Morgunblaðið - 01.12.2008, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2008
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
87
7
SMÆRRI fyrirtæki á mat-
vörumarkaði telja sig ekki fá út-
hlutað lóðum á höfuðborgarsvæð-
inu og vill Samkeppniseftirlitið að
úr þessu verði bætt. Samkeppn-
ismat verði framkvæmt samhliða
vinnu við gerð deiliskipulags. Þá
nefnir eftirlitið í skýrslunni að
einkasölu-, einkakaupasamningar
og tryggðarafslættir stærri smá-
söluverslana feli í sér aðgangs-
hindranir og vill að matvörukeðjur
felli úr gildi einkasölusamninga.
Þá hafi Hagar mikið forskot á
aðra keppinauta vegna stærð-
arhagkvæmni og lóðréttrar sam-
þættingar í rekstri og geti það
dregið úr líkum á samkeppni. Vill
eftirlitið að kannað verði hvort það
myndi auka samkeppni að smáir
keppinautar gætu átt viðskipti við
innkaupa- og dreifingarfyrirtækið
Aðföng, sem er í eigu Haga.
Finnur eftirlitið að mörgu varð-
andi framleiðslu og sölu á mjólk og
mjólkurafurðum. Afurðastöðvar
séu undanþegnar banni við sam-
keppnishamlandi samráði og þá
megi þær sameinast án tillits til
ákvæða samkeppnislaga. Því hafi
Mjólkursamsalan því sem næst
komist í einokunarstöðu. Vill eft-
irlitið að MS selji frá sér af-
urðastöðvar og að búvörulög verði
endurskoðuð
Fá ekki
lóðir
Búvörulög verði tek-
in til endurskoðunar
NÝ og smærri olíufyrirtæki hafa
oft átt í erfiðleikum með að fá lóð-
um úthlutað fyrir afgreiðslu-
stöðvar, að því er kemur fram í
skýrslu Samkeppniseftirlitsins.
Framtíðarskuldbindingar sveitar-
félaga um lóðir til stærri olíu-
fyrirtækja hafi útilokunaráhrif á
nýja eða smærri keppinauta. Sama
á við um kvaðir á lóðum um að
óheimilt sé að setja upp af-
greiðslustöðvar á þeim.
Telur eftirlitið mikilvægt að
sveitarfélög geri ráð fyrir því að ný
eða smærri olíufyrirtæki fái lóðir
fyrir afgreiðslu- og birgðastöðvar, í
nýjum sem eldri hverfum.
Þá megi stóru fyrirtækin ekki
notfæra sér fákeppnisaðstæður til
að hindra þátttöku eða vöxt minni
keppinauta, eða koma á eða við-
halda verðlagningu, sem ekki bygg-
ist á heilbrigðri samkeppni.
Erfitt fyrir
ný fyrirtæki
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
SVEITARFÉLÖG hafa sjaldnast
mótað skýra stefnu um áhrif skipu-
lags á samkeppni og leggur Sam-
keppniseftirlitið til að áskilið verði í
skipulagslöggjöf að samkeppn-
issjónarmið hafi vægi í ákvörðunum.
Kemur þetta m.a. fram í nýrri
skýrslu Samkeppniseftirlitsins.
Segir þar að bankahrunið hafi leitt
til mjög alvarlegs efnahagsástands
hér á landi. Þetta ástand geri það að
verkum að brýn nauðsyn sé að hefja
öfluga uppbyggingu í íslensku at-
vinnulífi. Í því sambandi skipti miklu
að viðhalda og eftir atvikum að efla
samkeppni.
Meðal þeirra samkeppnishindr-
ana, sem eftirlitið bendir á í skýrsl-
unni, er tilhneiging hjá sveit-
arfélögum til að hafa frumkvæði að
því að velja stóra keppinauta til að
hefja verslunarrekstur á kostnað
minni keppinauta. Þá séu dæmi um
tregðu við úthlutun lóða til smærri
keppinauta, og er olíumarkaður
nefndur í því sambandi.
