Sjómaðurinn - 01.12.1940, Side 48
40
SJÓMAÐURINN
látinu á plantekru og þar varð haníi að vinna þar
til þrælstíma lians var lokið. Hann vann lil dæiii-
is þannig um tíma á Barbados.
Eflir að Morgan varð frjáls, var hann ekki lengi
að uppgötva að til margs var liægt að nola frels-
ið. Hann réði sig sem liásela á sjóræningjaskip
og því gekk svo vel, að liinir óhreyttu hásetar
fengu allmikið af lierfangi. Morgan kom svo með
þá hugmynd við félaga sína, að þeir ællu sjálfir
að sfofna til sjórána og nokkru síðar byggðu
þeir sér sitl eigið skip. Henry Morgan var þegar
valinn til foringja. Hann var enn að visu korn-
ungur, en liann var þó búinn að sýna margskon-
ar hæfileika til slíkrar forystu.
IJað kom líka fljótt i ljós, að Morgan var dug-
legur foringi. Hann sýndi það einnig, að hann
gat hamið skemmdafýsn sína, þegar skynsemin
bauð svo. Á stuttum tíma vann liann fjögur stór
flutningaskip. En i staðinn fyrir að drepa skips-
hafnirnar og brenna skipin, tók hann þá sjómenn
þeirra í þjónustu sina, sem það vildu og mannaði
skipin, en fór siðan með þau í fylgsni sitl á Jam-
aica.
Þessi aðferð réði líka örlögum hans. Edvard
Mansfield lá með flota sinn annars slaðar við
strendur Jamaica og safnaði liði til árásar á eyj-
una Santa Catalina, en þessi eyja var mjög vel vig-
girt. Mansfield heyrði um liinn unga foringja, og
hann sá slrax, að þar var mannsefni, sem hann
varð að tryggja sér. IJann sendi Morgan boð, og
þegar lionum var boðin staðan, sem næsti maður
Mansfields, var hann ekki lengi að hugsa sig um,
en tók boðinu.
Mansfield lagði nú af stað til liinnar víggirtu
eyjar. Ilann liafði 15 skip og 5 hundruð manns á
að skipa. Honum tókst að setja lið sitl á land og
vinna öll virkin á eyjunni. Eftir harðar orustur
vann hann og alla eyjuna og missti meirihluti
Spánverja, sem þar voru til varnar, lífið, i þessum,
orustum. Þannig börðust sjóræningjarnir, eins og
venjuleg stxúð eru háð, en aðeins þegar þeir töldu
sig nógu öfluga til þess. Ilerfangið var mikið.
Mansfield lét eyðileggja öll vigin nema eitt. I
þetta vígi setti hann 100 manns undir forystu vin-
ar sins, Le Sieur Simon. Ætlun hans var að gera
Santa Gatalina að bækistöð sinni, því að hann
var farinn að óttast um öryggi sitt á Jamaica.
Með það, sem, eftir var af liði sínu, sighli hann
nú áleiðis til Costa Rica til að ræna þar, en fyr-
irætlun hans komst upp. Eyjarskeggjar voru þess
albúnir að taka vel á móti hinum óvelkomna
gesti og gerðu það eftinninnilega. Mansfield lagði
Hinn illræmdi franski sjóræningi Francois Lolonois.
Enski sjóræninginn Blackbeard (Svartskeggur).