Frjáls verslun - 01.01.2002, Síða 38
ÆVINTÝRALEG FARSÆLD í RÚSSLflNDI
Þeir sem þekkja til hans lýsa honum sem frísklegum og klárum manni sem sé
fæddur athafnamaður. Langafi hans var hinn kunni athafnamaður Thor Jensen
og þaðan er Thors nafnið komið.
Magnús átti sömuleiðis 18% hlut. Afgangurinn skiptist á ýmsa
aðra, meðal annars nokkra lykilstarfsmenn í fyrirtækinu.
Rekja má ævintýrið í Rússlandi til þess að þeir feðgar ásamt
Magnúsi og fleiri Islendingum fluttu út gosdrykkjaverksmiðju
Sanitas til Pétursborgar árið 1993 í kjölfari þess að verksmiðjan
hafði verið lögð niður á íslandi, en Björgólfur eldri hafði verið for-
stjóri hennar. Pharmaco átti á þessum tíma verksmiðju Sanitas
sem og Viking-Brugg á Akureyri þar sem Magnús Þorsteinsson
var við stjórnvölinn. Þeir BjörgóifurThor og Magnús héldu utan
með verksmiðjuna ásamt Ijórum öðrum íslendingum og settu
hana upp í Pétursborg í samstarfi við rússneska og breska aðila
og hófu framleiðslu á sömu gosdrykkjum og Sanitas hafði fram-
leitt áður á Islandi. Fljótlega fékk Pepsi Cola þá til að framleiða
pepsí í dósum fyrir Rússlandsmarkað. Til að gera langa sögu
stutta mættu hópnum verulegir erfiðleikar og upp úr samstarfinu
slitnaði. Úr varð að Pepsi Cola yfirtók þá verksmiðju árið 1996.
Ari áður en upp úr samstarfinu slitnaði höfðu þeir byrjað að
prófa sig áfram með framleiðslu á áfengu gosi og kokteilum og
höfðu byggt aðra verksmiðju utan um það viðskiptamódel, eða
um mitt ár 1996. Sú verksmiðja er enn í fullum gangi og það er
hún sem Heineken keypti m.a. 49% hlut í hinn 1. febrúar sl. Það
má því segja að farsældin ytra hafi hafist árið 1996 þegar íslend-
ingarnir voru orðnir á eigin vegum úti með hið nýja fyrirtæki sitt
Bravo International og framleiddu áfengt gos og kokteila. En, og
það er stórt EN; komið var að stóra stökkinu, ákveðið var að
Bravo hæfi framleiðslu á eigin bjór. í fyrstu sá Bravo um áfyllingu
á dósir fyrir stærsta bjórframleiðandann í Rússlandi, Baltica.
Eigin bjórframleiðsla var samt takmarkið - og það mikil fram-
leiðsla. Þess vegna var réðust þeir í byggingu nýrrar og risastór-
ar verksmiðju undir bjórframleiðsluna árið 1998. Það var drifið í
hlutunum og fyrsti Botchkarov bjórinn, sem iramleiddur var í
verksmiðjunni, fór á markað í mars árið 1999. Núna, þremur
árum síðar, er það einmitt þessi bjórverksmiðja sem Heineken
kaupir af Bravo International á um 41 milljarð króna, auk þess
sem Heineken kaupir 49% í hinni verksmiðju Bravo, þeirri sem
framleiðir áfengt gos og kokteila.
Aðdragandinn staðið yfir í næstum ár Aðdragandinn að kaup-
um Heineken á bjórverksmiðjunni hefur staðið yfir í meira en
eitt ár og hefur Björgólfur Thor Björgólfsson og þeir félagar
setið ótal fundi með ýmsum aðilum vegna sölunnar. Enda vildu
fleiri en Heineken kaupa verksmiðjunar. Stórfyrirtæki í
björsölu, eins og Heineken, hefur gjarnan þann háttinn á að
fylgjast með frumkvöðlum í bjórframleiðslu í langan tíma áður
en tekin er ákvörðun um að kaupa. Þá eru ævinlega gerðar
nokkrar áreiðanleikakannanir áður en skrifað er undir samn-
inga af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir. Þetta er langt
ferli. Þess má geta að þeir Björgólfur Thor og Magnús munu
fyrst um sinn sitja áfram í stjórn bjórverksmiðju Bravo sem
Heineken hefur keypt. Björgólfur Thor verður þar stjórnarfor-
maður og Magnús stjórnarmaður. Stóra málið hjá þeim og
Heineken verður þó auðvitað að víkka út og stórauka kraftinn
í þeirri verksmiðju Bravo sem selur áfengt gos og kokteila;
gera þá verksmiðju enn verðmeiri.
