Morgunblaðið - 13.02.2009, Side 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
Útboðsþing 2009
Verklegar framkvæmdir í
mannvirkjagerð og byggingariðnaði
Árlegt útboðsþing um verklegar fram-
kvæmdir verður haldið föstudaginn
13. febrúar kl. 13.00 á Grand Hótel
Reykjavík.
Á þinginu verður gefið yfirlit yfir öll
helstu útboð opinberra aðila á verklegum
framkvæmdum. Verktökum gefst ein
stakt tækifæri að skyggnast inn í verk
efnaboð ársins.
Nánari upplýsingar veitir Árni Jóhanns-
son í síma 591 0100, netfang, arni@si.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
UMSÓKN Íslands um inngöngu í
Evrópusambandið myndi styrkja
umsóknarferli Albana, að sögn Lul-
zim Basha, utanríkisráðherra Alban-
íu. Basha, sem er í opinberri heim-
sókn hér á landi, segir engan
ágreining um það í heimalandi sínu
að stefna beri að upptöku evrunnar.
Basha er varfærinn þegar hann er
spurður um tímasetningar í þessum
efnum en af svörum hans má ráða að
hann telji afar líklegt að Albanar
leggi fram aðildarumsókn sína í ár.
Ráðherrann vonast til að hún
verði lögð fram sem fyrst.
„Við vonumst til þess. Ég myndi
ekki miða við mars í þeim efnum, því
viðræður standa enn yfir. Við bind-
um vonir við að Tékkar, sem nú fara
með forsæti í ESB, muni taka við
umsókn okkar og leggja hana í kjöl-
farið fram innan sambandsins.“
– Er rétt með farið að þú lítir svo á
að aðildarumsókn Íslendinga myndi
styðja við inngöngu Albaníu og
Montenegro í sambandið?
Enginn myndi vísa
til stækkunarþreytu
„Ég held því ekki fram, því ég hef
ekki rétt til að dæma um það fyrir-
fram. En ef þú spyrð mig þá er svar-
ið já. Ég held að aðildarumsókn Ís-
lands væri frábærar fréttir fyrir
albanskan almenning og fyrir íbúa
suðausturhluta Evrópu, sem nú
horfa til aðildar að sambandinu.“
Enginn myndi vísa til stækkunar-
þreytu.“
– Hvers vegna?
„Þrátt fyrir þann vanda sem Ís-
land stendur frammi fyrir hefur
landið framúrskarandi orðspor á
meðal Evrópuþjóða.
Leyfðu mér að vitna til þeirra
orða hins tékkneska kollega míns
Karel Schwarzenberg, sem fer nú
fyrir Tékkum í Evrópuforsætinu, í
München fyrir fjórum dögum, að
„Við vitum öll að ef Ísland myndi
sækja um aðild myndi enginn grípa
til orðsins stækkunarþreyta“.
Þessi stækkunarþreyta er áhrif
sem við þurfum að horfast í augu við
í suðausturhluta Evrópu,“ segir
Basha og gefur því næst í skyn að í
þessum hluta álfunnar sé því ekki
alls staðar til að dreifa, líkt og hér,
að stjórnkerfið virki sem skyldi. Ým-
is atriði sem brjóti í bága við aðildar-
skilyrði sambandsins geti reynst
hindranir í suðausturhluta álfunnar.
Skoðun hans er sú að ESB þurfi á
árangursríku stækkunarferli að
halda eftir reynslu síðustu ára.
Óháð stjórnmálaafstöðu
Inntur eftir því hvort afstaðan til
evruupptöku í Albaníu fari eftir
stjórnmálaafstöðu segir Basha svo
ekki vera. Þrátt fyrir að því fylgi
ýmsir kostir fyrir smærri ríki að
hafa sjálfstæðan gjaldmiðil hafi evr-
an og sá stöðugleiki sem henni fylgir
sýnt fram á ágæti sitt.
