Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 26
ENRON-MÁUÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS
dyrum hjá fyrirtækinu. Honum hafði þá boðist staða fram-
kvæmdastjóra hjá nýja orkufyrirtækinu Enex. Steinunn
hætti í ágúst 2001 þegar hlutabréfaverðið var tekið að lækka
en ekkert umfram það sem eðlilegt mátti teljast á markaðn-
um. Hörður Már og Steinunn eru sammála um að það hafi
verið góð tilfmning að starfa hjá Enron. ,ýUlir, sem unnu hjá
Enron, fengu á tilfinninguna að þeir væru á einhvern hátt sér-
stakir. Enron réð ekkert nema sérstakt starfsfólk enda var
þarna bara fyrsta flokks fólk. Menn fengu mjög góð laun og
aldrei voru nein vandamál við að fara í endurmenntun. Þau
eru ótalin hundruðin eða þúsundirnar sem fóru í MBA-nám
á kostnað Enron. A móti voru gerðar óhemjumiklar kröfur til
starfsmanna. Fólk brann út hjá Enron,“ segir Hörður Már.
- Myndirðu segja að það hafi ríkt almenn starfsánægja meðal
starfsmanna Enron?
,Já. Almennt talað held ég að menn verði dálítið uppveðraðir
ef þeim finnst þeir tilheyra einhverjum „sérstökum" hópi. Það
var komið þannig fram við fólk. Enron borgaði mjög vel og
borgaði ennþá betur i bónus og öðrum hlunnindum. Maður
var aldrei spurður út í kostnað, sem fór í það að halda starfs-
fólkinu ánægðu. Ég fór t.d. oft með starfsfólkið mitt út að
borða fyrir kannski 200 þúsund krónur og það var aldrei neitt
vandamál. Það sama gilti um annan kostnað vegna starfs-
fólksins."
Margir grætl, aðrir tapað Stærsti hlutinn af starfsmönnum
Enron átti hluti í fyrirtækinu. Hörður Már telur að það sýni
hve mikla trú starfsfólkið hafði á fyrirtækinu. „Ég veit um
fólk sem hélt áfram að kaupa hlutabréf þegar þau lækkuðu í
verði vegna þess að það hafði svo mikla trú á fyrirtækinu.
Mistökin, sem margir gerðu, voru að láta sitt eigið séreignar-
sjóðsframlag fara í hlutabréf í Enron. Kona, sem vann fyrir
mig, tapaði sem svarar 35 milljónum króna því að hún lagði
allt sitt framlag í hlutabréf í Enron, lika gamla séreignarsjóði
úr fyrirtækjum, sem hún hafði áður unnið hjá,“ segir Hörður
Már og telur að almennt hafi starfsmenn Enron haft meira af
sínum peningum í Enron „en góðu hófi gegndi". Sjálfur seg-
ist hann ekki hafa farið illa út úr Enron-ævintýrinu en vill ekki
fara nánar út í þá sálma. „Það var mjög gott að vinna hjá En-
ron og það var komið vel fram við okkur. Það hefur gleymst í
umræðunni að það er Ijöldinn allur af fólki, sem hefur grætt á
Enron og endurskoðendumir
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Bjaldþrot bandaríska orkufyrirtækisins Enron hefur komið
illa við bandaríska endurskoðendur og þá sér í lagi endur-
skoðunarstofuna Arthur Andersen, sem endurskoðaði
reikningsskil Enron og veitti fyrirtækinu ráðgjöf. Andersen
komst í sviðsljósið eftir að starfsmaður stofunnar fyrirskipaði að
gögnum stofunnar vegna Enron skyldi kastað í tætarann, ekki
bókhaldsgögnum fyrirtækisins eins og stundum hefur mátt
skilja, - og reyndi svo að afturkalla þá fyrirskipun. Starfs-
maðurinn var rekinn þegar þetta komst upp. Stefán Svavars-
son, löggiltur endurskoðandi og dósent við Háskóla Islands,
hefur fylgst með málinu og telur að það hafi víðtækar afleiðing-
ar, ekki bara fyrir Andersen endurskoðunarstofuna, heldur lika
fyrir stétt endurskoðenda og störf þeirra, mest þó í Bandaríkjun-
um en hugsanlega einnig í Evrópu.
