Morgunblaðið - 17.12.2008, Page 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
44
21
0
11
.2
00
8
Leki göngustafir
fyrir þá sem gera kröfur
Verð frá
6.990
parið
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Fjölskylduhjálp Íslands
Jólasöfnun
Fjölskylduhjálpar Íslands er hafin
Þúsundir fjölskyldna eiga um sárt að
binda fyrir jólin. Þeir sem eru
aflögufærir fyrir þessi jól geta lagt inn
á reikning Fjölskylduhjálpar Íslands
101-26-66090
kt. 660903-2590
Tökum á móti matvælum og fatnaði
alla miðvikudaga að
Eskihlíð 2-4 frá kl. 12.00 til 18.00.
Símar 551 3360 og 892 9603
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
EKKI verða lagðar niður neinar
námsbrautir við Háskóla Íslands á
vormisseri, en vera kann að gripið
verði til slíkra aðgerða næsta haust.
Starfsfólk HÍ virðist þó nokkuð ein-
huga um að mæta auknum nem-
endafjölda eftir bestu getu þótt ljóst
sé að 13% fjölgun nemenda á sama
tíma og framlög eru skorin niður um
rúmar 950 milljónir muni að ein-
hverju leyti bitna á gæðum námsins.
„Við stöndum frammi fyrir miklum
vanda. Það á eftir að verða þrautin
þyngri að láta enda ná saman á næsta
ári, hvað þá ef við ætlum að opna skól-
ann upp á gátt og taka við þessum
stóra hópi,“ segir Guðmundur R.
Jónsson, formaður fjármálanefndar
HÍ.
1.625 umsóknir höfðu borist skól-
anum er umsóknarfrestur um nám á
vormisseri 2009 rann út á mánudag
og er það metfjöldi umsókna um nám
á vormisseri. „Við ógnum algjörlega
innra starfi skólans ef við neyðumst
til að taka við svona mörgum ný-
skráningum og fáum það ekki með
einhverjum hætti bætt.“ Fái skólinn
ekki greitt samkvæmt samningi rík-
isins um eflingu kennslu og rann-
sókna við HÍ fyrr en 2010 hljóti það
að hafa áhrif á gæði kennslu og rann-
sókna.
Meira um fyrirlestra
Þeir Ólafur Þ. Harðarson, forseti
félagsvísindasviðs, og Ástráður Ey-
steinsson, forseti hugvísindasviðs,
samsinna því að niðurskurðurinn
hljóti að koma niður á gæðum kennsl-
unnar. „Álagið á kennara verður
meira og stórum námskeiðum fjölgar
og fyrir vikið færast þau meira yfir í
fyrirlestraform,“ segir Ástráður. Á
hugvísindasviði hefur þegar verið
gripið til þeirra ráðstafana að fella
viss námskeið niður verði þau ekki
nógu fjölmenn eða breyta fyrir-
komulaginu til að gera þau ódýrari.
„Við lítum á þetta sem tímabundið
neyðarástand,“ segir Ólafur. „Við er-
um langfjölmennasta svið háskólans
og höfum búið við að vera með til-
tölulega marga nemendur á kennara í
mörgum greinum. Við höfum því ekki
getað veitt nemendum eins persónu-
lega þjónustu og við hefðum viljað.“
Minna hafi t.d. verið um umræðutíma
og stefna HÍ hafi verið að bæta þetta
verulega. Niðurskurðurinn nú þýði
að af því verði ekki.
Ekki í hópi þeirra bestu?
Niðurskurðurinn nú stefnir enda,
að mati Guðmundar, í þveröfuga átt
við það markmið að koma HÍ í hóp
bestu háskóla í heiminum.
„Við þurfum að skera töluvert nið-
ur í launaliðnum. Hingað til hefur
heilmikið af kennslunni farið fram í
gegnum stundakennslu.“ Mörg und-
anfarin ár hafi skort kennara til að
mæta aukinni kennsluþörf og því ver-
ið mætt með yfirvinnu. „Núna geng-
ur síðan barátta okkar út á að halda í
núverandi mannskap og minnka frek-
ar yfirvinnuna.“
Leitað verði allra leiða til að hag-
ræða á næstu mánuðum og því kunni
einstök námskeið eða greinar að
verða felld niður næsta haust.
