Morgunn - 01.06.1971, Side 13
DJÖFLAFRÆÐI OG SVIKAMYLLUR
7
rennara síns. I sömu andrá telur höfundur það vera ástæðu-
laust af spíritistum að kvarta undan aðkasti, „þótt enginn hafi
svo mikið sem kastað að þeim steini, því síður slegið þá.“ Hins
vegar telur hann, að spíritistum sé „illa við hina vísindalegu
kröfu um að mönnum beri að greina rétt fró röngu að svo miklu
leyti sem mögulegt er. Afstaða þeirra til trúaðra manna í kristn-
inni er líka fjandsamleg, svo sem sjá má af skrifum öndunga
hérlendis.“
Ef það væri ekki kennari i guðfræði við Há-
Aurkastið. . ,, f , . r , *
skola lslands, jaingrandvar að gera mun a
réttu og röngu, sem í þetta sinn hnoðar leirinn, ætti ekki að
vera þörf á að svara svona löguðu aurkasti. En allir, sem nokk-
uð hafa fvlgzt með þessum málum vita þó um ólætin og of-
sóknirnar, sem urðu út af stofnun Tilraunafélagsins á sínum
tíma og síðan endalaust nart heimatrúboðsins hér á landi út af
óguðlegheitum spíritismans.
Svo langt gekk þetta, að sjálfur biskup landsins, sem um
margt var hinn mætasti maður, en bara ókunnur málefninu,
taldi sig verða að þvo hendur sínar af ósómanum í erlendu
blaði, svo að ekki félli grómið af þessu „ógeðslega fyrirbrigði
vorra tíma“, eins og hann komst að orði, á skrúða hans. Lýsti
biskupinn yfir því, að hann hefði alla stund „verið mjög ein-
dreginn mótstöðumaður spíritismans og allrar þeirrar óhœfu,
sem fvlgismenn hans hefðu haft í frammi.“
Þar sem hér var um að ræða gamlan vin og samstarfsmann
séra Haralds, fór það að vonum, að honum félli illa þessi um-
mæli, enda þótt liann teldi þau meira stafa af misskilningi og
vanþekkingu á málefninu en nokkru öðru, og þætti því ástæða
til að skýra málið betur. Þess vegna skrifaði hann bæklinginn:
„IIví slœr þú mig?“ þar sem hann gerir skörulega grein f}TÍr
málstað spiritismans og mundu fáir, sem lesið liafa, lá honum
né telja vörn hans fram komna að ástæðulausu.
Um sama leyti skrifaði danskur dómprófastur, H. Marten-
sen-Larsen, bók i tveim bindum um „blekkingar spíritismans“,
])ar sem hann komst að þeirri niðurstöðu, að það sé enginn
annar en sjálfur erkióvinur sálnanna, Satan, sem standi að