Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 50

Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 50
Theodór Sólonsson og Pétur Guðmundsson, eigendur Eyktar hf. ATVINNUHORFUR í BYGGINGARIÐNAÐI „Þeir eru margir sem áhuga hafa á því að komast inn í Borgartún 19, eins og gefur að skilja, enda húsið glæsilegt og vel staðsett.“ á móti MR búðinni en þangað flytur íslandsbanki inn á 3. hæð auk þess að vera þar með skjalageymslu. Framundan hjá Eykt er m.a. uppbygging á Skúlatúnsreit en reiturinn er í deiliskipulagsferli og eftir það er hægt að huga að byggingu húsanna. Um 140 manns vinna hjá Eykt og Theodór er spurður hvort ekki örli á samdrætti. „Það hægir sennilega eitthvað á með vetrinum," svarar hann og lætur þar við sitja. 35 / Isfflh' Verktakar draga inn magann Við höfum fækkað um um það bil 200 manns að undanförnu. í fyrrasumar vorum við með um 100 útlendinga í vinnu og þeir eru flestir farnir heim,“ segir Loftur Arnason, verk- fræðingur hjá Istaki. „ístak er ekki mikið í íbúðabyggingum þó að auðvitað séu þær einnig til staðar hjá okkur. Við erum mikið í stærri verkframkvæmdum svo sem virkjunum, jarð- gangagerð, stórum jarðvinnuverkum, hafnar- gerð auk ýmissa húsbygginga, til dæmis gerð verslunar og skrifstofu húsnæðis.“ Loftur segir ástandið svo sem ekkert verra en verið hefur oft áður. Þenslan hafi verið mikil að undanförnu en hún sé að jafna sig nú. „Orsakir fyrir þessari þenslu eru sennilega þær helstar að menn urðu helst til bjartsýnir þegar stóriðjuframkvæmdir fóru aftur í gang og byggðu kannski hraðar en markaðurinn gat tekið við,“ segir hann. „Nú er t.d. markaður fyrir iðnaðar- og atvinnuhúsnæði mettur þar sem mikið hefur verið byggt af því. Fyrir nokkrum árum var algerlega ómögulegt að selja slíkt húsnæði en skyndilega varð eftir- spurn og þá var farið að byggja í miklum mæli og byggja hratt. Auðvitað hlýtur ástandið á næstunni að ráðast talsvert af því hvort farið verður út í stórverkefni eins og álver og virkj- anir, en á því eru trúlega talsverðar líkur.“ Istak er í samstarfi við danskt verktakafýrir- tæki, E. Phil og Son, sem hefur gert samninga um mörg stór verkefni að undanförnu. Sóst hefur verið eftir starfsmönnum Istaks til þessara verka og kemur það sér vel þegar heldur minna er að gera hjá ístaki. „Iðnaðurinn lifir nú samt áfram og það ágætlega. Verktakar hafa á því lag að draga inn magann þegar verr árar og þeir bara gera það um tíma og svo lagast þetta eins og alltaf.“ 09 Loftur Arnason, verkfrœbingur hjá Istaki. „Nú er t.d. markaður fyrir iðnaðar- og atvinnuhúsnæði mettur þar sem mikið hefur verið byggt af því,“ segir Loftur flrnason, verkfræðingur hjá ístaki. 50

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.