Morgunn - 01.06.1971, Side 49
MERKUR MIÐILL
43
vita, sem allir menn hafa. Ég get því ekki fallizt á hina venju-
legu skýringu á miðilshæfileikanum sem yfimáttúrlegum
þroska.“
Skáldið og heimspekingurinn Edward Carpenter var alúðar-
vinur frú Garrett á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Um-
gengust þau þá mikið í Lundúnum. Voru honum augljósir
hinir miklu miðilshæfileikar hennar, og tjáði liann henni, að
hún væri ein af þessum örfáu manneskjum, sem náð hefðu
ástandi því, sem hann nefndi alheimsvitund. En það er erf-
itt að vera búin lítt skiljanlegum hæfileikum. Sumir sögðu þá,
að hún væri vist ekki með öllum mjalla. Sömu getsakir hafði
hún einnig orðið að þola frá skyldmennum sínum í bernsku,
sem bættu þvi við, að hún væri syndsamlegt barn. En það var
Carpenter, sem losaði hana að fullu undan áhrifum þessa áburð-
ar, svo hún lét sig það engu skipta þaðan i frá. Hún varð þess
fullviss, eins og hún sjálf orðaði það, að „skynjanir mínar og
sýnir eru ekki sjúk hugarfóstur, heldur jákvæður máttur til
þess að vita og skynja, handan venjulegs mannlegs skilnings.“
Ií- f’l ‘k« t'l Carpenter sá einnig í henni mjög hag-
. kvæma eiginleika. „Þú ert hreinasti snilling-
s ipu agmngar. ^ , sypUjagn^ngU « sagði hann. Og það var
hverju orði sannara, því allt frá barnæsku, þegar hún varð for-
ingi telpnanna í skólanum, sýndi hún ótvíræða skipulagshæfi-
leika. f Lundúnum rak hún með góðum árangri tehús við
Heathstræti hjá Hampsteadheiði, þar sem ýmsir frægir menn
vöndu komur sinar, svo sem hinn frægi rithöfundur D. H.
Lawrence og fornleifafræðingurinn Sir Flinders Petrie. Eftir
fyrri heimsstyrjöldina rak hún einnig gistihús fyrir verka-
menn í Lundúnum við Eustontorg. En það varð eftirlætis fund-
arstaður leiðtoga verkamannaflokksins. f síðari heimsstyrjöld-
inni aðstoðaði hún flóttafólk í Frakklandi, og eftir faff Frakk-
fands stofnaði hún í New York 1941 útgáfufyrirtæki og tíma-
ritið Tomorrow, sem kemur út mánaðarlega og fjallar um
bókmenntir, þjóðfélagsmál og listir. Þrátt fyrir það þótt erfitt
væri að útvega pappír og prentara á þeim tímum, og þá ekki
síður rithöfunda, þá tókst henni samt með fádæma dugnaði að
J