Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Side 79
ST.TARNAN
NEISTINN OG BÁLIÐ
77
oí>' verða að ení>u. Það skiftir engu máli, livað um einstaklingana
verður; það er bálið eitt, sem getur svarað því, livort þeir verða
sameinaðir því að eilífu, eða þeir koma fram að nýju sem ein-
staklingar.
Ef þjer eigið að sameinast bálinu, týna sjálfinu og öðlast
frelsi og' fullsælu, þá verðið þjer að þroskast eins og Krishna-
murti þroskaðist. Þjer getið ekki orðið fullkomnir á einuni
degi, en Iieit þrá og sterkur vilji getur þó lyft yður i þær hæðir
að þjer fáið lifað stöðuglega með Ástvininum, enda þótt þjer
sameinist lionum ekki að fullu.
Þjer verðið að hafa mikla lífsreynslu að baki og eiga óbil-
andi þolgæði, ef þjer eigið að geta þroskað í fullu samræmi
hugsana og tilfinningalíf vðar við jarðneska líkamann. Þjer get-
ið ekki nálgast bálið nema þjer verðið einfaldir í anda, en ein-
feldnin er ávöxtur sannrar siðfágunar og menningar. Bálið er
einfalt í tign sinni, enda þótt það geymi miljónir af neistum.
Þess vegna verðið þjer að öðlast einfaldleik þann, sem siðfágun
og sönn menning gefur, ef þjer viljið sameinast bálinu. Því
hegðun er ytri mynd hins innra lífs, þess vegna verðið þjer að
rækta innra með yður rjetta og sanna afstöðu til allra hluta.
Á hrifningarstundum finnið þjer öll innra með yður hvernig
hin sanna siðfágun og menning ættu að koma í Ijós, þess vegna
verðið þjer að temja líkama yðar, svo að liann geti endurspeglað
andlegleik þann og' göfgi, sem innra með yður hýr.
Fyrst og' fremst verðið þjer því að fá vald yfir yðar jarð-
neska likama, en til þess verðið þjer að bera umhyggju fyrir
honum, svo ekkert ósamræmi fái vald vfir honuni og hann
taki skyndilcga af yður ráðin, með ósknm sínum, óþreyju, eða
reiðihneigð. Líkaminn er aðeins verkfæri sjálfsins, sem er runn-
ið frá hálinu. Sjálfið, sem er neisti frá hálinu, þroskast meir
og meir, hreinsast og fegrast og' leitar aftur í áttina til uppruna
síns; þá á líkaminn að verða sönn mynd af lnnum innri lil-
finningum, liugsunum og hreinleika. Þjer verðið að viðhafa
reglulegar hugleiðsluæfingar til þess að fá fult vald yfir líkam-
anum og kröfum hans, tilfinningum og girndum. Það gildir
einu hvaða æfingar þjer viðhafið, ef yður geðjast vel að ein-
liverju sjerstöku kerfi, þá getið þjer notað það, það er árangur-
inn, sem alt veltur á, en ekki kerfið. Það hefir litla þýðingu
eftir livaða götu þjer náið takmarkinu; það sem máli skiftir
er að þjer náið því stigi, að þjer fáið fullkomið vald vfir líkam-
anum og getið látið hann gera það, sem yður sýnist, því þroski
hugsana og tilfinninga verður að haldast í liendur við þroska
líkamans.
Jeg lield áfram með söguna af Krishnamurti. í árdaga