Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 103
L I N D I N
101
inn og flutti þar erindi um kirkjukóra og söngmál
á Vestfjörðum. Var erindi þessu mjög vel tekið af
fundarmönnum.
Skeyti barst fundinum frá fonnanni Prestafélags
Islands, próf. Ásmundi Guðmundssyni.
Sunnudaginn, 22. sept., var messað samtímis á Isa-
firði og í Hnífsdal. Á Isafirði flutti séra, Einar Stur-
laugsson prédikun, en séra Þorsteinn Björnsson,
Þingeyri, þjónaði fyrir altari. I Hnífsdal messaði séra
Jón Kr. Isfeld.
I stjórn félagsins voru kosnir:
Séra Eiríkur J. Eiríksson, Núpi, formaður.
Séra Einar Sturlaugsson, Patreksfirði, gjaldkeri.
Séra Jón Kr. Isfeld, Bíldudal, ritari.
Séra Sigurður Kristj ánsson, Isafirði, og séra Óli
Ketilsson, Hvítanesi, voru kosnir i varastjórn.
Endurskoðendur voru kosnir:
Séra Jónmundur Halldórsson, Stað, Grunnavík, og
séra Páll Sigurðsson, Bolungarvik.
Fundinum lauk með því, að formaður, séra Eiríkur
J. Eiríksson, las ritningarorð og flutti bæn. Á eftir
var sunginn sálmurinn nr. 301.