Að mati Basha er einhliða upp-
taka evrunnar ekki fýsilegur kostur,
heldur beri að líta á evruupptöku
sem lið í samrunaferlinu við Evrópu
að lokinni inngöngu í sambandið.
Hvað varðar það sjónarmið að
jafn sterkur gjaldmiðill og evran
geti komið illa niður á útflutnings-
iðnaði ríkja sem nýlega hafa losnað
úr viðjum miðstýringar, á borð við
Albaníu, svarar Basha á þann veg að
þarlend stjórnvöld séu hlynnt opnun
markaða og frjálsri samkeppni og
óttist því ekki slík áhrif.
Albanskur almenningur myndi
fagna aðildarumsókn Íslands
Enginn ágreiningur um að stefna skuli
að evruupptöku í Albaníu á næstunni
Frá Tirana Hraðar breytingar hafa orðið í albönsku þjóðlífi á síðustu árum og hagvöxtur í landinu verið góður.
Eftir Sigtrygg Sigtryggson
sisi@mbl.is
„VIÐ sjáum engan tilgang í því að
hefja framkvæmdir við Hallsveg
fyrr en búið er að ákveða legu
Sundabrautar
alla leið upp á
Kjalarnes,“ segir
Elísabet Gísla-
dóttir, formaður
Íbúasamtaka
Grafarvogs, um
þá ákvörðun
Vegagerðarinnar
að setja Hallsveg,
frá Víkurvegi að
Vesturlandsvegi,
í matsferli.
Hún gagnrýnir að málinu skuli
vera ýtt úr vör án samráðs við sér-
stakan samráðshóp fólks úr öllum
flokkum, sem hafi haft málið til
skoðunar og hyggist gefa umsögn
fljótlega.
Elísabet segir þetta mál með
miklum ólíkindum.
„Á meðan stefnan í öðrum hverf-
um borgarinnar er að loka þeim
fyrir utanaðkomandi umferð og
svona stórum hraðbrautum eru
áform um að leggja fjögurra ak-
reina stofnbraut, sem er partur af
hringvegi landsins í gegnum Graf-
arvogshverfið, sem er friðsælt
íbúðahverfi,“ segir Elísabet.
Hún segir að þessi vegalagning
hafi komið inn í aðalskipulag
Reykjavíkur upp úr 1990 en þá hafi
forsendur verið allt aðrar. Til dæm-
is hafi hvorki Blikastaðavegur né
Víkurvegur verið til staðar og hug-
myndir um uppbyggingu íbúða-
hverfis undir Úlfarsfelli ekki verið
komnar á blað.
Mannlausar byggðir
við Úlfarsfell
„Nú hafa framkvæmdir verið
stöðvaðar í Úlfarsfellsbyggðum og
við sjáum ekki neina þörf á að
tengja okkar hverfi við íbúðahverfi
sem er nánast mannlaust og verður
það um langa hríð, miðað við stöðu
mála í þjóðfélaginu í dag.“
Hallsvegur og Úlfarsfellsvegur,
sem nú eru að fara í umhverfismat,
verða hluti af vegi sem ætlað er að
liggja allt frá Strandvegi við Gufu-
nes og upp á Suðurlandsveg. Hugs-
unin er sú að bílar sem komi af Suð-
urlandi og ætli norður eftir nýrri
Sundabraut, þurfi ekki að aka niður
í Reykjavík.
Elísabet segir að ekki komi til
greina að hafa þessa braut ofan-
jarðar í gegnum Grafarvogshverfið.
„Þessi braut verður öll að fara í
stokk, annað kemur ekki til
greina,“ segir Elísabet. Hún segir
að umferðarspár um tugþúsundir
bíla á dag miðist við að Sundabraut
sé komin í gagnið alla leið upp á
Kjalarnes. Það sé ekki á dag-
skránni um ófyrirséða framtíð.
