Morgunblaðið - 13.02.2009, Side 25

Morgunblaðið - 13.02.2009, Side 25
Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Salurinn í Kópavogi fimmtudaginn 19. febrúar Magnús Eiríksson og Ellen Kristjánsdóttir Salurinn í Kópavogi fimmtudaginn 26. febrúar Magnús Þór Sigmundsson og Stefán Hilmarsson Salurinn í Kópavogi fimmtudaginn 5. mars Valgeir Guðjónsson og Páll Óskar Hjálmtýrsson Græni hatturinn Akureyri 14. mars - Magnús Þór Sigmundsson 15. mars - Magnús Eiríksson Salurinn í Kópavogi Tími: Allir tónleikarnir hefjast kl. 20:30 Miðasala: www.miði.is og www.salurinn.is og við innganginn ef ekki er uppselt Miðaverð: 2.900 kr. á hverja tónleika 7.500 á alla tónleikana Nánari upplýsingar: www.prime.is / prime@prime.is og í síma 534 4000 á milli 10-16 Græni Hatturinn Akureyri Tími: Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20:30 Miðasala: www.miði.is og við innganginn ef ekki er uppselt. Eingöngu verða seldir 130 miðar á hverja tónleika Miðaverð: 2.500 kr. á annað kvöldið 4.500 á bæði kvöldin Nánari upplýsingar: www.prime.is / prime@prime.is og í síma 534 4000 á milli 10-16 Fyrsti gestur Jóns er enginn annar en Magnús Eiríksson sem hefur samið ótal lög og texta sem íslenska þjóðin hefur tekið upp á arma sína. Lög eins og Hudson Bay, Ómissandi fólk, Reyndu aftur, Garún og Ó þú eru bara nokkur dæmi. Magnús mætir með gítarinn og saman flytja þeir félagarnir þekktustu lög Magnúsar og spjalla þess á milli. Sérstakur gestur þetta kvöld er Ellen Kristjánsdóttir sem hefur sungið mörg laga Magnúsar inn á plötur og gert að sínum. Magnús Þór Sigmundsson er annar gestur Jóns. Þar á ferðinni einn okkar hæfasti laga- og textahöfundur. Ísland er land þitt, Blue Jean Queen, Dag sem dimma nátt og Ást eru til að mynda allt lög eftir Magnús Þór. Þessi magnaði tónlistamaður fer í gegnum lagabunkann með Jóni og segir sögurnar á bak við lögin. Sérstakur gestur þetta kvöld er Stefán Hilmarsson og saman flytja félagarnir lög úr smiðu Sigmundssonar. Þriðji aðalgestur Jóns er Valgeir Guðjónsson oft kenndur við Spilverk þjóðanna og Stuðmenn. Sérstakur gestur hans verður Páll Óskar Hjálmtýsson. Hér mætast menn tveggja kynslóða, alls óskyldir en með rótsterka tengingu. Valgeir er sagnamaður mikill og hefur sett saman tugi laga og texta sem flestir kunna utan að. Það verður spennandi að fylgjast með endurfundum þessara frábæru listamanna sem eru landsþekktir fyrir létta lund og óbeislaða sviðsframkomu. ÚR öskunni í stórveldi er sú framtíðarsýn sem við eig- um nú að setja okkur sem framtíðarmarkmið Íslands. Í gegnum alla mannkynssöguna hafa þjóðir lifað sín blóma- skeið, þegar þær hafa átt það sem alla aðra vantar, sem í dag er orka, vatn og matur. En þá lifum við í kreppu- ástandi. Sú framtíðarsýn sem ég tel vænlegasta fyrir íslensku þjóðina er ríkjasamband með Noregi. Með þeim hætti höldum við forræði yfir þeim málum sem við viljum ekki missa en losnum við þá málaflokka sem okkur hefur reynst erfitt að standa ein fyrir. Í ríkjasambandi með Noregi höldum við for- ræði yfir sjávarútvegi og landbúnaði en losum okkur við utanríkismál og peningamálastjórnun. Norðmenn sjá þá um öll sendiráð (engin spilling með stöður sendiherra) og þeir sjá um seðla- bankann og fjármálaeftirlitið. Við notum þá norsku krónuna. Loftrýmisgæsla verður þá í höndum Norðmanna og varnarmál. Mér hefur alltaf fundist að hvorki Færeyingar né Grænlendingar eigi samleið með Dönum held- ur fari hagsmunir þeirra, Íslendinga og Norð- manna miklu betur saman utan ESB. Í Atlants- hafi eru tveir þorskstofnar, annar þolir upp í 8° hitastig en hinn upp í 12°. Stór hluti þorskstofns- ins við Færeyjar er 8° stofninn, sem með áfram- haldandi hlýnun færir sig norðar. Hlýnunin er því ógn við Færeyinga. Það er því einboðið að bjóða Færeyingum og Grænlendingum aðild að ríkjasambandi með Ís- landi og Noregi. Þannig komum við á fót stórveldi með gíf- urlegar orkuauðlindir í olíu, fallvötnum og jarð- varma. Það verður stórfenglega víðfeðmt haf- svæði á Norður-Atlantshafinu sem tilheyrir slíku ríkjasambandi, enda