Frjáls verslun - 01.11.2001, Qupperneq 42
Hjörleifur Pálsson haföi starfað sem endurskoðandi í 17 ár, síðustu árin hjá
Deloitte & Touche, en söðlaði um og gerðist fjármálastjóri hjá Össuri á haust-
mánuðum.
Mynd: Geir Ólafsson
ENDURSKOÐENDUR í STJÓRNUNARSTÖRFUM
Hjörleifur Pálsson var einn helsti endurskoðandi
landsins og hafði starfað við endurskoðun í 17 ár
þegar honum bauðst að gerast ijármálastjóri hjá
Össuri. Hann ákvað að skipta um starfsvettvang og tók
til starfa á nýjum vinnustað í september. Hjörleifur sér
um ijármálastjórn Össurarsamstæðunnar, samræm-
ingu og yfirstjórn fjármála móðurfélagsins og dótturfé-
laga en Össuri hefur, eins og kunnugt er, gengið afar vel
og hefur fyrirtækið teygt anga sína á erlenda grundu.
Erlendis er nokkuð algengt að endurskoðendur ráði sig
til fyrirtækja og hér á landi hefur sú þróun farið vaxandi.
Hérlendis er Hjörleifur sá síðasti í röð endurskoðenda
sem hafa verið að ráða sig til fyrirtækja. Hvað ætli hafi
orðið til þess að hann ákvað að söðla um?
„Eg var búinn að vera lengi í endurskoðun og það
blundaði í mér að reyna eitthvað annað. Tækifærið
kom á réttum tíma. Eg var búinn að prófa ansi margt í
endurskoðun og fannst framtíðin liggja ljós fyrir ef ég
héldi áfram á þeirri braut. Hjá Össuri var ég hinsvegar
að renna blint í sjóinn. Eg hafði ákveðna þörf fyrir til-
breytingu og mig langaði til að reyna mig í þessu
starfi," segir Hjörleifur Pálsson.
Teknir tíl ráðgjafar Endurskoðendur eru dýrmætir á
vinnumarkaði og eru ýmsar kenningar á lofti um
ástæður þess að þeir þykja eftirsóknarverðir hjá fyrir-
tækjum. Nám og kröfur, sem gerðar eru til endurskoð-
enda, eru miklar og því eiga þeir sem hljóta löggild-
ingu að vera með góðan bakgrunn í reikningshaldi,
endurskoðun og skattamálum. Endurskoðendur eru
talnaglöggir menn, snöggir að lesa tölur, og hafa
þjálfast í að túlka þær og öðlast skilning á því sem ligg-
ur þar að baki. Þeir eru því fljótari að öðlast skilning á
rekstri fyrirtækja en flestir aðrir. Endurskoðendur öðl-
ast víðtæka og fjölbreytilega reynslu af samstarfi sínu
við fyrirtæki. Starf þeirra er fjölbreytt og þeir geta mót-
að það mikið til sjálfir, hvort sem þeir vilja afmarka sig
við endurskoðun og uppgjörsvinnu eða takast á við
önnur verkefni, t.d. ráðgjöf og ýmis sérverkefni.
„Endurskoðendur eru gjarnan teknir til ráðgjafar
Endurskoðendur
Tveirþekktir endurskoðendur skiptu um starfá árinu.
Arni Tómasson gerðist bankastjóri Búnaðarbanka
Islands og Hjörleifur Pálsson varð fjármálastjóri
Össurar. Báðir voru peir á meðal eigenda
Deloitte&Touche. Frjáls verslun birtir hér stutta úttekt
á endurskoðendum sem hafa ráðið sig til fyrirtækja.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
þegar taka skal stórar ákvarðanir varðandi fjármálalega sýslan í
fyrirtækjum. Flestir af stjórnendum landsins leita mjög mikið til
sinna endurskoðenda þegar taka þarf vandasamar ákvarðanir.
Endurskoðendur hafa mjög góða og yfirgripsmikla þekkingu á
rekstri fyrirtækja því að þeir starfa flestir fyrir mjög mörg fyrir-
tæki,“ segir Árni Tómasson, bankastjóri Búnaðarbanka Islands.
„Endurskoðendur eru ekki beinir þátttakendur í rekstri fyrir-
tækja heldur má segja að þeir séu frekar í því að „horfa yfir öxl-
ina“ á stjórnendum fyrirtækja og fylgjast með þvi að allt sé gert
eftir settum reglum. Þeir starfa ekki undir daglegri pressu á
sama hátt og stjórnendur í atvinnulifinu, til dæmis vegna ákvarð-
anatöku. Um þá gildir það sama og sagt er um ráðgjafa að á ein-
hveiju stigi málsins getur þá farið að klæja í fingurgómana að
42