Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 29
PRÉDIKUN í ANDA SPIRITISMANS
23
Og þá snúum við okkur fyrst til þín, algóði faðir á himnum.
Með bljúgum hug og lotningu komum við fram fyrir þig, til
þess að þakka þér fyrir þær miklu dásemdir, sem þú hefur leyft
okkur að sjá og reyna, og þá guðdómlegu gæzku, sem við höf-
um orðið fyrir af þinni föðurhendi. Þú hefur leyft þjónum þin-
um, sem komnir eru yfir dauðans djúp, að koma til okkar, færa
okkur hverja velgjörðina eftir aðra og færa okkur heim sanninn
um það, að djúpsettustu og háleitustu vonir mannsandans eiga
að rætast. Og undrandi og fagnandi eins og börn stöndum við
og skyggnumst inn í land eilífðarinnar.
Þú veizt það, dyottinn, að þetta eru mestu dagarnir, sem yfir
okkur hafa runnið. Þú veizt það, drottinn, að þetta eru dag-
arnir, sem við höfum mest þráð. Gefðu okkur náð til þess að
þeir verði okkur til sannarlegrar blessunar. Gefðu okkur náð
til þess, að þeir geri okkur að meiri mönnum, færari um að
inna af hendi það lilutverk, sem þú felur okkur. Gefðu okkur
náð til þess, að þeir geri okkur að betri mönnum, flytji okkur
nær þinum kærleika, þínu föðurhjarta.
Blessa þú, drottinn, samband okkar við annan heim. Gefðu
þvi náð til að þroskast eftirleiðis, eins og þú liefur gefið því náð
til að þroskast hingað til. Láttu það verða þjóð okkar til mik-
illar blessunar. Láttu það auka henni huggun og styrk. Láttu
það auka henni frjálslyndi og sannleiksást. Láttu það auka
henni kærleika. Gefðu henni náð til að þekkja sinn vitjunar-
tima. Gefðu henni náð til að sinna kölluninni frá þér, þegar
hún kemur til hennar.
Blessa þú, drottinn, millibilsmanninn okkar, sem reynzt hef-
ur svo dýrmætt verkfæri í liendi þinni og þjóna þinna í öðrum
heimi. Gefðu okkur náð til þess að vera honum góð, reynast
honum ávallt, á liverju sem gengur, eins og góð systkin, eins
og böm þín. Gefðu honum náð til þess að haga lífi sínu eftir
þinum vilja og að öllu leyti samkvæmt því óumræðilega háleita
og mikilfenglega hlutverki, sem þú hefur falið honum. Gefðu
honum þinn styrk, þegar örðugleikarnir sverfa að honum. Og
haltu við hjá honum vissunni um það, að þú sért með honum
og ætlir liann til mikillar blessunar fyrir bræður hans og systur.