Morgunblaðið - 13.02.2009, Side 18

Morgunblaðið - 13.02.2009, Side 18
VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109 OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16 TOPPSKÓR Á RUGLVERÐI afsláttur af öllum LLOYD herraskóm 40% Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Þau sem sýna verk sín íKaaber-húsinu eru á öll-um aldri og með mjögólíkan bakgrunn. Öll eru þau mikið áhugafólk um myndlist í víðri merkingu þess orðs. Menntun og reynsla er líka mjög ólík. Sum eru að sýna verk sín í fyrsta sinn, önnur hafa jafnvel haldið einkasýn- ingar. Sýnir verk sín í fyrsta sinn Stefán Hermannsson, húsasmíða- meistari og framkvæmdastjóri fyr- irtækis sem þjónar byggingariðn- aði, er í fyrsta sinn að taka þátt í opinberri sýningu. Hann segir að ekki hafi verið erfitt að stíga það skref að sýna verk sín. „Þetta er ákveðið framhald af því sem ég hef verið að gera og þáttur í þróuninni,“ sagði Stefán. Hann sagðist hafa byrjað að leggja stund á myndlist af einhverri alvöru fyrir 10-15 árum. Stefán hefur sótt nám- skeið í módelteikningu og fleira hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. „Þetta er ýmist hlutbundið eða óhlutbundið hjá mér. Ég hef mikið verið í andlitsmyndum undanfarið. Þetta er mikið blýantsteikningar á pappír og eins hef ég mikið notað akrýlkrít á pappír,“ sagði Stefán. Honum finnst hugtakið „frístunda- málari“ því ekki eiga beint við sig, það væri nær að kalla hann „frí- stundamyndlistarmann“. Guðlaug Magnúsdóttir bók- Frístundaverkin fyrir allra augu Morgunblaðið/Árni Sæberg Frístundamálarar Stefán Hermannsson, Guðlaug Magnúsdóttir og Björk Magnúsdóttir voru mætt með verkin sín. Sýning frístundamálara í Kaaber-húsinu við Sæ- braut verður opnuð kl. 17 í dag. Sýningin er lið- ur í Vetrarhátíð í Reykja- vík. Um 40 einstaklingar sýna þar um 200 verk. bindari hefur fengist við myndlist í frístundum frá árinu 1971, þó með löngum hléum. Hún hefur sótt nám- skeið bæði í Myndlistaskóla Reykja- víkur og einnig í Myndlistarskóla Kópavogs. „Ég fór í gegnum grunninn, teikningar og kyrralífsmyndir, og var lengi í því. Nú er ég komin í ab- strakt, stærri myndir og meiri „ak- sjón“. Aðallega nota ég olíuliti og mála stórar myndir, alveg upp í tveggja metra stórar,“ sagði Guð- laug. Hún hefur nokkrum sinnum tekið þátt í samsýningum. Guðlaugu þótti það frábær hug- mynd að halda sýningu frístunda- málara. „Það þarf að opna svona fyrir almenning. Það er svo þröngur hópur sem telst „alvöru“ listamenn en það eru svo margir sem fást við þetta í dag,“ sagði Guðlaug. Íslenskir litir, ljós og skuggar Björk Magnúsdóttir, text- ílmenntakennari í Foldaskóla, lærði fatahönnun í Danmörku og hefur starfað síðan á því sviði. Námið var fjölbreytt og m.a. kennd litafræði, listasaga og módelteikning. Björk fór að fást við myndlist árið 1991. „Ég fór að vinna á næturvöktum á Hrafnistu í Hafnarfirði og tók með mér vatnsliti í staðinn fyrir prjónana. Þar bjó ég til fyrstu myndirnar mínar. Þær voru litlar, sætar og nettar. Ég náði að láta lit- ina þorna á meðan ég var að sinna gamla fólkinu. Þannig fór ég að vinna við litina,“ sagði Björk. Björk bjó í Danmörku í 14 ár og var þar í hópi sjálfmenntaðs mynd- listarfólks sem kennir sig við Stóra- Belti. Þau héldu oft samsýningar. Björk hefur einnig sýnt hér heima, m.a. í Gallerí Lind þar sem myndir hennar voru einnig til sölu. „Ég nota mest olíuliti og mála bæði abstrakt og fígúratíft. Ég læt litina meira ráða í hvert skipti sem ég byrja á nýrri mynd og eins hvernig mér líður. Danirnir sögðu að ég væri svolítið íslensk í mótívum og að ég velji jarðliti, skugga og ljós eins og Íslendingur,“ sagði Björk. Sýning frístundamálara í Kaaber- húsinu við Sæbraut verður opin í dag kl.17.00-24.00, á morgun, laug- ardag, kl. 12.00-18.00 og á sunnudag 15. febrúar kl. 12.00-18.00. Hafdís Harðardóttir, frístundamálari og umsjónarmaður sýningar frí- stundamálara í Kaaber-húsinu, sagðist lengi hafa gengið með