Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 72
UM ARAMOT
Guðfinna Bjarnadóttir
rektor Háskólans i Reykjavík
Háskólamenntun í sókn
w
Ahveiju ári setjum við í Háskólanum í Reykjavík (HR)
okkur það markmið að komandi ár verði það besta í sögu
skólans. Ég held að okkur hafi tekist þetta ætlunarverk,
þökk sé góðu starfsfólki, einstökum hópi nemenda og góðum
samstarfsaðilum úr atvinnulífmu. Meðal þess sem efst er í
huga má nefna opnun glæsilegrar nýbyggingar HR og framboð
á nýrri námsleið, „háskólanám með vinnu“, sem hefur hlotið
ffábærar viðtökur. Þá ber að geta MBA-náms og uppbyggingar
rannsókna við skólann. Loks má ekki gleyma stöðugt sterkari
hópi starfsfólks og stúdenta við HR.
Mér finnst ánægjulegt að háskólamenntun á Islandi er í
sókn. Með tilkomu skóla eins og HR íjölgar valkostum ungs
fólks og það er sannfæring mín að aukin samkeppni á þessu
sviði er til góðs fýrir íslenskt námsfólk, atvinnulíf, samfélag og
einnig fýrir alla háskóla í landinu.
Við stefnum að því að árið
2002 verði það besta í sögu
Háskólans í Reykjavík (HR). I
haust hefst kennsla við laga-
deild HR og áfram verður
unnið að frekari uppbygg-
ingu og þróun skólans.
Nýjungar í námsfram-
boði munu taka mið af
því sem best gerist. Ég
er bjartsýnismann-
eskja að eðlisfari og
þrátt fyrir tímabundna
ágjöf í efnahagsmálum
trúi ég því að við
Islendingar höfum
allar forsendur til að
vera í fremstu röð. Ég
hvet alla landsmenn til
að hugleiða þá stað-
reynd að menntun er ein
besta ijárfesting sem um
getur bæði fyrir einstaklinga
og samfélagið í heild.
Eftirminnilegast úr persónu-
lega lífinu er yndislegt sumarfrí
í íslenskri náttúru. Það er
mikilvægt að taka sér góð ffí,
hlaða batteríin, stilla
strengi hjartans og finna
samhljóminn með til-
verunni. BU
t
Arni Þór Vigfusson
sjónvarpsstjóri SkjásEins
lekið til í rekstrinum
Eftir langa baráttu og mikinn mótbyr varð endurfjár-
mögnun fýrirtækisins að veruleika. Þrátt fýrir þennan
erfiða tima hélst andinn í fýrirtækinu óbreyttur, styrktist
ef eitthvað og fyrirtækið varð öflugra á eftir.
Ég tel að maður verði að hafa trú á að efnahagslífið breytist
til hins betra. Undanfarið hafa menn þurft að taka til í rekstr-
inum hjá sér, en það sem eftir stendur eru öflugri fyrirtæki í
hvaða atvinnugrein sem er og það eitt ætti að gegna stóru hlut-
verki í því að hjálpa efhahagslifinu upp úr lægðinni. Eitt af því
jákvæðasta á nýliðnu ári, að minnsta kosti hvað okkur varðar, er
að auglýsingatekjur okkar tóku ekki þá miklu dýfu sem menn
höfðu spáð. Sem þýðir einfaldlega að markaðsstjórar gera sér
grein fyrir gildi auglýsinga og almennrar markaðssetningar,
ekki bara á uppgangstímum, heldur einnig þegar illa árar.
Aukningin hjá okkur varð ekki sú sem við óskuðum en við
fengum heldur ekki þann skell sem reiknað var með á
almennum markaði. Ég er því bjartsýnn fýrir árið 2002.
Hvað persónulega lífið varðar hlýtur að standa upp úr að á
árinu kynntist ég stórkostlegri manneskju sem ég hóf
sambúð með. S3
72