Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 24
18
MORGUNN
öruggari eðlisávísanir en mannskepnan, sem búið er að trylla
í hávaða og múgsefjun hinnar svo kölluðu menningar. Kann
þá ekki einnig svo að vera, að börn og frumstæðar þjóðir geti
verið i öruggara guðssamfélagi en þeir hálærðu, sem annað
hvort trúa engu, eða búa sér til guðfræðilega trú, samkvæmt
takmörkuðum skilningi sinum? Hver sagði þetta: Nema þér
verðið eins og börnin komizt þér alls ekki inn í guðsríki?
Enn stangast þessi sálfræðilega klausa, sem höfundurinn er
svo sæll yfir að geta prýtt ritgerð sína með, við skýlaus ummæli
meistarans, og þannig getur vizka mannanna orðið heimska
fyrir Guði.
Hvað kennir
guðf ræði deil d-
in um eilífðar-
málin ?
Af ritgerðum guðfræðinema í þessu sama
hefti má fræðast nokkuð um þessi efni, með-
al annars þetta:
Dauðinn er afleiðing erfðasyndarinnar.
Hann er hræðilegur! Jafnvel Frelsarinn
sjálfur, guðs eingetinn sonur, tók að skjálfa og láta hugfallast
þegar dauðastundin nálgaðist. „Þar var örvilnun og hræðsla,
sem Guðs sonur ris varla undir.“ Enda mætir Jesús ekki dauð-
anum sem vini, heldur skæðum óvini. Hann berst við þennan
óvin og leggur hann að velli. Hvergi í Nýja testamentinu er
gert ráð fyrir sambandi milli dauðra og lifandi, möguleika þess
né þörf. (Hér gleymist alveg að geta um sambandið, sem Jesús
hafði við lærisveina sína eftir dauðann). Hugmyndin um lif
sálarinnar eftir dauðann er grísk, það er að segja ,heiðin“, og
því ekkert mark á henni takandi. I3ó er ekki örgrannt um að
örla kunni á svipuðum hugmyndum í Opinberunarbókinni, þar
sem gefið er í skyn, að sálimar leiki á hörpur og syngi frammi
fyrir hásætinu, íklæddar hvítum skikkjum. En sáradauf hlýtur
sú tilvera að vera, þar sem sálimar fá ekki sinn góða og gamla
skrokk fyrr en við endalok tímanna, þegar Kristur kemur aftur
i skýjum himins til að dæma lifendur og dauða. Þá færist
fyrst líf i tuskumar.
Reyndar mun nú þetta eiga að vera eins konar yfirlit um
það, sem Biblian kennir um eilífðarmálin. En það liggur i loft-
inu, að ekki komi til greina að gera sér aðrar hugmyndir um