þá hugmynd að efna til sýningar með myndum frístundamálara. Hún sendi stjórnendum Vetrarhátíð- arinnar tillögu og þeir gripu hug- myndina og ákváðu að efna til sýn- ingar. Hafdís sagði að tæplega fjörutíu manns hefðu skráð sig til þátttöku. Engin skilyrði voru sett fyrir því að vera með í sýningunni. Hver og einn mátti skila inn allt að fimm myndum og reiknaði Hafdís með að flestir þátttakendur yrðu með þann fjölda mynda. Hún sagði að ekki yrði valið úr og vonaði að hægt yrði að hengja öll verkin upp í sýning- arsalnum. Hafdís sagði að Félag frístundamálara hefði starfað í Reykjavík á árum áður. Það hélt m.a. sýningu á Laugavegi 166 árið 1949. Þar sýndu 115 frí- stundamyndlistarmenn 410 myndir, olíumálverk, vatnslitamyndir, teikn- ingar og höggmyndir. „Ég hef sagt við fólk sem tekur þátt að það væri gaman að búa til ein- hvers konar hóp – að það kæmi eitthvað út úr þessu. Það eru svo margir að mála,“ sagði Hafdís. Margir eru að mála Hugmynd Hafdís Harðardóttir frístundamálari. Eftir Stefán Vilbergsson Föstudagurinn þrettándinærist á hræðslu fólkssem tengir hann óhöppumog margir fara helst ekki út úr húsi á þessum degi. Í dag er föstudagurinn þrettándi og í mars ber þrettánda daginn líka upp á föstudag. Það er því ærin ástæða til að fara varlega um þessar mundir, eða hvað? „Fyrir mér er föstudagurinn þrettándi gæfudagur því að þá fæddist Alma dóttir mín,“ segir Sig- urður Helgason verkefnastjóri hjá Umferðastofu. Hann segist ekki hafa greint breytingu á óhappatíðni í umferðinni á þessum degi. „Það eru þá örugglega ekki merkjanleg áhrif.“ „Við höfum ekki orðið vör við það að fá fleiri heimsóknir þennan dag en aðra daga,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir sviðsstjóri hjúkrunar á slysa- og bráðasviði Landspítala. „Það er frekar að veðrabreytingar og aðrar breytingar í umhverfinu verði til að fleiri leiti til okkar. Það er engin ástæða til að fólk haldi sig heima.“ Gríska orðið paraskevidekatria- fóbía þýðir beinlínis föstudagur, þrettán, hræðsla. Óttinn við þennan dag hefur fylgt okkur lengi og margt bendir til að hún eigi sér rót í kristninni. Kristnir hafa löngum litið föstudaga hornauga enda var Jesús krossfestur á föstudegi. Eins kom Júdas róti á síðustu kvöldmáltíðina sem þrettándi maður og hefur síðan þótt óheillamerki að sitja þrettán til borðs. Fólk lærir snemma að föstudag- urinn þrettándi sé óhappadagur og leitar svo oft að merkjum í umhverfi sínu til að staðfesta það. Þó virðist sem fátt renni stoðum undir hræðslu manna við þennan dag sem ber upp einu sinni til þrisvar á hverju ári. Hins vegar bendir ýmislegt til að slysum fækki á föstudeginum þrett- ánda. Einfaldlega af því að fólk fer varlegar en aðra daga. Ástæðulaust að halda sig heima Morgunblaðið/Þorkell Ógæfa? Hjátrúin segir að föstudag- urinn 13. sé óhappadagur – en heim- sóknum á slysadeild fjölgar ekki. Föstudagur + þrettán = hræðsla 18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Pétur Stefánsson fór með bílinn,sem hann keypti fyrir tæpu ári, á verkstæði í liðinni viku. Og komst að því að ekki borgaði sig að gera við hann. Tveimur klukku- stundum síðar hafði hann keypt sér nýjan bíl, en saknar þó enn þess gamla, eins og heyra má af eftirfar- andi kveðskap: Mig hefur lífið sárum sært, af söknuði grætur bráin. horfið er mér sem helst var kært; Hyundai-inn minn er dáinn. Hann var þýður og þægilegur með þokkalegustu vetrardekk. Ekki var til sá vondi vegur í veröld sem hann stöðvað fékk. Þó gerði hríð og grimmdarkalt, hann gekk sem klukka væri, og léttur rann um landið allt í lélegu skyggni’ og færi. Er gaf ég í var aflið slíkt að uppí hundrað rauk’ann. Ef bjart var veður og blíðuríkt bónaði ég og strauk’ann. Sit ég hér með sorg í hjarta, sárindin þykja engu lík. – Nú fer ég inn í framtíð bjarta á franskri Renault Clio tík. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Erfiljóð um gamlan bíl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.