Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 73
LIND IN
71
um margra þann grundvöll, sem traustari er í bar-
áttu lífsins en þekkingin tóm í orkulindum og bag-
nýtingu þeirra. Fyrir þessu eru líka augu manna að
opnast srnátt og smátt nú á þessum átakatímum. Am-
eríski sálarfræðingurinn Henry C. Link segir í bók
sinni, „Afturhvarf til trúarinnar“ eitthvað á þá leið
um heimsstyrj öldina miklu, að þegar við trúum því,
að við séum að berjast fyrir mannlegu frelsi undir
stjórn Guðs, en ekki undir stjórn einræðisherra, og
fyrir varðveizlu eilífra boðorða lians í stað mann-
legra lagasetninga, þá bætist við hinar efnislegu auð-
lindir sá siðferðilegi auður, sem ekki einungis leiði
til stundlegs hernaðarsigurs, heldur einnig til varan-
legri, andlegs sigurs. Þessa skoðun sína. telur hann
afleiðingu af rannsóknum á tugþúsundum manna,
er leitað hafa til hans til þess að fá ráð við ýmsum
annmörkum í fari sínu.
En þetta eru engin ný vísindi, heldur aðeins sá sami
sannleikur og mannkyninu var fluttur í líkingunni
um hyggna manninn, sem reisti hús sitt á bjargi og
hinn heimska mann, sem grundvallaði sitt hús á
sandi. Þetta er sá sannleikur, sem lærdóms- og efn-
isdýrkun tuttugustu aldarinnar hefur fellt skugga á
um skeið, en nú er að hljóta meiri og meiri viður-
kenningu, þegar tilraunirnar til þess að tryggja
mannkyninu frið og hamingju á grundvelli hins ytra.
umhverfis hafa mistekizt. Þá hvarflar leit hins leit-
anda aftur inn á við að gildi og markmiðum manns-
ins sjálfs. Það eru sannleiksorð, sem aldrei verður
gengið fram hjá, að okkur ber fyrst að leita rikis
Guðs og réttlætis til þess að allt hitt muni veitast
okkur. „En Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því
beri, og ekki munu menn geta sagt: sjá, það er hér,