Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 7
RITST J ÓR ASKIPTI
Sú breyting verður á, að með þessu tölublaði tekur nýr mað-
ur við ritstjórn Morguns, en séra Sveinn Víkingur lætur af
störfum að eigin ósk eftir að hafa verið ritstjóri tímaritsins frá
og með 1964. En þá tók hann við af séra Jóni Auðuns. Það var
vandi að taka við af slíkum afburðamanni, sem séra Jón er
bæði um ritsnilli og áhuga á sálarrannsóknum. En allir trúðu,
að með séra Sveini væxú fundinn sá, er væri þeim vanda vax-
inn. enda hefur sú orðið raunin á.
Gott hefði verið að mega njóta hans lengur, en skiljanleg
sú ósk hans að fá nú að draga saman segl að nokkru, því að
siglingin á tímans hafi er orðin æðilöng og oftast hefur soðið á
keipum á þeirri leið, því að öðrum þræði er séra Sveinn maður
hins eldlega áhuga. Kjalfestu hefur hann þó alltaf átt, þar sem
gætni hans er - og góð kona að auki! Mikið og gott er það efni,
sem séi'a Sveinn hefur saman dregið að Morgni þessi ár. Surnt
hefur hann dregið utanað frá öðrum, annað innanfrá úr eigin
sálarsjóði, og má ekki milli sjá, hvoi't betur reynist sálum
þeirra, sem sannleikans leita. Svo segir mér hugui', að fæstir
hafi enn komið auga á, hversu mikið það vei'k er, sem séra
Sveinn hefur uixnið í þágu þeirrar sannleiksleitar, sem við
nefnum sálarrannsóknir. Því að auk þess, sem hann hefur unn-
ið fyrir félagið, hefur hann þýtt og samið margar bækur, sem
fjalla um sama efni. Þannig Jiefxu'-dx^ppAagt di'jxxgþix skerf til
305048
ÍSUN3S
1