Morgunblaðið - 17.12.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
Á borðinu hjá mér er gríð-arlegur kassalaga doðr-antur, Myndlist í þrjátíu þús-
und ár – Listsköpun mannkyns í
tíma og rúmi. Titillinn hæfir um-
fanginu – það er eins gott að enginn
missi gripinn á tærnar á sér. Og
enginn ætti að reyna að lesa þessa
bók í rúminu, það gæti verið hættu-
legt.
Hinsvegar er þetta stórmerkilegt
og fræðandi rit. 1.000 meist-
araverk frá ólíkum löndum, sið-
menningu og samfélögum birt
í tímaröð – á jafn mörgum
blaðsíðum. Heimurinn sem
opnast þeim sem fer í gegn-
um verkið hefst á fyrstu
hellamálverkum manna
fyrir um 30.000 árum og
fróðleikurinn endar í
kulnuðum eldgíg í
núinu, þar sem James
Turrell mótar rými inni
í fjalli.
Eins og segir í inngangier hér að finna „heims-
þekkt listaverk, önnur síður
kunn og að auki ýmislegt sem
kemur á óvart“. Í textunum
sem fylgja verkunum er fjallað
um mikilvægi hvers og eins, hvað
gerir það dæmigert fyrir þá menn-
ingu sem það er sprottið úr, og
stöðu þess í þróun listasögunnar.
Hvert verk og gripur flýtur út-
klipptur á hvítri síðu og nýtur sín
vel. Umbúnaðurinn hæfir listinni.
Við að fletta í gegnum þetta mikla
verk (það er ráðlegt að gera það í
nokkrum áhlaupum, upplýs-
ingamagnið er þvílíkt) fræðist mað-
ur um hina ólíklegustu hluti í mynd-
rænni sköpunarsögu. Smágripir,
mörgþúsund ára gamlir, eru birtir í
raunstærð og sýna færni listamanna
fornaldar; gripir sem tengjast trú,
samræðu við guði og látna eru áber-
andi, og svo eru öll þessi verk gerð
mannlegum guðum og konungum til
dýrðar.
Oft vill lesandinn fræðast
meira um skaparana en að
sjá þetta eina verk, en þá
virkar bókin sem lykill að
upplýsingum; lesandinn
leitar einfaldlega að bók-
um með viðkomandi
listamönnum eða list-
stefnum. Eða leitar á
netinu. Reyndar
finnst mér þetta bók-
verk sýna mér enn og aftur muninn
á því að skoða list á bók eða neti;
það er svo miklu áhugaverðara og
gefandi að staldra við verk og njóta
þegar þau eru vel prentuð í bók, en
netið veitir manni aðgang að nið-
ursoðnum skjáglóandi upplýsingum
sem nýtast vel en eru skammgóður
vermir. Bókin er fugl í hendi – sjö
kíló í þessu tilviki – en skjáverkið
flögrar strax burt.
Vitaskuld spyr maður sig sífelltvið yfirferð yfir bókina hvers
vegna þessi verk en ekki önnur eru
valin eftir þá listamenn sem maður
þekkir vel til. Yfirleitt tekst höf-
undum að svara því í textanum sem
fylgir, eða það má lesa í skýringuna
út frá öðrum verkum sem sýnd eru
og eru frá sama tíma; reynt er að
draga upp myndir af ólíkum hug-
myndum sem fæddu af sér listaverk
á ólíkum stöðum samtímis.
Þegar flett er inn yfir miðja 19.
öldina fer fjarvera eins yngsta list-
miðilsins, ljósmyndarinnar, þó að
verða æpandi. Auðvitað á að sýna
verk eftir Eakins, en líka Carleton
Watkins. Rétt eins og við sjáum verk
eftir Monet ætti að vera ljósmynd
eftir Atget, og við sjáum verk eftir
Magritte frá 1933; þá var Cartier-
Bresson að umbylta götuljósmynd-
uninni, hvar er verk eftir hann?
Þriðja síðasta myndverkið af 1.000
er ljósmynd eftir Jeff Wall – það er
eins og miðillinn hafi fyrst þá náð
flugi í heimi listarinnar. Sem er auð-
vitað ekki raunin. Þessi skalli í frá-
sögninni er ritstjórunum til skamm-
ar, söguskoðun í nútíma listasögu er
alls ekki svona. Þessi úrvinnsla vek-
ur líka athygli þar sem Phaidon
Press, sem setur bókina upphaflega
saman og selur til samprentunar
víða um heim, hefur gefið út fjölda
merkra rita þar sem fjallað er um
listræna notkun ljósmynda.
