Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 30
24
MORGUNN
Og blessa þú, drottinn, vini okkar, sem komnir eru yfir landa-
mærin, bæði þá, sem við höfum fengið að verða vör við, og eins
hina, sem enn hafa dulizt með öllu bak við tjaldið. Sendu þeim
styrk og mátt. Þeir hafa sagt okkur, að ekkert geti þeir án þín.
Vertu með þeim, drottinn, í allri þeirra fyrirhöfn og öllum
þeirra vanda.
Já, blessa þú okkur alla, beggja megin. Fylltu okkur af þinni
miskunnsemi og þínum kærleika. Og láttu dauðann aldrei
svipta okkur sundur. Láttu verða beggja megin sannarlegt
samfélag heilagra, sem elskar þig og allt vill leggja í sölurnar
fyrir köllunina frá þér og sannleikann.
T Jesú nafni. Amen.
En er hann var kominn af staS, breiddu menn yfirhafriir
sínar á vegmn. En er hann nú nálgáÖist og kom þangaS sem
fariS er ofan af Olíufjallinu, tók allur flokkur lœrisveina hans
aS lofa GuS, fagnandi meS hárri raustu, fyrir öll þau krafta-
verk, er þeir höfSu séS, og mœltu: BlessáSur sé konungurinn,
sem kemur í nafni Drottins. FriSur á himni og dýrS í upphæS-
um. Og nokkurir af Fariseunum í mannfjöldanum sögSu viS
hann: Meistari, hasta þú á lœrisveina þína. En hann svaraSi
og sagSi: Eg segi ySur, áS ef þessir þegSu, mundu steinarnir
hrópa.
Og er hann kom nœr og sái borgina, grét hann yfir henni og
mælti: Ef einnig þú hefSir á þessum degi vitaS, hvaS til friSar
heyrir. En nú er þaS huliS sjónum þínum. Því aS þeir dagar
munu koma yfir þig, aS óvinir þínir munu gera hervirki um
þig og setjast um þig og þröngva þér á alla vegu; og þeir munu
leggja þig aS velli og börn þín, sem í þér eru, og skilja eftir
stein yfir steini í þér, vegna þess aS þú þekkir ekki þinn vitj-
unartíma. (Lúk. 19, 36-44).
Frásagan, sem ég hef lesið, hefur mér lengi fundizt ein af
hinum átakanlegustu frásögum í ævisögu drottins vors og
meistara, þó að hún sé fáorð og einföld.