Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 55
Fimm sérfræðingar sná í spilin um áramót
Spumingin tí/ Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofhunar, er þessi:
Nokkurrar svartsýni gætir núna á meðal almennings um efnahags-
ástandió. Hvernig horfir þjóðarbúskapurinn vió á næsta ári, eins
og varðandi hagvöxt, veröbólgu, neyslu, fjárfestingu og viðskipta-
halla? Er botni hagsveiflunnar náð?
U, U eða UV-laga
hagsveiflur
Það fer ekki á milli mála að samdráttur
er hafinn í efnahagslífinu. Ef hér á
landi væri úrskurðað með svipuðum
hætti um upphaf og lok góðæris og í
Bandaríkjunum, er liklegt að niðurstaðan
yrði sú að það hafi náð frá miðju ári 1994 og
fram undir mitt þetta ár, 2001. Einkaneysla
og fjárfesting byijuðu að dragast saman á
öðrum ársijórðungi þess árs og við þvi er
búist að sú þróun haldi áfram fram á nýju
ári. Nokkur hagvöxtur er þó enn, en það
hillir undir samdrátt. Niðursveiflan er því
hafin en benda má á að á eftir niðursveiflu
hefur ávallt komið uppsveifla. Þannig hefur
það alltaf verið.
Síðast tók hagkerfið dýfu á árunum
1992 og 1993. Þá minnkuðu þjóðarútgjöld
bæði árin og fyrra árið minnkaði lands-
framleiðslan einnig. Niðursveiflan var
heldur minni í næstu dýfu þar á undan,
1988 og 1989. Ekki er ólíklegt að fram-
vindan nú verði á sömu lund, þótt hag-
sveiflan skýrist ekki af sjávarútvegi eins og
þá. Margt bendir hinsvegar til að hag-
vöxtur nái sér á strik 2003.
Þótt þetta séu sennilega veigamestu
drættirnir í þeirri mynd sem blasir við í
þjóðarbúskapnum, er margt á huldu um
dýpt og lengd niðursveiflunnar. Til að
gera langa sögu stutta getur verið gagn-
legt að íjalla um þetta efni með bókstöf-
unum V og U. Þannig þýðir V-laga niður-
sveifla snöggt fall í þjóðarútgjöldum og
hagvexti, en á móti hraðan bata. Þetta er
myndin sem dregin var upp hér á undan
og því yrði botn hagsveiflunnar á fyrri
hluta næsta árs, oddurinn á vaffinu. En
hagsveiflan kann einnig að verða U-laga;
botninn breikki. Þetta gæti til að mynda
gerst ef enn á ný reyndist nauðsynlegt að
minnka aflaheimildir, stóriðjufram-
kvæmdir tefðust eða mönnum yrðu mis-
lagðar hendur við hagstjórn.
Hagsveiflan nú er fyrst og fremst heima-
gerð í þeim skilningi að innlend þróun
skýrir hana frekar en brejhingar á ytri
aðstæðum. Þensla sem fór að grafa um sig
á árunum 1998 og 1999, leiddi til þess að
gríðarlegur vöxtur hljóp í þjóðarútgjöldin
og fyrir vikið myndaðist mikill viðskipta-
halli sem náði hámarki árið 2000. Við
fórum, ef svo má segja, fram úr sjálfum
okkur á þessum árum. Þetta gat auðvitað
ekki gengið til lengdar og nú er komið að
skuldadögum - eða með öðrum orðum að
óhjákvæmilegri aðlögun að útgjaldastigi
sem er í betra samræmi við tekjurnar.
Þessi aðlögun er hafin með gengislækkun
krónunnar og minnkandi viðskiptahalla.
Aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin
hafa sett sér metnaðarfullt markmið um
verðbólgu. Þetta markmið gæti náðst ef vel
er staðið að hagstjórn og ytri skilyrði verða í
samræmi við áætlanir. Mikilvægt er að
markmiðið náist á raunhæfum forsendum.
Ef of mikill slaki er gefinn í hagstjórn, efna-
hagslffið kynt of mikið og of fljótt, gætum við
fengið tvöfalda dýfu, nokkurs konar W-laga
hagsveiflu svo gripið sé til bókstafa á ný. Það
þýddi að verðbólga hjaðnaði um stund en
færðist svo aftur í aukana. Þetta yrði óheppi-
legt. Aðlögunin sem nú á sér stað í þjóðarbú-
skapnum þarf að ganga hratt fyrir sig
þannig að sem fyrst verði lagður varanlegur
grunnur að nýju hagvaxtarskeiði. SH
Þórður Friðjónsson,
forstjóri
Þjóðhagsstofnunar:
„Til að gera langa
sögu stutta getur
verið gagnlegt að
fjalla um þetta efni
með bókstöfunum
V, U og W.“
Niðursveiflan var heldur minni í næstu dýfu þar á undan, 1988
og 1989. Ekki er ólíklegt að framvindan nú verði á sömu lund,
þótt hagsveiflan skýrist ekki af sjávarútvegi eins og þá. Margt
bendir hins vegar til að hagvöxtur nái sér á strik 2003.
55