Sjómaðurinn - 01.12.1940, Síða 62
54
SJÓM AÐURINN
Þú kætist barn, er koma til þín jól
og kertaljósin lýsa þér sem sól,
með fyrirheit um ljós og lengri dag,
við ljóssins skin, þú gleymir stundar hag.
Og enginn spyr um undirbúning þinn
og enginn veit um gömlu fötin mín,
og sjálfur veistu vart í þetta sinn,
að veröldin er sköpuð vegna þín.
En enginn lítur inn í hreysið þitt
að undrast fögru kertaljósin þín,
og enginn skilur bros þitt, barnið mitt,
né birtu þá, sem þér í augum skín.
En Ijósið, sem að lýsir þér í kveld
á langa sögu um þyrnum stráðan veg.
Það kveikti fyrir mörgum öldum eld
og eldinn brenna sjáum þú og eg.
Þú barn mitt skynjar þúsundanna þögn,
sem þráðu ljós en hlutu stríð og eld
og hlekkjabönd, þeir hyggja að helgisögn
og hugsa um Ijósið eins og þú í kveld.
HÁKON FRÁ BORG.
Sjötíu ára sómamaður.
• Skólastjórinn, en svo var'Páll Halldórsson altaf
nefndur af okkur strákunum sem sóttu Stýri-
mannaskólann bæði meðan við vorum þar og eins
eftir að við fórum þaðan, varð sjötugur liinn 14.
Nóv. síðastliðinn.
Innilegustu hamingjuóskir fylgja liinum aldna
lieiðursmanni.
Vísindamaður látinn.
Dr. Bjarni Sæmundsson, fiskifræðingur, lést liér
í bæ þann (i. nóv. s. 1. Hann varð 73 ára að aldri.
Með Dr. Bjarna er í valinn fallinn sæmdarmað-
ur, sem varði æfi sinni i rannsóknir og stavfsemi
sem þegar liafa orðið sjávarútvegi okkar og ís-
lenzkri sjómannastétt til mikils gagns, en á vafa-
laust eftir að verða það enn hetur.
Ofan á grundvöll rannsókna hans og athugana
mun i framtiðinni verða hyggt, en nokkur vandi
fylgir þar, því Dr. Bjarni var liinn Varfærnasti í
öllu er hann tók sár fvrir hendur.
Heiður sé minningu hans.
*
I heildsölu
Ólafur R. Björnsson & Co.
Sími Í7Í3.