segir að lykilatriðið sé að kunna að setja sér skýr markmið og vinna að þeim. Agúst bætir við að ungt fólk, sem er alvara með að fara út í viðskipti og byggja upp Jýrirtæki til framtíðar, megi hafa hugfast að byija ekki á því að njóta ávaxtanna íýrirfram. Fyrst þurfi að láta enda ná saman og hafa tekjur umfram gjöld. Ef eitthvað er eftir í kassanum þegai' búið er að gera upp og standa straum af rekstri Jýrirtækisins sé hægt að borga sjálfúm sér kaup. „Ef menn vilja vera teknir alvarlega og skapa sér ímynd sem alvöru viðskiptamenn þá þurfa þeir að fara svona að þessu,“ segir Agúst. Lýður bætir við: „Það skiptir miklu að njóta ekki ávaxtanna áður en þeir verða til. Ekki borða fræin! Til viðbótar þessu er skýr markmiðasetning nauðsynleg, hafa markmiðin alltaf klár, og þó að mönnum skjöplist á brautinni þá mega þeir ekki missa móð- inn. Menn fara í heildina litið í áttina að markmiði sínu þó að það taki oft lengri tíma, en var áætlað, og leiðin sé grýtt.“ - Hvaða eiginleika teljið þið að góður sljóriiandi þurJi að haía? „Hann þarf að vera skipulagður og kunna að seJja fólkinu sínu marlonið, fá það til að Jýlgja sér en reka það ekki á undan sér. Hann þarf að hafa yfirsýn, leyfa mönnum að gera mistök og læra af þeim. Samstarfsmenn þurfa að vita hvert þeir eru að fara og það má ekki leika neinn vafi á stefnunni þegar undirmenn taka ákvarðanir í daglegum rekstri. Stjórnandi þarf að kunna að velja fólk með sér og vera óhræddur að hreinsa tíl ef þarf. Hann þarf að geta tekið erfiðar ákvarðanir." SO Hún Ijósritar, prentar faxar og eins og ekkert sé fer aldrei Nashuatec D435 er ein afmörgum úr fjölskyldu stafræn- na Ijósritunarvéla sem virkilega njóta þess að takast á við erfið verkefni. Vélin býður upp á öfluga faxeiningu ásamt prenteiningu sem hægt er að tengja beint við netið. Viltu fá nánari upplýsingar um nýjan starfskraft á skrifstofuna sem aldrei tekur sér fri. Hafðu samband! OPTíMA Ármúla 8-108 Reykjavík Sími 588 9000 Fax 568 1595 27

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.