þörf í nánustu framtíð fyrir stóraukið eftirlit með siglingum. Það lá t.d. rúss- neskt flutningaskip í vari við Reykjanesið hlaðið geislavirku úraníum núna um daginn, ef þessi dallur hefði strandað hefði lífsafkoma Íslendinga hrunið. Það er engin spurning að þetta ríkjasamband yrði heimsveldi, sem hefði með höndum stjórnun siglinga þegar siglingaleiðin opnast um Norður- Íshafið. Nú er tíminn upprunninn, vinnuheitið fyrir verkefnið gæti verið titillinn. ABS-bremsur hafa að minnsta kosti reynst vel í bílum. Nýtt ríkjasamband við Norður-Atlantshaf Friðbjörn Níelsson, kaupmaður í Keflavík. VINSTRI grænir og fleiri heimta kosningar til að komast í stjórn en yrði það til góðs fyrir þjóðina? Það er nú að bera í bakka- fullan lækinn að tala um að Íslendingar hafi eitt- hvert val, við erum ofurseldir lán- ardrottnum. Sjávarútvegurinn skuldar þrefalda ársframleiðslu greinarinnar sem gerir hann í raun gjaldþrota. Erlendir bankar geta yfirtekið öll sjávarútvegsfyrirtæki landsins með því að gjaldfella lánin án þess að við getum gert nokkuð í því. Aðrar skuldir þjóðarinnar eru um 1.800 milljarðar sem við ráðum engan veginn við án utanaðkomandi aðstoðar. Gera menn sér grein fyrir hvað skeður ef öll þessi lán yrðu gjaldfelld, þá skipti engu máli hver væri við stjórnvölinn. Líkur eru á að það verði gert ef hér kemur kommúnistastjórn undir forystu SJS. Ástæðan er að hinn alþjóðlegi fjármálamarkaður treystir ekki kommúnistastjórnum því þær enda alltaf í einræði, jafn vel einangrun þjóða (sjá Rússland, Kína, Kúbu og Norður-Kóreu.) Hann gæti haldið að sér höndum með skelfilegum af- leiðingum fyrir íslenska þjóð. Stað- reyndin er sú að íslenskt þjóðfélag er gjaldþrota, spurningin er aðeins sú hvernig við verðum gerð upp af lánardrottnum. Það er erfitt að þurfa að kyngja þessu en svona er staðan í raun. Engin ríkisstjórn, sama hvaða flokkur er, jafnvel ekki vinstrimenn, getur bjargað okkur út úr þessu án þess að fara á skelj- arnar og biðja kröfuhafa miskunnar því tekjur okkar nú duga rétt fyrir vöxtum af öllum skuldunum að frá- dregnum rekstri þjóðarbúsins. Við gætum þurft að standa frammi fyr- ir því að tekjuafgangur sjáv- arútvegsins rétt dygði fyrir afborg- unum og vöxtum af lánum greinarinnar vegna minnkandi sölu og lækkunar á erlendum mörk- uðum. Álverð getur komist á það stig að það standi ekki undir fram- leiðslukostnaði vegna heimskrepp- unnar. Verðið hefur hríðfallið svo óvíst er um tekjur þar. Því væri gagnlegt að fá svar við því hvar vinstrimenn ætla að fá fé til að standa undir rekstri þjóðarbúsins og greiða þær skuldir sem við erum búnir að koma okkur í án aðkomu AGS. Járnblendið er að framleiða á lager núna og ef salan verður eins og hún er getur tekið mörg ár að selja þann lager, einskis gjaldeyris er að vænta þaðan nema fyrir rekstri meðan hann er í gangi. Halda menn að Norðmenn eða aðrir séu tilbúnir að lána gjaldþrota þjóð? Munduð þið lána þeim pen- inga sem væri gjaldþrota og tekjur hans dygðu ekki fyrir núverandi skuldum. Ekki ef þið væntuð end- urgreiðslu á láninu. Því fyrr sem við áttum okkur á þessu og samein- umst um lausn vandans án flokka- drátta, því þeir eiga ekki við núna, eru meiri líkur á að við komumst standandi út úr þessu. Það er ekki vinstri-, hægri- eða miðjumanna að leysa þann vanda sem við erum komin í, öll þjóðin verður að leggj- ast á eitt til lausnar á aðsteðjandi vanda, það þarf að kalla til alla málsmetandi menn erlenda sem innlenda ef lausn á að finnast svo vel fari til framtíðar. Er það til góðs fyrir þjóðina að fara út í kosningar og hafa landið hálfstjórnlaus fram á sumar? Ég held ekki, nema að mynduð verði þjóðstjórn á meðan. Ætlum við að láta komandi kynslóðir framtíð- arinnar minnast okkar með því að segja að öll þjóðin hafi lagst á eitt í þessari kreppu til að leysa hana, eða eigum við að láta minnast okkar fyrir sundrung og ósamstöðu sem bitnaði á þeim. Það er komið að okkur að velja hvor leiðin skuli farin. Lárus Stefán Ingibergsson, umsjónamaður. Kosningar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.