Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
DOFRI Her-
mannsson býður
sig fram í 5.-6. sæti
í Reykjavík fyrir
Samfylkinguna í
komandi kosn-
ingum. Dofri hefur
tekið virkan þátt í
starfi Samfylk-
ingar undanfarin
ár. Hann er fyrsti
varaborgarfulltrúi og talsmaður
borgarstjórnarflokks Samfylking-
arinnar í umhverfismálum.
Í fréttatilkynningu segist Dofri
ætla að beita sér fyrir umhverf-
isvernd og nýsköpun í atvinnu-
málum með áherslu á hátækni- og
sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu,
menningar- og listastarf.
Dofri í framboð
í Reykjavík
Dofri
Hermannsson
Samfylking og Vinstri hreyfing-
in grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar
fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið
mun daglega birta fréttir sem
tengjast framboðum, prófkjör-
um, kosningafundum o.fl.
Kosningar
2009
EYRÚN Ingibjörg
Sigþórsdóttir,
sveitarstjóri á
Tálknafirði, gefur
kost á sér til for-
ustusætis í próf-
kjöri Sjálfstæð-
isflokksins í
NV-kjördæmi.
Eyrún Ingibjörg
hefur átt sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
sl. tvö kjörtímabil. Hún hefur um
árabil sinnt trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn og situr í miðstjórn hans.
Hún er einnig viðskiptafræðingur
að mennt. Eyrún Ingibjörg er gift
Tryggva Ársælssyni, útgerð-
armanni og skipstjóra og eiga þau
fjögur börn.
Eyrún Ingibjörg í
framboð í NV
Eyrún Ingibjörg
Sigurþórsdóttir
SIGURÐUR Ingi
Jóhannsson hefur
ákveðið að gefa
kost á sér á lista
Framsóknarflokks-
ins í Suður-
kjördæmi. Sig-
urður Ingi hefur
verið í sveit-
arstjórn Hruna-
mannahrepps í 15
ár, þar af sjö ár sem oddviti og fjög-
ur ár sem varaoddviti. Hann er
dýralæknir og einn af eigendum og
starfsmönnum Dýralæknaþjónustu
Suðurlands. Hann býr í Syðra-
Langholti, Hrunamannahreppi,
fæddur og uppalinn Árnesingur.
Sigurður Ingi í fram-
boð á Suðurlandi
Sigurður Ingi
Jóhannsson
ÖRVAR Steinn
Marteinsson gefur
kost á sér í 3.-5.
sæti á framboðs-
lista Sjálfstæð-
isflokksins í NV-
kjördæmi í kom-
andi prófkjöri.
Örvar hefur unnið
sem sjómaður
mestan hluta æv-
innar og stundar nám í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands.
Hann á sæti í miðstjórn flokksins og
formaður fulltrúaráðs Sjálfstæð-
isfélaganna í Snæfellsbæ.
Örvar Steinn í
framboð í NV
Örvar Steinn
Marteinsson
STUTT
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
E
L
45
11
7
02
.2
00
8
Kringlunni · sími 5684900
www.kello.is
Með hækkandi sól…
Fatnaður fyrir öll tækifæri.
Árshátíðarkjólar og yfirhafnir
Litadýrð í bolum og blússum.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
NIÐURSVEIFLAN í efnahagslíf-
inu virðist ætla að verða meiri en áð-
ur var talið. Atvinnuleysi mun
aukast hraðar en áður var óttast. Úr-
lausnarefnin þola enga bið og stjórn-
málamenn verða að láta af karpi.
Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra, þegar rætt var um
efnahagsmál á Alþingi í gær.
Jóhanna sagði, að metnaðarfullum
markmiðum í áætlun ríkisins og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefði
ekki verið fylgt eftir af nægilegum
krafti í síðustu ríkisstjórn, vegna
ákvarðanafælni og seinagangs.
Þeirri vinnu verði nú hraðað.
Með þessu skaut hún á Geir H.
Haarde, formann Sjálfstæðisflokks-
ins, sem var málshefjandi umræð-
unnar. „Standi ríkisstjórnin við fyr-
irætlanir fyrri stjórnar er engu að
kvíða,“ sagði Geir þegar hann viðraði
áhyggjur af framgangi efnahags-
áætlunar AGS. Hann ítrekaði að
frekari lánafyrirgreiðsla frá sjóðn-
um sé háð því að ríkisstjórnin haldi
sig við efnið og hið sama gildi um
gjaldeyrislán frá nágrannalöndum
Íslands.
Geir gagnrýndi ekki síður manna-
breytingar í ráðuneytum og banka-
ráðum. Endurreisn bankakerfisins
sagði hann mikilvægasta efnahags-
málið núna, ásamt því að ná niður
verðbólgu og vöxtum. Stjórnendur
og starfsfólk banka þyrftu því vinnu-
frið. Mjög væri miður, og raunar
óskiljanlegt, að ríkisstjórnin hefði
gert það að sínu fyrsta verki að
stugga svo við formönnum banka-
ráða Nýja Kaupþings og Nýja Glitn-
is að þeir hefðu sagt af sér. Einnig
sagði hann hörmulegt og ómaklegt
að ráðuneytisstjórum forsætis- og
fjármálaráðuneyta hefði verið vikið
til hliðar. Þeir hefðu gegnt lykilhlut-
verki í stjórnkerfinu frá banka-
hruninu.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði hins vegar að
sjálfstæðismenn hefðu meiri áhyggj-
ur af atvinnu tveggja flokksgæðinga
en atvinnuleysi 13-14 þúsund manns.
Dýpri kreppa en áður var talið
Geir H.
Haarde
Jóhanna
Sigurðardóttir