Góðar reglur? Opinber rannsókn á Enron er hafin og á næstu
mánuðum eða misserum verður vonandi komist til botns í því
hvað gerðist. Stefán segir að fyrir liggi að fá skorið úr um það
hvort reglur um afkomu og efnahagsmælingar fyrirtækja hafi
verið brotnar eða hvort farið hafi verið á svig við þær. I fréttum
hefur komið fram að Enron hafi ef til vill skáskotið sér hjá
gjöldum með aðstoð hliðarfyrirtækja, sem hafi verið stofnuð
erlendis til að fela skuldir eða kostnað, sem með raun réttri átti
að færa í reikningum Enron. „Getur verið að reglurnar séu ekki
nógu góðar? Eða er mögulegt að reglurnar hafi verið nógu
góðar en Enron hafi ekki farið eftír þeim og því hafi reikning-
arnir verið rangir?" spyr hann. Annað, sem bendir til að reglurn-
ar hafi verið í lagi en framkvæmdin ekki, er það að aíturvirk leið-
rétting á reikningsskilum fyrirtækisins var gerð á seinni hluta
ársins 2001.1 framhaldi af þvi féll hlutabréfaverðið á markaði.
Ef í ljós kemur að reglurnar hafi verið nógu góðar berast
böndin að fyrirtækinu sjálfu og eftírlitskerfi þess, stjórn og
endurskoðendum. Stefán bendir á að fram hefur komið að
Andersen endurskoðunarstofan hafi haldið fund fyrir rúmu ári
síðan til að taka ákvörðun um hvort halda ætti áfram að veita
Enron endurskoðunarþjónustu eða hætta þvi. Þjónustunni var
haldið áfram en sú staðreynd að fundurinn var haldinn bendir til
að stjórnendur stofunnar hafi vitað að þarna væri eitthvað skrítið
á ferð. En með því að reka starfsmann var stofan að gefa í skyn
að einn maður hefði brugðist, ekki stofan sjálf.
Lögin verði endurskoðuð Umræða um endurskoðun og starfs-
reglur endurskoðenda hefur blossað upp í bandarískum fjöl-
miðlum og má búast við að hún haldi áiram, ekki síst meðal
endurskoðenda. Stefán telur að sérstaklega verði deilt um það
hvort endurskoðendur eigi að taka að sér bæði endurskoðun
fyrirtækja og rekstrarráðgjöf, eins og víða tíðkast, og sömuleiðis
innri endurskoðun fyrirtækja ásamt hinni ytri. Talið er að hlut-
leysi og sjálfstæði endurskoðenda geti veikst, endurskoðendur
getí td. lent í því að endurskoða eitthvað sem þeir hafi gefið ráð
um sjálfir. „Oft hefur verið deilt um þetta en það er ekkert sem
bannar það,“ segir Stefán og telur sennilegt að einnig heflist
umræða um eftirlit bandarískra endurskoðenda með sjálfum
sér. Stefán telur líklegt að rætt verði um það hvort verðbréfaeftír-
litið bandaríska eigi að setja á fót óháða eftírlitsstofnun sem
komi í stað siða- og eftirlitsnefndar bandarískra endurskoðenda.
Hvað áhrif Enron-málsins í Evrópu varðar þá má búast við,
komi í ljós að reglur um reikningsskil í þessu máli hafi verið
ófullnægjandi, að reglum verði breytt í Evrópu og víðar. Það
verður þó þunglamalegra í sniðum í Evrópu enda eru reglur um
reikningsskil bundnar í lögum, gagnstætt því sem á við í Banda-
ríkjunum. Á íslandi eru lög um ársreikninga byggð á tilskip-
unurn frá Evrópusambandinu, sem Stefán telur reyndar brýnt að
verði endurskoðuð hvað svo sem út úr þessu máli kemur. S9
26