Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 31
L I N D I N
29
altari. Veggbrún þessi er hvítmáluð með gulum
bryddingum. Hvitar súlur, gulbryddar, ganga frá
bogaendum niður að gólfi. Aðallitur innveggja er
Ijósgulbleikur, en grindur allar dökkbrúnar.
Að utan er kirkjan hvítmáluð með rauðu þaki, en
gluggagrindum og hurðum grænum.
Kirkjan er öll raflýst. Veggjaljós eru 10, en tvær
stórar, margarma ljósakrónur hanga frá hvelf-
ingu. 1 okt. sl. var settur olíuofn í kirkjuna í stað
kolaofns, sem þar var. Umhverfis kirkjuna á þrjá
vegu, hliðar og austurgafl, er grænmáluð trégirðing-,
en milli hennar og kirkjunnar er snotur reitur með
trj áplöntum. Er girðingin og fegrun reitsins verk
kvenfélagsins „Framsókn“, sem hlúð hefir á marg-
an hátt að fegrun kirkjunnar.
Auk áðurgreindra muna kirkj unnar má enn nefna:
1. Mynd af séra Jóni sál. Árnasyni, er var fyrstur
prestur við Bíldudalskirkju og þjónaði henni óslitið
vun 22 ára skeið. En alls þjónaði hann prestakallinu
37 ár. Myndin er gjöf frá Árna, syni séra Jóns, en
hann býr nú í Reykjavík.
2. Mynd af séra Jóni sál. Jakobssyni, sem þjónað
hafði kirkjunni um 10 ára skeið. Myndin er gefin af
barnastúkunni „Vorboði“ nr. 108.
3. Altarisdúkur, gerður af frú Ingveldi Sigurðar-
dóttur og gefinn af henni og Jóni J. Maron, verzlun-
armanni.
Á s. 1. ári eignaðist kirkjan sálmanúmerastafi úr
kopar og spjöld til að hengja stafina á.
Messuskrúði og altarisklæði kirkjunnar eru vönd-
uð og nýleg.
Hér að framan hefir nú verið leitast við að lýsa
kirkjunni á Bíldudal, eins og hún nú er með áorðn-