Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2002, Qupperneq 66

Frjáls verslun - 01.01.2002, Qupperneq 66
Grímur Sœmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, sem er markaðsfýrirtœki ársins 2001, ásamt Gubfmnu S. Bjarnadóttur, rektor Háskól- ans í Reykjavík, Guðbjörgu Alfreðsdóttur, framkvæmdastjóra Pharmaco, og Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. hlutum á jeppa og fólksbíla og starfar í Kópavogi og Noregi, hefur náð góðum árangri, svo að dæmi séu nefnd. Bogi segir að í markaðsstarfi sé mikilvægast að hafa þol- inmæði og þor. „Maður þarf að hafa þor til að setja sér ögrandi markmið til langs tíma og þolinmæði til að halda það út. Það er svo auðvelt að láta berast með vindi en það er ekki víst að vindurinn blási endilega á hverjum degi í þá átt sem maður hefur ætlað sér að komast í til lengri tíma litið þannig að maður verður að hafa þolinmæði til að komast yfir hverja hindrun án þess að missa sjónar af takmarkinu. Þegar við hófum beinan innflutning á bílum frá Japan árið 1980 settum við okkur það markmið að verða stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Islandi og hafa sem flesta bíla í umferð, ekki að ná mestu sölunni. Við náðum þessu markmiði 1988 en höfðum aldrei verið efstir í sölu eitt einasta ár. Við ákváðum að byggja upp okkar langtímamarkmið með hægum, öruggum vexti,“ segir hann. Að na mestu athyglinni Bogi heldur áfram: „Mikilvægi þess að geta byggt grunn undir fyrirtækið töldum við að væri góð, traust langtímaviðskiptasambönd við sem flesta viðskiptavini. Það myndi hjálpa okkur að byggja upp þjónustuna, bæði vara- hlutaþjónustu, viðgerðaþjónustu og tækniþekkingu innan fyrir- tækisins. Við urðum að gæta þess að grunngildin væru í lagi. Við vissum að varan var í lagi en við urðum að styðja við hana með góðri þjónustu og viðmóti starfsmanna. Við töldum að allt þetta myndi síðan hjálpa okkur að vera samkeppnishæfari á markaði og geta boðið meira fyrir minna. Þá værum við senni- lega komin í þau spor að geta selt mest því að þá værum við trúlega samkeppnishæfust. Allt myndi þetta byggja upp hátt endursöluverð bílanna.“ Hvað markaðsstarfið varðar þá segir Bogi að auglýsinga- stefnan eða kynningarstefnan sé bara einn hluti af markaðs- starfinu. Markaðsstarfið eigi sér dýpri rætur inn í fyrirtækið, hvernig tegund fyrirtækið er, hvernig það kynnir sig á markaði, hvernig starfsmenn það velur sér, hvaða kröfúr það gerir til starfsmanna og hvers konar þjónustu fyrirtækið veitir. Þannig mætti lengi telja. Hvað auglýsingar og kynningarstarfið varðar þá hafi fyrirtækið ávallt reynt að fara ferskar leiðir. ,ýVðal- markmið auglýsinga er að ná athygli. Eg veit ekki um neina auglýsingu sem hefur selt vöru. Það kemur alltaf að því að við- skiptavinur talar við sölumann. Milli þeirra myndast samband og þar verður salan til. Auglýsingunni er ekki ætlað annað en að ná mestu athyglinni. Við höfum ávallt lagt mikið upp úr því að lofa ekki meiru en við getum staðið við. Innan þess ramma höfum við reynt að fara nýjar, ferskar leiðir. Auglýsingin á Flug- leiðaþotunni nýlega er dæmi um slíka nýjung,“ segir hann. Mannleg samskipti Bogi vill líta framhjá tæknibyltingu undanfarinna ára, símtækninni og Netinu, þó að auðvitað sé tæknin mikilvæg. „Þetta eru bara leiðir til að koma skilaboðum á framfæri. Skilaboðin sjálf verða ekkert merkilegri þó að leið- irnar verði nýjar. Þau þurfa að uppfylla sömu skilyrði og áður, þ.e. hafa eitthvert virði. Leiðunum fiölgar en það er tvíeggjað sverð því að um leið og aðferðunum ljölgar við að koma skila- boðum á framfæri eykst áreitið á neytandann. Miðlunum fiölg- ar en áreitið verður miklu meira. Mælingar benda til þess að auglýsingar nái ekki athygli fólks jafn vel og áður,“ segir hann og undirstrikar mikilvægi mannlegra samskipta. „Öll viðskipti eru á endanum viðskipti milli manna. Þessi mannlegu sam- skipti verða sífellt mikilvægari í ólgusjó á auglýsingamarkaði þar sem þekking á vöru eða þjónustu breiðist út gegnum ánægju viðskiptavina. Sú aðferð verður mikilvægari en áður. Þess vegna leggjum við meiri áherslu á gæði samskipta og þjónustu en áður. Og það held ég að sé einkennandi fyrir það sem er að gerast í heiminum almennt.“Qfl 66
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.