Morgunblaðið - 13.02.2009, Síða 38
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
LJÓÐASLAMM fer fram á
Borgarbókasafni Reykjavíkur
í kvöld kl. 20 í aðalsafninu að
Tryggvagötu 15. Slammið er
ætlað ungu fólki og viðfangs-
efnið er hrollur. Ljóðaslamm
er einskonar ljóðagjörningur
og er áherslan ekki síður lögð á
flutninginn en á ljóðið sjálft.
Þátttakendur eru á aldrinum
14 til 29 ára og verða ellefu at-
riði flutt, bæði af ein-
staklingum og hópum.
Fimm manna dómnefnd velur þrjú bestu atriðin
og kynnir kvöldins er Ragnheiður Eiríksdóttir.
Ljóðaslamm er hluti af dagskrá Safnanætur á
Vetrarhátíð í Reykjavík.
Bókmenntir
Ljóðaslamm
á Safnanótt
Halldóra vann
Ljóðaslamm 2008.
LEIRLISTAKONAN Mar-
grét Jónsdóttir heldur erindi í
Ketilhúsinu á Akureyri í dag
kl. 14.50. Erindið nefnist
„Handverkið í listinni og listin í
handverkinu“ og fjallar hún í
því um mikilvægi handverksins
í eigin listaverkum og listina
sem oft birtist í handverkinu.
Um þessar mundir heldur
Listasafnið á Akureyri sýningu
á verkum Margrétar.
Fyrirlesturinn er skipulagður af kennurum á
listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri í
samvinnu við Listasafnið á Akureyri og Menning-
armiðstöðvarinnar í Grófargili. Fyrirlesturinn er
opinn öllum og enginn aðgangseyrir
Fyrirlestur
Erindi um hand-
verkið í listinni
Margrét
Jónsdóttir
MIÐSTÖÐ munnlegrar sögu
hefur staðið fyrir söfnun svo-
kallaðra kreppusagna frá því í
byrjun október síðastliðins. Nú
á Vetrarhátíð í Reykjavík um
helgina býður miðstöðin fólki
að koma í heimsókn í lítið garð-
hús sem komið verður fyrir á
Glasgowtorgi við Fischersund.
Þar verða starfsmenn með
tæki til hljóðupptöku og hægt
verður að líta inn og þiggja
kakósopa og segja reynslusögur úr kreppunni.
Gestir Vetrarhátíðar fá með þessum hætti tæki-
færi til að taka þátt í að skapa heimildir sem eru
hluti af menningarsögu landsins. Allir þátttak-
endur fá sendan geisladisk með sinni sögu.
Munnleg geymd
Safna kreppusög-
um á Vetrarhátíð
Segja má sögur
af mótmælum.
EITT sinn stóðu þau saman á sviði
Íslensku óperunnar. Þá söng Sigríður
móður Ólafs en Hulda konu hans og
Snorri gaf skötuhjúin saman.
Þetta eru söngvararnir fjórir sem
syngja saman á Óperutónleikum, eða
óperugala, í Salnum á morgun kl. 17.
Söngvararnir eru Sigríður Að-
alsteinsdóttir mezzósópran, Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran, Snorri
Wium tenor og Ólafur Kjartan Sig-
urðarson bariton. Óperan sem þau
sungu saman í var Brúðkaup Fígarós.
Píanóleikari með þeim verður Helga
Bryndís Magnúsdóttir.
Þau kalla tónleikana Töfratónleika
í Tíbrá og eins og við mátti búast ætla
fimmmenningarnir að töfra fram at-
riði úr alþekktum óperum, aríur, dú-
etta, tríó og kvartetta. Og viðbúið að
þau töfri áheyrendur líka, öll mikils-
metnir söngvarar, og efnisskráin það
sem kalla má algjört gúmmelaði.
Lítill bleikur hattur á kodda
Þau ætla að byrja á kvartetti úr
Fidelio eftir Beethoven, einu alvöru
óperu tónskáldsins. Þá koma stór-
númerin á færibandi. „Donda lieta
usci“ úr La bohéme eftir Puccini er
sungin af Mímí og á sér þá forsögu að
kærastinn, Rodolfo, ætlar að slíta sig
frá Mímí, sem er dauðvona af berkl-
um og Rodolfo treystir sér ekki til að
horfa upp á hana deyja og kveðst vilja
slíta sambandinu vegna þess að hún
sé alltaf að daðra við aðra menn. Við
vitum að þetta er handónýt og ósönn
ástæða hjá Rodolfo. Í aríunni syngur
Mímí til hans og biður hann að skila
öllu til sín sem hún hefur lagt frá sér í
íbúðinni hans, en ef hann finni lítinn
bleikan hatt á koddanum sínum, megi
hann eiga hann til minningar um
hana. Hulda Björk syngur; þetta er
auðvitað skelfilega súrsætt, en arían
er ein sú fallegasta sem Puccini
samdi. Snorri syngur „É la solita
storia“ úr Stúlkunni frá Arles eftir
Cilea, Sigríður „Parto, parto“ úr
Mildi Títós eftir Mozart og Ólafur
Kjartan „Eri tu“ úr Grímudansleik
eftir Verdi. Allt eru þetta stórir
smellir.