„Við munum ekki sætta okkur
við þetta. Peningunum er betur
varið í brýnni verkefni eins og ár-
ferðið er hérna, til dæmis til að laga
frekar þær götur sem fyrir eru í
hverfinu. Það er fáránlegt að henda
milljöðrum króna í framkvæmd
sem er í andstöðu við vilja íbú-
anna.“
Elísabet hefur trú á því að íbúar
Grafarvogs séu samtaka í þessu
máli. „Það verður uppreisn ef þetta
verður keyrt í gegn.“
Mótmæla Hallsvegi
Tilgangslaust að hefja framkvæmdir fyrr en Sundabraut
verður ákveðin Gerir kröfu um að stofnbraut fari í stokk
Elísabet
Gísladóttir
Í HNOTSKURN
»Birt hefur verið frummats-skýrsla um umhverfisáhrif
af lagningu Hallsvegar og Úlf-
arsfellsvegar.
»Reikna má með að margarathugasemdir berist við
skýrsluna og gæti matsferlið
tekið 1-2 ár.
„VIÐ REYNDUM hina leiðina í fimmtíu ár, leið sem
kallaði miklar hörmungar yfir landið. Áætlunarbú-
skapur á háu stigi gaf ekki góða raun í Albaníu,“ segir
Basha þegar hann er inntur eftir því hvort Albanar hafi
tekið stefnuna til vinstri eftir fjármálahrunið í haust.
Hann bendir á að innleiðing viðskiptafrelsis sé til-
tölulega nýhafin í Albaníu og að samhliða þeirri upp-
byggingu hafi íhaldssemi fremur en áhættusækni ríkt í
bankakerfinu. Þeim vanda sem blasi við mörgum ríkj-
um, svo sem Íslandi, sé því ekki til að dreifa í landinu.
Aukið frelsi einstaklinga til viðskipta og athafna hafi
verið til mikillar blessunar fyrir þjóðina, sem muni vel
eftir yfir 80 prósentustiga atvinnuleysi ári 1992, árið
eftir fall Sovétríkjanna, þegar opinber fyrirtæki fóru á
hliðina. Pýramídakreppan svonefnda, árið 1997, þegar
fjöldi fólks missti sparifé í svikamyllum, hafi verið áfall
en einkaframtakið átt þátt í að rétta úr kútnum síðan.
„Sem Albani get ég sagt þér að það versta sem þú
getur gert er að setja traust þitt alfarið á stjórnvöld,“
segir Basha, sem bendir á að ásamt aðildarumsókn að
ESB sé innganga landsins í Atlantshafsbandalagið,
NATO, hluti af nýrri stefnu landsins.
Albanía hafi í gegnum tíðina þurft
að berjast fyrir tilverurétti sínum og
með inngöngu í bandalagið skapist
því öryggistrygging sem geri kleift
að skipuleggja mikilvæg þjóðfélags-
mál langt fram í tímann.
Til að geta færst nær vestrænni
samvinnu hafi Albanar komið á um-
bótum á mörgum sviðum. Í fyrsta
lagi með baráttu gegn skipulagðri
glæpastarfsemi, svo sem mansali og
eiturlyfjasölu, sem nú sé hart tekið á. Í öðu lagi hafi
verið reynt að uppræta spillingu og ófáir embætt-
ismennirnir verið settir á bak við lás og slá. Í þriðja lagi
hafi verið komið á umbótum í efnahagslífinu, meðal
annars með innleiðingu flatra 10 prósent skatta.
Spurður um tilefni heimsóknar hans, með hliðsjón af
núverandi sambandi Íslands og Albaníu, segir Basha að
ríkin tvö hafi enduruppgötvað hvort annað á síðustu 18
mánuðum. Albanar vilji læra af árangri Íslendinga á
sviði endurnýjanlegrar orku, vatnsmiðlunar og sjávar-
útvegs.
Hart tekið á spillingu og mansali
Lulzim Basha