Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 38

Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 38
„ Við fáum alltaf einhverjar nýjar vörur. Þeir senda okkur kannski eitt eintak í hverri stærð og svo filgjumst við með viðtökunum. Efvörunni er vel tekið er framleiðslunni haldið áfram, annars er vörunni hugsanlega breytt í samræmi við hugmyndir viðskiptavina, “ segir Linda. að verðið er jafngott og raun ber vitni. Yfirbyggingin er í lág- marki og allar boðleiðir styttri en í hefðbundnum verslunum. Segja má að búðin sé rekin í versluninni og þannig er það alls staðar. Vörurnar koma í flugi í hverri viku og fara beint upp í Smáralind. Starfsfólkið tekur upp vörurnar, verðmerkir og þjófamerkir og setur beint inn í búð. Það er dýrt og áhættu- samt að hafa mikla birgðastöðu og því eru aðeins framleidd- ar vörur til sex vikna. Verslunarstjórar út um allan heim hringja inn pantanir á sama tíma í hverri viku og því nánast tæmist vöruhúsið reglulega. „Við fáum alltaf einhveijar nýjar vörur. Þeir senda okkur kannski eitt eintak í hverri stærð og svo fylgjumst við með viðtökunum. Ef vörunni er vel tekið er framleiðslunni haldið áfram, annars er vörunni hugsanlega breytt í samræmi við hugmyndir viðskiptavina. Það er vissu- lega dýrari flutningskostnaður hjá þessu fýrirtæki en öðrum sambærilegum en á móti kemur að fjárbinding í birgðum er lítil,“ segir Linda. Samkvæmt viðskiptahugmynd Zöru er ekki gert ráð fýrir hefðbundnum auglýsingum og segir Linda að það hafi reynst vel. „Beinn auglýsingakostnaður er ekki fyrir hendi og það skilar sér beint til nejttandans," segir hún. Markaðssetning Zöru felst í bestu mögulegu staðsetningu, hönnun verslana og mikið er lagt í gluggaútstillingar. Þær eru samræmdar milli landa, alls staðar er sama þema og sjá sérstakir starfs- menn, sem ferðast milli landa, til þess. Verðmerking í 16 gjaldmiðlum Verðmerkingin í Zöru hefur vakið athygli en hverri flík fýlgja tvö spjöld með 16 litlum fánum og verðinu í þessum löndum. Þetta hefur verið mjög vinsælt því að það hefur gert viðskiptavinum hægt um vik að bera saman verð frá sumarleyfinu á Spáni eða Oxford Street í haust. Linda segir að þetta sé gert til einföldunar og af hag- kvæmnisástæðum. - Hvernig er með samkeppnina; fer hún ekki stöðugt harðn- andi? „Það er mikil samkeppni, mörg fýrirtæki eru á þessum mark- aði og það styrkir íslenskan tískumarkað. Með fleiri verslunum og aukinni samkeppni hefur verð á tískufatnaði lækkað veru- lega. Allir vita að við höfum keppst við að fá fólk til að versla meira innanlands en gífurlegir Ijármunir hafa farið í verslunar- ferðir erlendis. Ég held að mynstrið hafi breyst, fólk njóti þess nú að vera erlendis og versli meira hér heima, sérstaklega eftir að verðið varð samkeppnishæfara,“ svarar hún. 33 38

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.