Frjáls verslun - 01.01.2002, Qupperneq 76
Valdimar ogAldís Hafsteinsbörn fyrir framan einn afbílum Kjöríss. Systkinin eru alls fjögur og hafa öll starfað ífyrirtækinu en í dag eru bara
Valdimar og Aldís þar í fullu starfi, Valdimar sem framkvœmdastjóri og Aldís sem innkaupastjóri, auk þess sem hún er forseti bœjarstjórnar í
Hveragerði.
Með bragðlaukana
Lítíð hefiir farið fyrir Kjörís ehf. í
Hveragerði þó að framleiðsluvaran
ísinn sé oft á borðum landsmanna
og fáir vita neitt að ráði um fyrirtækið
annað en að ísinn er góður. En snar-
lega skal bætt úr því. Kjörís er rúmlega
30 ára gamalt ijölskyldufyrirtæki í
Hveragerði í eigu eiginkonu og barna
Hafsteins Kristinssonar og bróður
hans. Systkinin Valdimar og Aldís Haf-
steinsbörn stýra daglegum rekstri fyr-
irtækisins, Valdimar sem fram-
kvæmdastjóri og Aldís sem innkaupa-
stjóri. Föðurbróðir þeirra, Guðmundur
Kristinsson, situr í stjórn, tvær systur koma að starfseminni sem
stjórnarmenn og önnur þeirra hefur starfað hjá fyrirtækinu í
sumarfríum. Laufey S. Valdimarsdóttír, ekkja Hafsteins, er stjórn-
arformaður. Valdimar og Aldís hafa gefið sér tíma tíl að setjast
niður og spjalla við útsendara Frjálsrar verslunar.
Fyrirtækið Kjörís var upphaflega stoihað sem Ostagerðin
hf. af frumkvöðlunum Hafsteini Kristinssyni, tveimur
bræðrum hans og nokkrum bændum í Ölfusinu en hún átti
ekki langt líf. Ostagerðin var fyrsta einkarekna ostagerðin á Is-
landi og var hún starfrækt í tvö ár. „Þetta var heilmikil barátta
til að byrja með,“ segir Valdimar. „Fyrirtækið er byggt á grunni
þessarar ostagerðar. Hún hóf göngu sína árið 1966, starfaði í
tvö ár og lagði þá upp laupana. Bræðurnir fóru þá að velta fyrir
sér hvað væri hægt að gera í staðinn
og fundu út ísgerðina ásamt Gylfa
Hinrikssyni vélfræðingi. A þessum
tíma voru miklar niðurgreiðslur í
mjólkuriðnaðinum og kerfið slíkt að
þetta var mjög erfitt," segir hann.
Með aðalsamninginn í dag eru
Jjögur fyrirtæki sem selja ís á Islandi
og eru tvö stærstu fyrirtækin inn-
lendar ísgerðir með langstærstu mark-
aðshlutdeildina. SS og Danól eru ein-
göngu í innflutningi en bæði Kjörís og
Emmessís, sem er í eigu Mjólkursam-
sölunnar, flytja inn og framleiða ís og ístengdar vörur. Emmess-
ís hefur verið stærsta fyrirtækið á markaðnum alveg fram á síð-
ustu misseri, en nú hefur það breyst og er Kjörís stærra með tíl-
lití til veltu og framleiðslu. Veltan nemur rétt ríflega 500 millj-
ónum króna en hagnaður er ekki gefinn upp. „Það er ekki að
ástæðulausu sem þetta er einkahlutafélag," segja systkinin. Þau
áætla að Kjörís hafi um 50 prósenta markaðshlutdeild,
Emmessís 40 prósent og hinir um 10 prósent.
„Þetta veltur svolítið á því hverjir hafa aðalsamninginn við
stærstu söluaðilana. Emmessís var einn að íssölunni í Bónus og
10-11 í tíu ár eða þangað tíl um mitt ár 2000 að við náðum sam-
komulagi við Baug. Frá þeim tíma erum við nánast ein með ís-
sölu í Bónus-búðunum og 10-11-búðunum og svo eru vörur frá
Hlunkar, Mjúkís, Lúxuspinnar,
ístertur, toppís og Súperflaugar.
Framleiðsluvörurnar eru óteljandi
og vörurnar reglulega á matseðli
landsmanna. Litla jjölskyldujyrir-
tœkið Kjörís er í dag stærst á
markaðnum með um 50 prósent.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Olafsson
76