Allir segja þeir starfsfólk HÍ ósátt
við hversu mikill niðurskurðurinn er.
Menn séu hins vegar ákveðnir í að
ganga til móts við þjóðina eins og
kostur er og horfa þá frekar til al-
mennings en hinnar pólitísku hliðar.
„Á þessu stigi málsins lítum við á
þetta sem neyðarmál og hljótum þá
bara að taka við umsækjendum og
gera allt sem við getum til að koma til
móts við þá og tryggja að kennsla
verði með jafngóðum hætti og unnt
er miðað við fjármagn. Það er hins
vegar ekki hægt að reka Háskóla Ís-
lands þannig í mörg ár til fram-
búðar,“ segir Ólafur.
Bitnar á gæðum námsins
Morgunblaðið/Ásdís
Á skólabekk Erfitt verður að taka við þeim mikla fjölda nemenda sem hefja
nám við Háskóla Íslands á vorönn. 1625 umsóknir hafa borist um skólavist.
Metfjölgun nemenda við HÍ á vorönn Niðurskurður fjármagns samhliða fjölgun nemenda ógnar
innra starfi skólans Starfsfólk lítur á málið sem tímabundið neyðarástand sem bregðast verði við
Sjóðir Háskóla Íslands skiptast í
Styrktarsjóði HÍ og Háskólasjóð
Eimskipafélagsins og voru í þeim
síðarnefnda rúmir þrír milljarðar kr.
fyrir bankahrun, en þar var tapið
mest að sögn Sigurðar J. Hafsteins-
sonar, fjármálastjóra HÍ. „Við erum
að upplifa svipað tap og lífeyris-
sjóðirnir. Rýrnun sem nemur 20-
25% og samsvarar tveggja til
þriggja ára ávöxtun,“ segir Sig-
urður og kveður fjárfestingarstefnu
skólans hafa verið íhaldssama.
Háskólasjóður Eimskipafélagsins
var rúmir tveir milljarðar er honum
var hleypt af stokkunum 2005 og
er nú væntanlega kominn niður í
svipaða upphæð aftur. „Hann óx og
dafnaði og var kominn í rúma þrjá
milljarða þrátt fyrir að greiddar
hefðu verið 500 milljónir í upp-
byggingu á Háskólatorgi, sem og
hátt í 200 milljónir í styrki til dokt-
orsnema,“ segir Sigurður sem telur
sjóðinn geta staðið við skuldbind-
ingar sínar. HÍ hafi þó, í ljósi síðustu
atburða, óskað eftir að fá fulltrúa í
stjórn, en hana skipa nú Björgólfur
Guðmundsson, Halldór J. Krist-
jánsson og Kjartan Gunnarsson.
Hvað styrktarsjóðina varðar þá
samanstanda þeir af 50-60 smærri
sjóðum sem í voru 1.100-1.200
milljónir kr. fyrir hrun og eru þeir nú
misjafnlega á vegi staddir. Sums
staðar er lækkunin það mikil að
gengið hefur á bundna höfuð-
stólinn, og munu þeir sjóðir ekki
geta úthlutað á næstu árum. Aðrir
hafi hins vegar verið lengi til og
hafa því myndað lausan höfuðstól
sem hægt er að úthluta úr.
Mest tap af Háskólasjóði Eimskipafélagsins
Kennslukostnaður í þús-
undum króna fyrir nemanda
sem skilar fullu námi á ári
FÉLAGS- OG MANNVÍSINDI
501
TÖLVU- OG STÆRÐFRÆÐI
793
HJÚKRUNARFRÆÐI
891
KENNARANÁM
846
VERK-, TÆKNI-, EFNAFRÆÐI
OG ARKITEKTÚR
1.139
LÆKNISFRÆÐI
1.588
TANNLÆKNINGAR
2.650