Dropar - 01.01.1927, Page 70

Dropar - 01.01.1927, Page 70
og fjell síðan niður í bogamynduðum úða. Þetta hafði veitt henni mikla skemtun áður. Nú fanst henni það tilbreytingarlaust og einskisvirði. — Litln englabörnin á börmunum þekti hún öll. Henni þótti vænt um litlu hrokkinhærðu drengina, með útbreidda vængina. Oft klappaði hún þeim, en marmarinn var svo kaldur viðkomu, að það fór hrollur um hana. Hvað hún óskaði þess heitt, að litlu englarnir væru lifandi og gætu fJogið. Þá myndi hún biðja þá að bera sig yfir liáa múrinn. A tjörnunum syntu fallegir snjóhvítir svanir. — Af hverju fljúga ekki svanirnir burt, fyrst þeir hafa vængi? spurði kóngsdóttirin eina af þernum sínum. — Það hefur verið klipt af vængjum þeirra, svo að þeir gætu ekkert komist. Þeir eiga að vera hjer lil prýðis, svaraði þernan. Þegar kóngsdóttirin lieyrði þetta, komu tár í stóru bláu augun hennar, og upp frá því varð hún altal’ hrygg, þegar hún sá svanina. í trjágöngunum var þröngt og dimt, og þar sást aðeins upp i heiðan himininn. í skugga hinna háu trjáa stóðu myndastyttu]- á stöllum. Það voru alt fagrar, naktar konur. Sumar voru með litil börn sjer við hlið, aðrar voru dansmeyjar og sveifluðu slæðunum í kringum sig, en allar voru þær úr hörð- um steini, og engin þeirra gat hreift svo mikið sem litla fingurinn. Ein þeirra var ólík öllum hinum, og hana þótti kóngsdótturinni vænst um. Það var ung stúJka, sem hafði hendurnar krosslagðar á brjóstinu og mændi til himins. Það var auðsjeð á andliti hennar, að henni leið illa. Það var eins og hana langaði ii]>p í himininn og hún væri að biðja einlivern að bera sig þangað. 68

x

Dropar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.