Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 54
48
MORGUNN
Gretar Fells:
ÞAÐ ER SVO MARGT . ..
IV. bindi erindasafns.
Útgefandi: Prentsmiðjan Leiftur, Reykjavík.
Vandamál einstaklingsins í heiminum nú á tímum er hið
sama og þjóðanna: ótti og skortur á öryggi. Ef til vill hefur
maðurinn aldrei talið sér ógnað eins hræðilega; aldrei fundizt
hann vera jafnhjálparvana gagnvart örlögum sínum; jafnein-
mana í alheiminum. Hann leitar undankomu frá kvíða sínum
með margvíslegum hætti: í margs konar íþróttum, vímu áfeng-
is, spennu fjárhættuspila, æsingu kynhvata, hvers konar
skemmtunum, eða með því að fikta við hinar margvíslegu vél-
ar, sem nútíminn leggur honum í hendur. Varla er hægt að
áfellast hann fyrir þetta, því ógnanir atómaldar eru allt að
því óbærilegar.
Samt er hætt við að þessi flótti verði skammvinn lausn. Þetta
veitir einungis stundargleymsku og fróun.
Ef til vill er eina fullnægjandi lausnin á vandamáli mannsins
fólgin í þvi að uppgötva hinar ótæmandi orkulindir innra sjálfs
hans. Ekki er neinn greiðvegur að lindum þessum, en að þeim
má þó komast. Segja þeir sem reynt hafa, að náist það mark,
kunni maðurinn að geta staðizt stormviðri lifsins með innri ró-
semi í þeirri fullvissu, að hvað svo sem framtíðin beri í skauti
sér, þá sé í rauninni ekkert að óttast.
Sumir einstaklingar hafa að hætti stórþjóðanna reynt að
draga úr ótta sínum og kvíða með sífelldri sókn eftir völdum,
eignum og auði. En í þessu er ekki heldur neinn frið að finna.
Áföll lífsins koma manni iðulega á óvart. Það kann að vera
hættulegt slys, alvarleg veikindi, lát ástvinar, eignamissir eða
hrostnar vonir. Á slíkum tímamótum kann margur að óska
þess af alhug, að hann gæti fundið svör við ráðgátum lífsins;
fengið einhverja fullvissu þess að lífið hafi tilgang, en sé ekki
einungis „ævintýri þulið af bjána, fullt af mögli og muldri og
merkir ekkert“, eins og Makbeð lýsti því.
Það er einmitt leitin að svörum við þessum ráðgátum, sem