Kvaðir á lóðum
Oft séu kvaðir á lóðum um að
óheimilt sé að starfrækja á þeim til-
tekna starfsemi eða skylda eiganda
til að byggja skrifstofuhúsnæði á
sömu lóð og matvöruverslun, svo
dæmi sé tekið. Slíkar kvaðir geri
smærri fyrirtækjum erfiðara fyrir
og dragi þar með úr samkeppni.
Vill eftirlitið að sveitarfélög beiti
sér fyrir því að ekki séu settar sam-
keppnislega takmarkandi kvaðir á
lóðir, að lóðum sé úthlutað með út-
boði, þegar það er hægt. Gerir Sam-
keppniseftirlitið það að tillögu sinni
að stjórnvöldum verði gert skylt að
framkvæma samkeppnismat í
tengslum við undirbúning að setn-
ingu laga og stjórnvaldsfyrirmæla,
m.a. við gerð deiliskipulags.
Samkeppnismat væri staðlað ferli,
þar sem m.a. væri leitað svara við því
hvort aðgerðin auki líkur á því að
fyrirtækjum fækki, hvort hún tak-
marki möguleika fyrirtækja til að
mæta samkeppni eða hvort hún tak-
marki frumkvæði fyrirtækja til að
stunda virka samkeppni.
Eru í skýrslunni nefnd dæmi um
aðgerðir, sem falið gætu í sér röskun
á samkeppni. Feli hún í sér einhvers
konar einkarétt, leyfiskerfi eða
kvóta geti hún valdið því að fjöldi
fyrirtækja verði takmarkaður. Feli
aðgerðin í sér að fyrirtæki verði und-
anþegin samkeppnislögum eða ef
fyrirtæki eru skyldug til að skiptast
á viðskiptalegum upplýsisingum geti
það dregið úr frumkvæði fyrirtækja
til að stunda samkeppni.
Telur eftirlitið að samkeppnismat
sem þetta geti verið öflugt tæki fyrir
stjórnvöld til að átta sig á afleið-
ingum aðgerða sinna á viðkomandi
markaði. Samkeppnismat geti stuðl-
að að því að markaðir haldist opnir
og þannig verði komið í veg fyrir
óþarfar opinberar aðgangshindr-
anir. Einnig geti samkeppnismatið
gert það að verkum að hags-
munaaðilar geti komið sjónarmiðum
sínum á framfæri með skýrum og
skilvirkum hætti.
Í skýrslunni er jafnframt farið yfir
stöðu samkeppnismála á helstu
mörkuðum innanlands og bent á
samkeppnishindranir og mælt fyrir
hugsanlegum lausnum til að ryðja
þeim úr vegi.
Morgunblaðið/Ómar
Skortir skýra stefnu
Samkeppniseftirlitið finnur að samkeppnishindrunum á helstu mörkuðum
Vill að stjórnvöld vinni samkeppnismat áður en stórar ákvarðanir eru teknar
Morgunblaðið/Valdís Thor
Samkeppnismat Samkeppniseftirlitið vill að tekið sé tillit til samkeppn-
islegra áhrifa við gerð deiliskipulags hjá sveitarfélögum.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
STEFNT er að því að kynna frum-
varp menntamálaráðherra um tak-
mörkun á þátttöku RÚV á auglýs-
ingamarkaði fyrir þingflokkum í
dag.
Fyrir helgi boðaði ráðherra
frumvarp þess efnis og hefur nefnd
á vegum ráðherra skilað tillögum
um leið sem fara á. Annars vegar
er miðað að því að draga úr um-
svifum RÚV á auglýsingamarkaði
og hins vegar er reynt að bæta
RÚV tekjumissinn.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hafa ýmsar leiðir verið
ræddar um hvernig takmörkuninni
yrði háttað. Ein leið hafi orðið ofan
á í nefndinni og hafi ríkisstjórnin
lagt blessun sína yfir hana fyrir sitt
leyti á ríkisstjórnarfundi sl. föstu-
dag.
