Dropar - 01.01.1927, Page 66

Dropar - 01.01.1927, Page 66
sjálf seig eins liægl i hafið og hún gat, til þess að hún gæti sem lengst sjeð kóngsdótturina í vöggunni. — - Litlu blómálfarnir hlógu og hjeldu, að aldrei myndi koma kvöJd. En svo þegar síðasta gullröndin var horfin af vesturhimninum og rökkrið breiddi mjúka bláa blæju yfir liöf og Jönd, hnipruðu þeir sig saman inni í blómkrónunum, stungu undir sig höfð- unum og sofnuðu. Og lítill blómálfur, sem bjó í ný- útsprungnum rauðum rósahnappi í hallargarðinum, livíslaði brosandi um leið og liann lagði aftur augun: — Jeg hef sjeð kóngsdótturina. Hún er eins og stórt dásamlegt blóm, með tveimur bláum tindrandi stjörnum. Þá fór titringur um blómhnappinn, og hann lokaðist. Skömmu eftir fæðingu kóngsdótturinnar gerði drotningin boð eftir spákonunni, sem bjó i kofa langt inni í skóginum. Spákonan kom að vöggu litlu kóngsdótturinnar og virti hana fyrir sjer um stund. — Seg mjer forlög dóttur minnar, mælti drottn- ingin. — Náðuga drotning, svaraði spákonan, jeg vildi óska, að þú hefðir aldrei kallað mig hingað, því að það, sem jeg verð að segja þjer, mun hryggja þig. Drotningin brá litum. — Jeg vil heyra alt, sem þú getur sagt mjer, hvern- ig sem það kann að vera. Spákonan ljet brúnirnar síga og varð undarleg mjög. Hún lók til máls á þessa leið: — Dóttir þín, göfuga drotning, verður fegurri en allar kóngsdætur jarðarinnar, gáfaðri þeim öllum og betri en þær allar. Hún verður langlíf og gæfusöm. — Ekki sje jeg neitt hryggilegt í þessu. Varstu að 64

x

Dropar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.