Morgunblaðið - 13.02.2009, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
TIL stendur að stofna sérstakt eigna-
umsýslufélag um stór fyrirtæki með
miklar skuldir sem eiga í rekstrarerf-
iðleikum vegna þeirra. Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra sagði á
blaðamannafundi á þriðjudag að lík-
lega fengju 15 til 20 fyrirtæki þessa
meðferð.
Markmiðið með þessu er að tryggja
að eignir fyrirtækja, sem teljast sam-
félagslega nauðsynleg, verði ekki að
engu. Fyrirtæki sem undir þetta gætu
fallið, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, eru tryggingafélög, fjar-
skiptafélög og samgöngufyrirtæki.
Þar á meðal eru flugfélög og skipa-
flutningafyrirtæki, svo dæmi séu tek-
in. Þá koma einnig stærri fyrirtæki til
greina sem vegna umsvifa sinna í til-
teknum atvinnuvegum, til dæmis
verslunarrekstri eða sjávarútvegi,
geta talist samfélagslega mikilvæg.
Nauðsynlegar aðgerðir
Félögin sem skammstöfuð hafa ver-
ið AMC (Asset Management Comp-
any) munu öðru fremur vinna að því
að endurreisa og styðja við fyrirtæki
sem nauðsynleg þykja fyrir íslenskt
efnahagslíf. Á fundi með sænska efna-
hagsráðgjafanum Mats Josefsson á
þriðjudag kom fram að nauðsynlegt
væri af hálfu íslenskra stjórnvalda að
hafa hraðar hendur í þessum efnum.
Marka þyrfti stefnu, hratt og vel, svo
mögulegt yrði að koma hlutum í
framkvæmd.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur verið unnið að því
baki brotnu að undanförnu að kort-
leggja stöðu stærstu skuldara bank-
anna. Þetta hefur verið gert samfara
heildarmati á eignum og skuldum
gömlu bankanna.
Samráðsvettvangur?
Þrátt fyrir að ríkið sé eigandi nýju
bankanna þriggja, sem urðu til þegar
innlend starfsemi gömlu bankanna
var yfirtekin af Fjármálaeftirlitinu,
eru þeir keppinautar samkvæmt lög-
um. Heimir Örn Herbertsson hrl. hjá
lögmannsstofunni Lex, segir nauð-
synlegt að fara að samkeppnislögum í
þessum efnum. Það geti hins vegar
verið snúið. „Samkeppniseftirlitið lít-
ur svo á að ríkisbankarnir þrír séu
samkeppnisaðilar og þurfa því að
virða lög sem banna samráð og sam-
stilltar aðgerðir keppinauta. Hver og
einn banki getur ákveðið, ef hann hef-
ur tekið yfir fyrirtæki, og stofnað fé-
lag sem umsýsla fyrirtækis er í. Ef
hugmyndin er sú að stofna eitt félag
sem allir bankarnir setja sína stærstu
skuldara inn í, þá er verið að stofna
samráðsgrundvöll keppinauta um
starfsemi þessara fyrirtækja. Frá
sjónarmiði samkeppnislaga eru þess-
ar hugmyndir um inngrip af fyrr-
nefndu tagi verulega mikið umhugs-
unarefni,“ segir Heimir Örn.
Hann áréttar enn fremur að laga-
breytingar kunni að breyta stöðu
mála á þann veg að stofnun sérstakra
félaga kringum tiltekin fyrirtæki
þurfi ekki að fela í sér samkeppn-
islagabrot.
AÐ mörgu þarf að hyggja þegar kemur að því að setja málefni stórra
skuldara bankanna inn í sérstök eignaumsýslufélög. Líklegt er að ströng
skilyrði verði sett til þess að auka gagnsæi þegar gripið verður til þess að
setja tilteknar eignir skuldara inn í sérstök félög. Viðmælendur Morg-
unblaðsins sögðu ljóst að ýmis álitaefni gætu komið upp sem væru besta
falli „mjög óþægileg“ þegar kæmi að því að ákveða hvenær félög gætu tal-
ist í þeirri stöðu að gripið væri til sértækra aðgerða. Önnur félög sem ekki
væru í sömu stöðu ættu einnig „heimtingu á“ því að vita hvernig það gæti
samræmst eðlilegum samkeppnisviðmiðum að vernda ákveðnar eignir á
tilteknum sviðum á meðan önnur félög þyrftu að „halda áfram að berjast“,
eins og einn viðmælenda komst að orði.
Hvaða fyrirtæki fá aðstoð?
Bankar Að ýmsu þarf að hyggja þegar kemur að því að setja málefni stærstu skuldara bankanna í sérstök félög.
Stoðirnar styrktar
Fyrirtæki sem eru talin mikilvæg í efnahagslegu tilliti geta
farið í inn sérstök eignaumsýslufélög lendi þau í vanda
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags auglýsir framboðsfrest vegna
kosningar stjórnar félagsins fyrir kjörtímabilið 2009-2011.
Tillögur skulu vera um 7 stjórnarmenn til tveggja ára
samkvæmt 10. gr. laga félagsins og bráðabirgðaákvæðum um
fækkun stjórnarmanna frá aðalfundi félagsins 2008.
Listi uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs liggur frammi á
skrifstofu félagsins frá og með föstudeginum 13. febrúar 2009.
Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12.00 á
hádegi föstudaginn 20. febrúar nk.
Fylgja skulu meðmæli 120 félagsmanna.
Kjörstjórn
Eflingar-stéttarfélags
Efling-stéttarfélag
auglýsir framboðsfrest
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningar vorið 2009 fari fram 14. mars
næstkomandi.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboðsfrests
sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé
bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur staðið að
fleiri tillögum en hann má fæst kjósa í prófkjörinu.
b) Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í
kjördæminu.
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar
frambjóðendum skv. a-lið.
Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið
hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling
enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til
prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í alþingiskosningunum.
Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en sex.
Nánari upplýsingar um prófkjörið er hægt að fá hjá Skapta Erni
Ólafssyni, framkvæmdastjóra kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi, í síma 899-2200 eða með því að senda tölvupóst á
netfangið skapti@xd.is
Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og
stuttu æviágripi á tölvutæku formi, á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins,
Valhöll Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 27.
febrúar 2009.
ÓHÆTT er að segja að mörgum vegfarendum hafi brugðið
nokkuð þar sem þeir fylgdust með reglulegri björgunar-
æfingu með þyrlu á sundunum út af Sæbraut í Reykjavík í
gærdag. Nýbúið var að hífa „mannveru“ upp í þyrluna úr
gúmmíbát á hafinu fyrir neðan, þegar hún féll skyndilega út-
byrðis úr þyrlunni á ný og lenti með miklum látum og gusu-
gangi í sjónum.
Það sem fæstir áhorfendur hins vegar vissu var að mann-
veran var ekki manneskja í reynd heldur aðeins dúkka sem
notuð er til æfinga og því varð henni sem betur fer ekki meint
af fallinu eða volkinu í sjónum. Í framhaldinu var dúkkan lát-
in dúsa í sjónum í dágóða stunda eða þar til hún var veidd upp
á ný. Hún verður væntanlega klár aftur í slaginn næst þegar
æfa þarf bjarganir af sjó og lætur sér fátt um finnast þó henni
sé kastað til og frá. silja@mbl.is
Af reglubundinni björgunaræfingu með þyrlu á sundunum út af Sæbraut í Reykjavík
Morgunblaðið/RAX
Urðu skelfingu lostnir þegar „maður“ féll útbyrðis