Mismiklar takmarkanir
Heimildarmenn Morgunblaðsins
eru sammála um að takmark-
anirnar verði verulegar en muni
koma mismikið niður á miðlum
RÚV, útvarpi og sjónvarpi. Sjón-
varpið muni frekar finna fyrir tak-
mörkununum en útvarpið, enda hef-
ur helsti styrinn staðið um
auglýsingar þar.
Ekki er búið að afmarka end-
anlegan kostnað við þessar breyt-
ingar. Við núverandi aðstæður sé
erfitt að gera sér grein fyrir kostn-
aðinum, enda hafi auglýsingamark-
aðurinn tekið stakkaskiptum á
skömmum tíma.
Takmarkanirnar koma í kjölfar
frétta af bágri stöðu einkarekinna
fjölmiðla. Skjárinn, sem rekur sjón-
varpsstöðina Skjá einn, fékk yfir 55
þúsund Íslendinga til að skrifa und-
ir áskorun til menntamálaráðherra
og ríkisstjórnarinnar um að leið-
rétta samkeppnisumhverfi einka-
rekinna sjónvarpsstöðva. Þá hefur
samkeppniseftirlitið tekið fyrir aug-
lýsingamál RÚV.
Stutt í að tillögur birtist
Takmarkanir á auglýsingum RÚV fyrir þingflokka í dag
Líklega verða meiri takmarkanir á auglýsingum sjónvarps
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Færri auglýsingar verða í sjónvarpi
AUK sérstaks leyfis til að mega
starfa á sviði lyfjainnflutnings
þurfa innflytjendur að hafa sér-
stakt markaðsleyfi fyrir innflutn-
ingi á hverri lyfjategund fyrir sig.
Segir í skýrslu samkeppniseftirlits-
ins að þetta sé kostnaðarsamt og
umsóknarferlið tímafrekt. Þá geti
stjórnsýslukostnaður takmarkað
hvata til að flytja inn lyf.
Þá segir eftirlitið að bann við
auglýsingum á flestum tegundum
lyfja geti skert möguleika nýrra
keppinauta til að komast inn á
markaðinn og vaxa. Einnig hindri
það samkeppni að lausasölulyf,
önnur en nikótín- og flúorlyf, megi
ekki selja annars staðar en í lyfja-
búðum.
Leggur eftirlitið það til að ís-
lenskur lyfjamarkaður verði opn-
aður með því að samþætta hann
frekar erlendum lyfjamarkaði, t.d.
hinum sænska. Þannig gæti mark-
aðsleyfi í öðru landinu gilt í þeim
báðum. Þá sé hugsanlega hægt að
endurskoða verklag stjórnsýslu
lyfjamála hér á landi með það fyrir
augum að létta hana.
Samþætting með
erlendum markaði
Með þátttöku sinni á auglýs-
ingamarkaði raskar RÚV sam-
keppni á fjölmiðlamarkaði, að mati
Samkeppniseftirlitsins. Þá hafi
365 miðlar staðið í vegi fyrir af-
hendingu sjónvarpsmerkja og séu
vísbendingar um að þeir hafi með
því brotið gegn ákvörðunum sam-
keppnisráðs.
Vill eftirlitið að unnið verði gegn
þeim samkeppnishömlum, sem
stafa af stöðu RÚV á auglýs-
ingamarkaði. Þá eigi 365 miðlar og
Skjárinn ekki að standa í vegi fyrir
afhendingu sjónvarpsmerkja til
nýrra keppinauta.
Að lokum vill eftirlitið að núver-
andi keppinautar á sjónvarps-
mörkuðum, dreifiveiturnar Voda-
fone og Síminn og efnisveiturnar
365 miðlar og Skjárinn, opni að-
gengi að kerfum sínum og efni fyr-
ir nýja aðila, sem vilji hasla sér völl
á fjölmiðlamarkaði.
RÚV raskar samkeppni