Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Blaðsíða 91
STJARNAN
89
SANNLEIKSHOLLUSTA
öðlast fullnað, en þjer eruð ófús að ganga í gegnum þessar
þrautir. Og þar eð þjer hafið veigrað yður við ]tví síðustu tvö
árin, og þar eð nú er kominn tími til þess, að þjer verðið að gera
það, þá ætla jeg að leggja á yður þessar þrautir, eigi af vægðar-
leysi, eigi af hörku, eigi af kærleiksskorti, þvert á móti sökum
kærleiks. Jeg elska eigi líkami yðar, en það sem á bak við þá
býr. Jeg elska eigi ásjónu ýðar nje útlit klæða, en jeg elska
Lífið, sem í vður býr, sem er Ásivinurinn. Og þar eð jeg elska,
langar mig til þess að gera yður vndisleg; þar eð jeg elska, óska
jeg að gera yður göfug', hrein og máttug, svo að öll breytni vðar
í orði og verki verði öflug og áhrifarik og yður fylgi sú farsæld,
sem fæst með rjettum og fullum skilningi. Því er það, að farið
])jer viturlega að ráði yðar, þá skuluð þjer húa yður undir að
cfast um alla hluti vikuna sem í hönd fer. Öll fræðikerfi vðar,
heimspeki yðar og sannleiksmolar verða að rýma, svo þjer
getið fundið hið Algilda. Og jeg vona að þjer hlýðið engum, en
hlýðið einungis yðar eigin innri fræðandi röddu, yðar eigin
skilningi, og neitið kurtcislega að lilýða á þá, sem vilja útskýra
fyrir yður. Þegar að er gáð eru vandamál einstaklinganna
vandamál veraldarinnar. Eigi einstaklingurinn hið innra með
sjer frið, sælu og samræmi, er friður, sæla og samræmi um-
hverfis liann. Þegar þjer hverfið hjeðan á brott, óska jeg' að þjer
hafið rótfest hjá yður þann frið og þann skilning, sem ekkert
fær hifað.