Dropar - 01.01.1927, Side 15

Dropar - 01.01.1927, Side 15
vera endurfædd iil nýs lífs. Nú átti jeg í fyrsta sinn að kalla á pabba og mömmu, nú átti jeg föður og móður. Stjúpi minn, sem var mesta prúðmenni, gekk okkur systkinunum sannarlega i föðurstað. Jeg var fyrst svo feimin, að jeg ætlaði ekki að þora að kalla á pabba og mömmu. Jeg var alt í einu orð- in svo rík, að jeg átti bæði föður og móður og fjölda systkina; þar var meira en jeg hafði nokkurn tíma þorað að láta mig dreyma um. En ástúðin og kær- leikurinn, sem að mjer streymdu, vöndu fljótt af mjer feimnina, svo að innan skamms var jeg búin að átti mig og farin að njóta lífsinsv eins og fugl, sem tekinn hefir verið undan væng móður sinnar og lok- aður inni i búri, áður en hann þekti sól og sumar, en svo alt í einu slept út i birtu sólarinnar og má fljúga frjáls grein af grein. Sumarið leið við mikla vinnu og mikla gleði; vet- urinn kom með sin störf og sina gleði, sem hvort- tveggja var margbreytt. Það var siður hjá foreldrum mínum að láta lesa húslestra annaðhvert ár í Vída- línspostillu, en hitt i Pjeturs Iiúslestrabók. Þegar Vídalin var lesinn, kom afi ávalt inn i okkar bað- stofu og las; hann var faðir stjúpa míns og stjúpi móður minnar. Hann átti baðstofn áfasta við okkar, sem hann hafði bvgt sjer og bjó þar. Hann var fyrir- mannlegur öldungur, hvítur fyrir hærum, bar hátt höfuð sitt og gekk teinrjettur, þá á áttræðis aldri; liann var gáfaður maður, las og hugsaði mikið; allir þjeruðu afa, lika foreldrar mínir. Aldrei á æfi minni liefi jeg heyrt eins vel og skörulega lesið eins og þeg- ar afi las. Jeg held, að hann hafi kunnað Vídalín utan- I)ókar, því að þegar jeg man eftir, var hann blindur á öðru auga og sá illa með hinu. Bókin hans, sem hann vildi altaf lesa í, var orðin svo slitin, að víða voru 13

x

Dropar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.