Dropar - 01.01.1927, Page 32

Dropar - 01.01.1927, Page 32
„Eins og við vildum, nð það væri“, sagði hún. „Já, þ ú “, ansaði hann. Svo þögðu þau og hvor- ugt svaí’, og báðum leið illa. Og illa leit það út alt saman, og engin úrræði vissi hún; ljet stundum í ljósi illa líðan sína, er liann var þögull og stirður. Hver dagurinn var öðrum örðugri, og lengi voru þeir á sjer. Guð hjálpi þessu auma ástandi! hugsaði hun í kyrþey og fór að hugsa um skilnað. En hún fann þó dálítið til þess stundum, að þrátt fyrir alt var þó þetta sami maðurinn, sem llún hafði unnað svo skilmála- og skynsemislaust. Það var alJs ekki svo auðgert að fleygja lionum út á kald- an ldakann, með viðkvæma, þunga geðið og grát- klöklcva dulleikann, þó örvingluð og þreytt væri hún undir eins orðin, uppstökk og æf yfir óþýðleik hans og ónærgætni. Langar 6 vikur voru Jiðnar af hjónabandinu æfi- langa, þegar hjálpin kom, óvænt og óboðin og rjeð fram úr vandræðunum. Hún lagðist veik og gat enga björg sjer veitt og enginn til að annast liana nema bóndinn. Ekki var hann laginn við hjúkrun, enda óæfður, en nú varð að tjalda því, sem til var, og liann snjeri henni í rúminu og mataði hana eins og barn. Og eins og við vitum, fylgir sú uinbun góðfýsi og hjálpsemi inanna, að sá, sem annast, fær hlýjan huga til þess, sem Iiann er að lilúa að, og svo fór nú. AJIan veturinn var hún ósjálfbjarga, og honum fórst dálítið liðlcg- ar og betur að annast hana en fyrst. Og hún varð nægjusöm og þakklát, og loks logaði faldi eldurinn U'ppi í herini" að nýju, og hún fann aftur í honuiri manninn, sem hún hafði elskað svo mjög og beðið guð að gefa sjer með þeim heita ákafa, sem æskutil- finningin ein á yfir að ráða. Og smámsaman fór 30 I

x

Dropar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.