Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 12
10
LINDIN
fyrir milligöngu Móses og vinnubrögð sín og upp-
eldisaðferð á börnum Israels (orð Páls). Þannig
opinberaði hann sjálfan sig sem hinn lifandi Guð,
og þessi opinberun, algerlega söguleg frá fyrstu
byrjun, náði hámarki sínu og vaxtarbroddi í hold-
tekju Guðs sonar, á heilögum jólum. Þess vegna
höldum vér jól. I fyllingu tímans opinberaðist hinn
eilífi sonur Guðs á þessari jörð og fullkomnaði,
hlýðinn og þolinmóður, eins og lamb. til slátrunar
leitt, hið undursamlega endurlausnarverk sitt í lög-
réttu veraldarsögunnar. Fagnaðarerindi guðspjall-
anna er ekki innantómt orð, ekki hvellandi málmur
eða gjallandi bjalla, heldur liefir andinn og sann-
leikurinn í guðstilbeiðslu kristinna manna fyrir á-
hrif smásveins, sem gætti þeirra og leiddi þá, myndað
og mótað þessa trú í unað, snilld og blessun fullkom-
inna og dásamlegra — áður óþekktra — menning-
arframkvæmda. Jólaharnið, Jesús Kristur, hefir sýnt
veröldinni dásamlega lduti, dásamlegri og blessunar-
ríkari fyrir allan mannheim, en hin háfleygustu
skáld og hina skeleggustu hugsuði gat nokkru
sinni dreymt um. Kirkja Jesú Krists er fyllingin á
fyrirheitum og fögnuði mannlegs lífs. Þannig hugsar
postulinn og sér þetta. „Indælan blíðan, blessaðan
fríðan bústaðinn þinn“. — „Eins og vera i kirkju“,
segja blaðamenn — sem kunna þó að vera hóf-
semdarmenn á kirkjugöngu, þegar þeir njóta liins
mesta unaðar og hrifningar lífsins. Hin guðlega op-
inberun, sem oss er þannig gefin, er gróðursett eins
og greinin á trénu í líkama og líf kirkjunnar, sem
er líkami Krists, og heldur áfram að lifa þar og
starfa og fullkomna endurlausnarverk Guðs sonar
og sáluhjálp mannanna.