Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Blaðsíða 105
STJARNAN
MARKMIÐ STJÖRNUFJELAGSINS
103
Markmið Stjörnufjelagsins.
Erindi
haldið að Eerde-kastala sumarið 1928 yfir umsjónarmönnum
Stjörnufjelagsins, sem safnast höfðu saman frá öllum löndum.
Um leið og jeg býð yður velkomna til Ommen, get jeg ekki
lálið lijá líða, að láta í ljósi gleði mína yfir þvi, að sjá ennþá
einu sinni svo marga þekta vini frá öllum löndum.
.Teg vona að þegar þjer farið lijcðan aftur verði áform vðar
ákveðnari en áður, og þjer færari um að greina á milli liins
hverfula og hins eilífa. En til þess að skilja, hvað það er, sem
hefir eilífðargildi, verðið þjer að ígrunda orsakir hlutanna, en
ekki afleiðingar þeirra.
Jeg vona að þjer reynið að lilusta á orð mín með atliygli,
því jeg liefi mikið að segja og verð því að vera gagnorður. At-
hugið nú ráð yðar vandlega, því sá tími er kominn, að þjer
verðið að gera yður ljóst, að þjer verðið að vera sem stálið
stælt, sem hvitglóandi eldurinn, ef þjer eigið að geta hreytt
hugsunum og tilfinningum mannkynsins. Hingað til hafið þjer
látið herast með straumnum, nú eigið þjer að stjórna vður
sj álf.
Þjer hafið komið hvaðanæfa að til þess að hlýða á mig,
og hverfið aftur hver heim til síns lands með vðar eigin skilning
á þvi, sem jeg hefi sagt. Þekking yðar verður því að vera örugg
og skilningur jTðar á sannleikanum staðfastur; þjer megið ekki
iengur reyna að samrýma og hræða saman hluti. sem ósam-
rýmanlegir eru. Jeg hefi tckið þá ákvörðun, að heygja mig al-
drei framar fyrir þvi, sem aðeins hefir augnabliks gildi, en
hirða eingöngu um hið ævaranda og óumbreytanlega, það sem
er orsök alls. Bjrggingin getur því aðeins orðið traust og full-
komin, að undirstaðan sje sterk.
Áður en jeg held lengra, vil jeg að yður sje það fullkom-
lega ljóst, að jeg óska ekki eftir tilheiðslu yðar, að jeg ætla ekki
að skapa nein ný trúarbrögð, að jeg hefi enga lærjsveina og að
jeg held ekki þekkingu minni að yður með neinum myndug-
leika, enda þótt hún sje mjer hæði upphaf og takmark lífsins.
Ef þjer reynið að snúa þvi sem jeg segi þannig, að það
falli saman við liugsanir yðar og samrýmist trú yðar, þá er alt