Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 47
flTVINNUHORFUR í BYGGINGARIÐNAÐI
sama mæli og mætti ef til vill athuga það betur að skipuleggja
með meiri fyrirvara en gert er. Til að mynda viðgerðir og við-
hald ijölbýlishúsa þar sem yfirleitt er farið allt of seint af stað.
Lítill tími fer i að skipuleggja verkið og enn minni í að bíða eftir
heppilegum iðnaðarmönnum. Geti verktakinn sagt fólki að á
ákveðnum tíma muni hann komast í verkið og fólkið sætti sig
við að bíða rólegt, verður mun auðveldara að skipuleggja fram
í tímann en nú er. Riki og borg geta á vissan hátt stuðlað að
jafnvægi með því að hægja á framkvæmdum og bíða með ný-
framkvæmdir þegar mikið annað er að gera á almennum
markaði og eins með því að vera sveigjanleg varðandi ijölgun
eða fækkun verka. Einnig með því að gæta þess að útboðsverk
séu af öllum stærðum og henti þannig bæði stórum og smáum
fyrirtækjum. A sama hátt þurfa verktakar að gæta þess að
rjúka ekki út í ofijárfestingu tækja og búnaðar þó vel gangi og
mörg verk bíði og sitji svo eftir með þau þegar lokið er
verkinu," sagði Eyjólfur að lokum.
Nýlega var gerð könnun meðal fyrirtækja byggingar-
iðnaðarins og þar kom í ljós að þau telja sig þurfa að segja upp
þriðja hveijum starfsmanni á næstu mánuðum. HH
IAV:
Blikur á lofti
Við horfum á samdrátt nú og hann all-
nokkurn og það kæmi mér ekkert á
óvart þó það fækki um 2.000 störf í verk-
taka og byggingariðnaði frá þvi sem mest
var,“ segir Stefán Friðfinnsson, forstjóri IAV.
„Hitt er annað, og því má ekki gleyma, að
þessi samdráttur er að talsverðu leyti eðli-
legur. Nýlega hefur nokkrum stórfram-
kvæmdum lokið án þess að framkvæmdir
sama eðlis muni koma í beinu framhaldi af
þeim. Þar má sérstaklega nefna stækkun
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og verslunar-
miðstöðina í Smáralind en það eru einstök
verkefni upp á marga milljarða króna. Einnig
má nefna byggingu húss Islenskrar
erfðagreiningar, stór mislæg gatnamót,
stækkun álvers á Grundartanga o.fl. I Smára-
lind unnu þegar mest var um og yfir 1.000
manns og munar um minna. Svo má ekki
gleyma því að á hverju hausti fækkar störfum
í byggingariðnaði tímabundið og mörgum er sagt upp. Mest er
það skólafólk og sumarstarfsmenn en einnig aðrir starfsmenn.
Eðli iðnaðarins er að dragast saman á haustin og það bætir við
þann samdrátt sem á sér aðrar en árstíðabundnar orsakir."
Gengisvísitalan sveiflast upp á Við í efnahagslífinu almennt
eru blikur á lofti og þá um leið í byggingariðnaði því að verk-
takaiðnaður er aðeins þjónustuaðili fyrir fólk og fyrirtæki í
landinu en lifir ekki sjálfstæðu lífi. Vaxta- og gengismál hafa því
ekki bara áhrif á rekstur verktakafyrirtækjanna sem slíkra
heldur er það rekstur og afkoma fyrirtækjanna og heimilanna
í landinu sem endanlega ræður mestu um umfang byggingar-
aðilanna. Gengi, vextir og verðbólga eru ráðandi þættir í
afkomu fólks og fyrirtækja og hefur þróun síðustu mánaða
orðið til að draga verulega úr ijárfestingum fyrirtækja.
,Árið sem nú er að líða hefur einkennst af gengis- og vaxta-
„Árið sem nú er að líða hefur einkennst af
gengis- og vaxtaþróun sem hefur gengið
þvert á allar spár,“ segir Gunnar Sverrisson,
fjármálastjóri ÍAV.
þróun sem hefur gengið þvert á allar spár,“ segir Gunnar
Sverrisson, ijármálastjóri IAV, „en um síðustu áramót var
áætlað að gengisvísitala í árslok yrði 120. Um mitt árið var
þeirri spá breytt í 135 en nú sveiflast hún upp undir 150. Fyrir-
tæki hafa mörg hver orðið fyrir tapi vegna gengismunar og
eigið fé þeirra hefur rýrnað til muna sökum þess. Þannig eru
þau verr í stakk búin til að ijárfesta og þurfa tíma til að ná upp
eiginijárhlutfalli, áður en ráðist verður í frekari ijárfestingar."
stór verkefni framundan „Það er hinsvegar ljóst að eftir er að
byggja stórar virkjanir og eins eru mjög miklar vegafram-
kvæmdir framundan," segir Stefán. „Það eru svo stór verkefni
að þau sjá til þess að atvinna verður næg í þessum geira og
þegar til aðeins lengri tíma er litið erum við vissir um að ástand-
ið jafnast. Hvað ÍAV varðar þá erum við þátttakendur á öllum
sviðum verktaka- og byggingariðnaðar og starfsemi okkar
kemur að öllum þáttum verklegra framkvæmda. Við erum
bæði með almenna byggingarvinnu og jarðvinnu auk verktöku
í virkjanaframkvæmdum og byggingartengdri þjónustu.
Við höfum verið og erum að byggja mikið af íbúðarhúsnæði
til sölu á almennum markaði og gerum ráð fyrir að byggja og
selja á þessu ári vel á annað hundrað íbúðir. Við erum að ljúka
við Sóltúns/Mánatúnsreitinn, erum að byggja í Mosfellsbæ og
höfum hafið framkvæmdir við byggingu 60 íbúða íjölbýlishúss
47