Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 14
8
MORGUNN
baki spíritismanum. Við þessu gleyptu heimatrúboðsmenn á
Islandi og liafa lengi síðan þann steininn klappað. Jafnvel
enn í dag er verið að bera heimskulegustu níðrit um spíritism-
ann inn í hús í Reykjavík og reynt að telji fólki trú um þessa
vitleysu.
Svo heldur guðfræðikennarinn Jóhann Hannesson því fram
með hátiðarsvip i samhljóðan við þessa heimatrúboðsspeki og
eftir að hafa sjálfur borið fram aðra eins svikaákæru á hendur
íslenzkum spíritistum, að enginn hafi kastað steini.
Þannig er það, sem hann sjálfur fullnægir hinni vísindalegu
kröfu um að greina rétt frá röngu.
. . Vissir hópar manna eru sífellt að dást að sjálf-
!’ !' UUtt U um sér fyrir það, hvað þeir séu vel trúaðir og
telur prófessorinn sennilega sjálfan sig til
þeirra manna. Þetta dýrlega fólk minnir þó óneitanlega tals-
vert á þann flokk samtimamanna Jesú, sem hann lýsti á þá
lund, að þeim væri ljúft að biðjast fyrir á strætum og gatna-
mótum segjandi: Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir
menn o. s. frv. Þessa menn kallaði Jesús skemenn, sem í fornu
máli þýddi hrœsnari, samanber þýðingu á Lúkas 13, 15 í Leif-
um fornra kristinna fræða, bls. 85, og verða þá margir ske-
mennirnir í kristindómnum sem annars staðar. En bak við
sjálfsánægju þeirra er löngum tómahljóð, enda sagði meistar-
inn blátt áfram um fólk af þessu tagi: „Lg segi yður, ef rétt-
læti yðar tekur ekki langt fram réttlæti fræðimannanna og
Fariseanna, komizt þér alls ekki inn í himnaríki.“
Hvað var það þá og nú, sem svo mjög var áfátt um „trú“
fariseanna? Ekki vantar að lögð sé stund á að fara nákvæm-
lega með bókstaf og helgisiði ritninganna. I>ar svelgja þeir úlf-
aldann en sía mýfluguna. Annað sem tiltakanlega skortir er
hinn andlegi skilningur. „Trú“ þeirra er byggð á fræðikenn-
ingu, sem þeir halda sig fullnuma í. Réttlæti þeirra var sjálfs-
réttlæti, reist á þeirri fjarstæðu, að þeir gerþekktu vegu Guðs.
Fariseategundin hefur aldrei skilið spámenn. „Trú“ þeirra
hefur alltaf endað með því að krossfesta spámennina og hag-
ræða siðan kenningu þeirra til samræmis við eigin þröngsýni