Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Qupperneq 49
STJARNAN
HÆSTI TINDURINN
47
og bera yfir sjer möttul myrkursins; fullsælan fæst ekki fyr en
þjer hafið varpað þeim möttli af yður, en það gerið þjer með
því að útrýma úr eðli yðar öllu því, sem bindur yður og tak-
markar. Þegar þjer liafið varpað öllu þessu frá yður, fundið
sannleikann í eigin lijörtum vðar og fvlgt röddu bans staðfastlega,
þá verður liann hluti af yður sjálfum, hann verður að eilífðarþrá
yðar og eilífðarsýn, og þá fæðist viturleg uppreisn i sálum yðar.
Þegar þjer varpið burtu öllu því sem bindur yður, öllu því sem
fæðir af sjer sorgir, áhyggjur og óhemjusársauka óuppfyltra óska,
þá munuð þjer verða þess vör, að viturleg uppreisn hreinsar
sálir yðar og eyðir ólireinindum og öllu því, sem ekki er í sam-
ræmi við frelsi og fullsælu. Þeir, sem því vilja fylgja sannleik-
anum, verða að fylgja mjer inn í lijörtu sjálfra sín; þar er sann-
leikurinn grundvallaður, þar býr fullsælan og frelsið, hin sanna
fullsæla og' frelsi, sem jeg' liefi öðlast, og er sameiginleg
arfleifð og' takmark allra manna.
Það er gagnslaust að fylgja öðrum i blindni, eða að byggja
musteri fyrir hverful goð; alt þetta líður undir lok og deyr, og
þjer munuð verða skilin eftir jafnnakin og ofurseld glötun,
jafnófarsæl og þjáð og þjer voruð áður en þjer hittuð þessa
guði yðar, sem nú skilja yður eina eftir í náttmyrkrinu.
Þegar þjer hafi'ð uppgötvað frelsið og fullsæluna í eigin
hjörtum, þá byggið þjer yður þar musteri til tilbeiðslu; aðrir
guðir, óskir og þrár liverfa yður, eftir verður aðeins löngunin
eftir að sameinast að fullu frelsinu og fullsælunni. Þá verðið
þjer sjálfir yðar eigin leiðtogar og uppgötvið sjálfir veg friðar-
ins. Ef þjer treystið einliverjum öðrum en sjálfum j'ður, hversu
fögur, sem liugsjón hans kann að vera, og liversu mjög, sem
þjer elskið hann, þá er þetta hverfult og mun líða hjá, en þjer
verða eftir skilin jafnnakin og einmana og áður. Þó að jeg
liafi klifið fjallstindinn og öðlast frelsi og fullsælu, þá er ekki
þar með sagt, að þjer eigið að elska líkama minn. Þjer getið
elskað og tilbeðið sannleikann, sem er frelsi og fullsæla, þvi
líkamarnir hverfa burtu eins og alt annað cn sannleikurinn
sjálfur. Haldið því fast við sannleikann, eins og skipbrotsmað-
urinn við bjarghringinn. Ef þjer haldið fast við hann, þá mun
liann aldrei bregðast yður, þvert á móti mun liann styrkja yður
og efla þá ósk yðar að verða aldrei viðskila við hann um alla
eilífð.
Þeir sem vilja fylgja mjer, verða að fylgja sannleikanum,
því aðeins ef sannleikurinn um frelsið og fullsæluna er grund-
vallaður i hjörtum yðar, munuð þjer i sannleika f}Tlgja mjer,
og þá inunuin vjer heldur aldrei skilja framar. En á því augna-
bliki, sem þjer hyggið að byggja sannleikanum ytra gerfi og