Mikið hlýtur að hafa verið gam-an að vinna við að setja þessa
bók saman,“ sagði vinur minn sem
sá hana á borðinu hjá mér og byrj-
aði að fletta. Sú hefur örugglega
verið raunin. Ritstjórarnir hafa
þurft að kafa í allar hugsanlegar
tegundir myndsköpunar, alls staðar
að úr heiminum, með það að mark-
miði að finna verk sem stæðu sem
fulltrúar fyrir það besta og athygl-
isverðasta. Lesandinn nýtur góðs af
því. Þessi mikli hlunkur er virkilega
áhugaverður gripur; dyr inn í heima
sem Íslendingar þurfa að vera miklu
betur að sér í. efi@mbl.is
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
» Við að fletta í gegn-um þetta mikla verk
(það er ráðlegt að gera
það í nokkrum áhlaup-
um, upplýsingamagnið
er þvílíkt) fræðist mað-
ur um hina ólíklegustu
hluti í myndrænni sköp-
unarsögu.
1937 - intímismi/módernismi Nakin í baði, eftir Frakkann Pierre Bonn-
ard. Olía á striga, 93 x 147 cm. Musée d’Art Moderne de la Ville de Paris.
Um 25.000 fyrir
Krist - Gravetti-
tímabolið Venus frá
Willendorf, Austurríki,
eftir óþekktan höfund.
Málaður kalksteinn. Hæð:
11 sm. Naturhistorisches
Museum, Vín.
30.000 ár í sjö kílóum
1873 – Raunsæisstefna
Prammamenn við Volgu, eftir
Il’ya Yefimovich Repin, frá
Rússlandi. Olía á striga, 132 x
281 sm. Rússneska ríkissafnið.
/ AKUREYRI/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA / KEFLAVÍK / SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
Jólamynd fjölskyldunnar er komin, geggjuð
grínmynd sem kemur öllum í rétta jólaskapið!
SVALASTA MYND
ÁRSINS
EMPIRE
TIL AÐ VERÐA FRJÁLS ÞURFA
ÞAU AÐ KOMAST AÐ 200 ÁRA
GÖMLU LEYNDARMÁLI.
KLUKKAN TIFAR
OG ÞEGAR HÚN STÖÐVAST
ER TÍMA OKKAR Á JÖRÐINNI
LOKIÐ!
EKKERT
GETUR
UNDIRBÚIÐ ÞIG
FYRIR ...
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI VIP
SALURINN
ER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
THEDAYTHEEARTH... kl. 6D - 8D - 10:20D B.i. 12 ára DIGITAL
CITY OF EMBER kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
MADAGA. 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
MADAGA. 2 m/ensku t. kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
BODY OF LIES kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BODY OF LIES kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUSVIP
TWILIGHT kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
HIGH SCHOOL M... kl. 5:50 síðasta sýning LEYFÐ
TWILIGHT kl. 6D - 8D - 10:30D B.i. 12 ára
CITY OF EMBER kl. 6 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6D LEYFÐ
MADAGASCAR 2 m/ensku tali kl. 8:30D LEYFÐ
W. kl. 10:10 B.i. 12 ára
FERÐIN TIL TUNGLSINS sýnd laug. og sun. LEYFÐ
TWILIGHT kl. 8 B.i. 12 ára
TRAITOR kl. 8 B.i. 12 ára
BODY OF LIES kl. 10:20 B.i. 16 ára
PRIDE & GLORY kl. 10:20 B.i. 16 ára
CITY OF EMBER kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
TWILIGHT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
MADAGA. 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
MADAGA. 2 m/ensku t. kl. 6 LEYFÐ
THE DAY THE... kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
NIGHTS IN... kl. 8 LEYFÐ
NICK&NORAH'S... kl. 10 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA,
- S.V., MBL
SÝND Í KRINGLUNNI
- ROGER EBERT
- SÆBJÖRN, MBL
ÁSGEIR - SMUGAN
- GUÐRÚN HELGA, RÚV
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM TOM HANKS
KEMUR STÓRKOSTLEG ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA Í ANDA THE GOONIES.
ATH.
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKUT
ALI
OG E
NSKU
TALI
- Roger EbertS.V. Mbl
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
SÝND Í ÁLFABAKKA
ZACH EFFRON OG
VANESSA HUDGENS
GERA ALLT VITLAUST Í
HIGH SCHOOL MUSICAL 3!