Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 56

Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 56
Fimm sértræðinnar sná í spilin um áramót Spumingin til Þórðar Víkings Friðgeirssonar, Háskólanum í Reykjavík, er þessi: Nýjct hagkerfið svonefnda var á allra vörum á árunum 1999 og 2000 en í upphafi pessa árs töldu flestir að netbólan hefði sprungið og engin innstæða hefði verið fyrir henni. En er nýja hagkerfið bull eða gull? Nýja hagkerfið, bull eða gull? Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkefnastjóri hjá stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík. „Um járnbrautafyrirtæki árið 1830 átti einnig að gilda „ný hagfræði“.“ Hugtakið „nýja hagkerfið" hefur stundum verið notað til að útskýra hvernig sprotafyrirtæki og helsta birtingarform þeirra, Netið, eru frábrugðin hefðbundnum fyrirtækjum. Slíkur dilkadráttur er ijarstæða sem leiðir stjórnendur á glapstigu og spennir upp væntingar sem litil innstæða er fyrir. Ef við hins vegar notum þetta hugtak til að varpa ljósi á nýjungar í þjóðfélagsgerðinni og hvernig við óðfluga færumst frá iðnaðarþjóð- félaginu í átt að þekkingarþjóðfélaginu þá fær hugtakið nýja hagkerfið aðra og raunsærri merkingu, en jafiiframt verður ljóst að hug- takið er misheppnað. Fyrir 100 árum vann 20% vinnuaflsins við þekkingarstörf en 80% unnu við framleiðslustörf í landbúnaði, iðnaði og sjávarútvegi. Nú vinna 20% við framleiðslu- störf en 80% við þekkingarstörf. Þekking, glíman við að varðveita hana, hagnýta hana og hagnast á henni hefur sett gífurlegt mark á samfélagið. Skýrt dæmi er hvernig fyrir- tækin eru að breytast. Framleiðslufyrirtækið, sem á rót sína að rekja til seinni hluta nítjándu aldar, er að hverfa, þekkingarfyrirtækið að taka við. Ávextir framleiðslufyrirtækisins, s.s. verksmiðjan, færibandið, sérhæfingin og ijöldaframleiðslan, stóðu undir framleiðni- aukningu síðustu aldar. Skipulagning fyrir- tækja er gjarnan miðað við framleiðslu áþreif- anlegrar vöru þótt stafræn vara og tækni verði sífellt fyrirferðarmeiri. Þetta er að breyt- ast enda er gamla deildastjórnunin og lóð- rétta skipulagið að ganga sér til húðar. Við er að taka skipulag þar sem áhersla er lögð á verkefni, samvinnu, hópvinnu og miðlun upp- lýsinga. Netið gegnir þarna lykilhlutverki og er ein helsta forsenda þessa nýja fyrirkomu- lags. Eitt öflugasta birtingarform þekkingar er tölvutækni og hugbúnaður. Enginn vafi leikur á að með hagnýtingu þekkingar í mynd upplýsingatækni mun atvinnulífið ná fram mikilli framleiðniaukningu. Þessi framleiðni- aukning í fyrirtækjum verður sökum þátta eins og skarpari sýnar á lykilhæfni og að nota úthýsingu (e. outsourcing) til að sinna ýmsum rekstrarþáttum sem falla utan kjarna- starfsemi þeirra. Þá verður hægt að lækka kostnaðarsama rekstrarþætti eins og tjárbind- ingu í birgðum og ýmsan annan kostnað. Samkeppni mun stóraukast hvarvetna í atvinnulífinu sem lækkar verð til neytenda og hvetur til frekari hagræðingar í rekstri. Möguleikarnir á samstarfi og hagræðingu sýnast ótakmarkaðir sé rétt gengið til verks. Aðalatriðið er þó að markaðurinn virkar hreinlega miklu betur fyrir atbeina Netsins. Þetta kann þó að gerast hægar en ætlað er. Var til innstæða fyrir netbólunni? Nei, ekki frekar en árið 1830 þegar járnbrautin kom fram á Englandi svo dæmi sé tekið. Um járnbrautafyrirtæki átti einnig að gilda „ný hagfræði" og á augabragði urðu til fleiri en 100 fyrirtæki sem nær öll voru horfin tíu árum síðar. Engum dettur þó í hug að gera lítið úr áhrifum járnbrautarinnar sem hlut- fallslega mestu samgöngubótar allra tíma. Er til innstæða fyrir Netinu? Já, en sem stoð- tækni til að hagræða og skapa verðmæti á sama grunni og áður. The Economist gerði nýverið úttekt á hvaða fyrirtæki eru að gera bestu hlutina á Netinu. Voru það vonar- stjörnur eins og Amazon og eBay sem blaðið leit til? Nei, það voru fyrirtæki eins og Siem- ens, sem er meira en hundrað ára og Seven- eleven, sem fáir myndu kenna við nýja hag- kerfið, sem eru að ná hvað bestum árangri. Af íslenskum fyrirtækjum finnst mér t.d. SH, sem er 60 ára, vera að gera fína hluti. Hver er galdurinn? Hætta að hugsa um Netið sem sjálfstætt fyrirbæri og fara þess í stað að hugsa um viðskiptavininn, samkeppnina og að hagnast. Eins og alltaf. Bll 56
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.