Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2002, Side 96

Frjáls verslun - 01.01.2002, Side 96
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Alhliða banka- og gjaldeyris- hiónusta í Leifsstöð í 15 ár Anna Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaðurgjaldeyrisafgreiðslu Landsbankans. „Fyrir tilkomu evr- unnar var höndlað með 18 myntir ígjaldeyrisþjónustu Landsbankans í Leifsstöð ennú er höndlað með 9 myntir þannig að þeim hejúr fækkað um helming. “ Flugstöð Leifs Eiríkssonar var opnuð í ársbyrjun 1987 og hefur Landsbanki Islands boðið þar upp á alhliða banka- og gjald- eyrisþjónustu allan tímann. Starfsemin hefur tekið ýmsum breytingum gegnum árin. Tölvutæknin hefur aukið afköst og þægindi en hæst ber tilkomu evrunnar í byijun þessa árs, með henni fækkaði mikið þeim gjaldmiðlum sem höndlað er með. Anna Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður gjaldeyris- afgreiðslu Landsbankans, segir tilkomu evrunnar og fækkun mynta hafa breytt miklu og afgreiðsla orðið hraðari og ein- faldari. „Það var einmitt hér í Leifsstöð sem fyrstu evrurnar voru afgreiddar á Islandi en það var kl. 5:30 að morgni nýárs- dags. Fyrir tilkomu evrunnar var höndlað með 18 myntir í gjaldeyrisþjónustu Landsbankans í Leifsstöð en nú er höndlað með 9 myntir þannig að þeim hefur fækkað um helming. Mest eru viðskiptin með dollara, pund, evru og danskar krónur," segir Anna Margrét. Hægt að panta gjaldeyrínn fyrirfram Landsbankinn er með tvær gjaldeyrisafgreiðslur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Önnur afgreiðslan er í nýju Schengenbyggingunni, við brottfararhliðin til Bandaríkjanna og Bretlands, en hin er við fríhöfnina í eldri byggingunni. Afgreiðslurnar eru alltaf opnar við komur og brottfarir flugvéla og má segja að yfir sumarið sé opið nær allan sólarhringinn. Á jarðhæð ílug- stöðvarinnar er einnig staðsett bankaafgreiðsla þar sem hægt er að fá alla almenna bankaþjónustu og þar er jafnframt hraðbanki. Anna Margrét segir að hægt sé að panta gjaldeyri fyrirfram í gegnum síma og hann bíður þá til- búinn þegar ferðamenn leggja upp í reisuna sem óneitanlega spari þeim tíma. „Einnig taka gjaldeyrisafgreiðslurnar við reikn- ingum fólks og sjá um að koma þeim í afgreiðsluna á jarðhæðinni. Reikningarnir eru settir í sérstakt umslag og bankaútibúið á jarð- hæðinni gengur frá þeim fyrir fólk. Fólk þarf því ekki að koma við nema í einu útibúi til að fá gjaldeyri og greiða reikninga þeg- ar það er að fara úr landi. Þetta hentar flestum mjög vel þar sem fólk er oft í tímaþröng síðustu dag- ana fyrir ferðalög og kemst ekki í banka“, segir Anna Margrét. Gjaldeyrishraðbankinn sparar tíma Við gjaldeyrisafgreiðsluna, sem staðsett er hjá fríhöfn- inni, er gjaldeyrishraðbanki þar sem ferðamenn geta keypt gjaldeyri. Hraðbankinn var settur upp fyrir nokkrum árum og í honum er hægt að kaupa dollara, pund, evrur og danskar krónur. „Ferðamenn geta sparað sér tíma með því að nota gjaldeyrishraðbankann," segir Anna Margrét. ,,Á álagstímum myndast oft biðraðir við afgreiðsluna enda fara oft margir ferðamenn í gegnum flugstöðina í einu. Ég vil því hvetja ferða- menn sérstaklega til að nýta sér gjaldeyrishraðbankann því það sparar þeim tíma og léttir álaginu á afgreiðslunni. Hrað- bankinn er sérlega hentugur þeim sem aðeins vilja ná sér í litlar íjárhæðir, skotsilfur fyrir nokkra daga,“ segir Anna Margrét að lokum. Endurqreiðsla virðisaukaskatts og hraðsendingar á peningum Landsbankinn í Leifsstöð sér einnig um endurgreiðslu virðis- aukaskatts til erlendra ferðamanna og Islendinga sem búsettir eru erlendis fyrir bæði endurgreiðslufyrirtækin, Global Refúnd og Iceland Refund. Landsbankinn rekur einnig gjald- eyrisafgreiðslufyrirtæki í Leifstöð undir merkjum Change Group. Change Group sér um hraðsendingar á peningum milli landa fyrir Western Union. SH 96
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.