Þeir feðgar stærstir í Pharmaco Þeim feðgum Björgólfi Guð-
mundssyni og syni hans Björgólfi Thor hefur ekki einvörðungu
tekist vel upp við uppbyggingu Bravo International í Rússlandi;
þeir hafa látið að sér kveða í Pharmaco fyrirtækinu þar sem þeir
eru núna langstærstu eigendurnir, með um 35% hluL Björgólfur
yngri er þar stjórnarformaður. Markaðsvirði Pharmaco er núna
um 25 milljarðar króna og má ætla að hagnaður fyrirtækisins á
síðasta ári verði á þriðja milljarð króna eftir skatta. Hagnaður eftir
skatta var um 1,2 milljarðar króna fyrstu níu mánuði síðasta árs
og hagnaður fyrir tjármagnskostnað, afskriftir og skatta
(EBITDA) var nálægt 2,4 milljörðum króna og samkvæmt því
ætti hann að fara yfir 3 milljarða á öllu árinu.
Það var um mitt ár 1999 sem Pharmaco stofnaði fyrirtækið
Iconsjóðinn með þeim feðgum, Björgólfi Guðmundssyni og
Björgólfi Thor, og átti Pharmaco þar um helming á móti þeim
feðgum. Iconsjóðurinn keypti í framhaldinu 45% í búlgarska lytja-
fyrirtækinu Balkanpharma ásamt Deutsche Bank, sem einnig
átti 45%, og tveimur Búlgörum sem áttu samtals 10%. Það var í
mikið ráðisL Balkanpharma var með 6 þúsund manns í vinnu.
Síðan hafa dæmið undið upp á sig. í hnotskurn er það þetta;
Deutsche Bank hefur selt sinn hlut í Balkanpharma sem sam-
einað hefur verið Pharmaco á íslandi. Núna er Balkanpharma í
Búlgaríu dótturfélag Pharmaco á íslandi og eru þeir feðgar
langstærstu eigendurnir, með um 35% hlut og er hann í eigu fyrir-
tækis þeirra, Amber International. Björgólfur Thor er stjórnar-
formaður Pharmaco, en Björgólfur eldri situr sömuleiðis í stjórn
fyrirtækisins. Næststærsti hluthafinn í Pharmaco er með um
5,0%. Aðrir hluthafar eiga minna. Þess má geta að Pharmaco átti
lítinn hlut í bjórverksmiðju Bravo, en fékk fyrir hann eigi að síður
440 milljónir króna í sölunni til Heineken og mun söluhagnaður
Pharmaco nema um 250 milljónum króna.
Ljóst er að eftir söluna á bjórverksmiðju Bravo mun Björgólf-
ur Thor snúa sér af fullum krafti að Balkanpharma og lyfjamark-
aðnum - sem og að byggja frekar upp þá verksmiðju í Pétursborg
sem framleiðir áfengt gos og kokteila. Langstærsti markaður
Balkanpharma er einmitt Rússland og þar eru miklir möguleikar
sem hægt er að rækta frekar.
ThOf Jensen langafi hans Björgólfur Thor Björgólfsson er
maður sem fólk í viðskiptalífinu ætti að veita athygli - slík hefur
farsæld hans í viðskiptum verið undanfarin ár. í upphafi var sagt
frá því að langafi hans hefði verið hinn kunni athafnamaður
Thor Jensen (faðir Ólafs Thors, fyrrum forsætisráðherra).
Förum aðeins nánar í ættfræðina. Thor Jensen og kona hans
Margrét Þorbjörg áttu dótturina Margréti Þorbjörgu sem gift
var Hallgrími FR. Hallgrímssyni, fyrrum forstjóra Skeljungs.
Þau áttu tvær dætur, Þóru og Elínu. Þóra er gift Björgólfi Guð-
mundssyni og sonur þeirra er einmitt títtnefndur Björgólfur
Thor.
BjörgólfurThor Björgólfsson heldur heimili í London, Péturs-
borg og á Islandi. Mest dvelur hann í London. Hann verður 35
ára hinn 19. mars næstkomandi og í vor heldur hann upp á
fimmtán ára stúdentsafmæli sitt með skólasystkinum sínum úr
Verslunarskólanum. Ætli bjór berist ekki í tal? Œj
38