Dúettinn úr Lakmé eftir Delibes
sem konurnar syngja er enn ein lysti-
semdin og ekki er dúettinn úr Perlu-
köfurunum sem karlarnir syngja síð-
ur vinsæll.
Þau halda áfram með glæsinúm-
erin og enda á Bella figlia dell’amore,
kvartettnum glæsilega úr Rigoletto.
begga@mbl.is
Töfrar og Perlur óperunnar
Mikil óperuhelgi framundan Óperugala í Salnum í Kópavogi Sýningin
Óperuperlur í Íslensku óperunni Sjö söngvarar á sviði og tveir píanóleikarar
Perlur Sigríður Aðalsteinsdóttir og Ágúst Ólafsson syngja saman.
Sýningar eru á dagskrá í kvöld, 13. febrúar, svo 21. febrúar og 1. mars.
VETRARHÁTÍÐ hefst í dag með alls kyns list-
viðburðum og uppákomum í höfuðborginni.
Strax eftir opnun hátíðarinnar kl. 19 í Fóg-
etagarðinum verður gestum boðið í fortíð-
arflakk í Grjótaþorpinu. Þorpið er elsti hluti
Reykjavíkur og þar er sagan bundin við hvern
stein og hverja fjöl. Með aðstoð lýsingar, hljóða,
kvikmynda og leiklistar hverfur Grjótaþorpið
aftur til 19. aldar og borgarbúar eru hvattir til
þess að mæta í fornum klæðum.
Með Vetrarhátíð hefst einnig Safnanótt og öll
söfn borgarinnar verða opin langt fram á kvöld.
Meðal safna sem bjóða upp á forvitnilegar sýn-
ingar er Leikminjasafnið sem fræðir gesti og
gangandi um vöggu leiklistarinnar á Íslandi - í
Kvosinni, þar sem fyrstu leiksýningarnar fóru
fram á 18. og 19. öld, fyrstu leikhúsin voru reist
og fyrstu stjörnur leiksviðsins komu fram. Sýn-
ingin hefst í morgunsárið, kl. 9, og er í Fógeta-
stofunni, Aðalstræti.
Leikbrúðuhátíðin í Ráðhúsinu hefst einnig
snemma, eða nú kl. 10, en þar verða sýndar
leikbrúður, gamlar og nýjar og leikið.
Í Nýlistasafninu verða tónleikar kl. 20.30, þar
sem Íslenski hljóðakórinn frumflytur ný verk
eftir Magnús Pálsson og stjórnandann, Hörð
Bragason.
Dagskrá morgundagsins á Vetrarhátíð er
jafn margslungin og fjölbreytt. Frá hádegi tek-
ur starfsfólk Kraums á móti gestum með heitt
kaffi á könnunni en þar má kynnast og nálgast
hönnun um hundrað íslenskra hönnuða. Það
verður varla hljóðlaus samkoma, því milli 14 og
15 spilar Jóel Pálsson djassmúsíkant af fingr-
um fram.
Þeir sem hafa áhuga á fuglum fá sannarlega
eitthvað við sitt hæfi, því Fuglaverndarfélag Ís-
lands opnar sýninguna Fagurt galaði fuglinn sá
kl. 13 í safnaðarheimili Dómkirkjunnar við hlið-
ina á Iðnó. Þar verða einstakar ljósmyndir af ís-
lensku fuglalífi. Sýningin verður gædd lífi með
líflegum fuglahljóðum úr gamalkunnum dag-
skrárlið RÚV, Fugli dagsins.
Frostrósir á skautum er yfirskrift sýningar
skautahópsins Frostrósa sem verður í Egilshöll
kl. 16 á morgun. Frostrósirnar eru sérhæfðar í
samhæfðum skautadansi, en félagar í skauta-
félaginu Birninum sýna líka listhlaup á skaut-
um. Þá sýna listhlaupadeildir Skautafélags
Reykjavíkur, Norðurljósin, dans á ís í Skauta-
höllinni kl. 19. Kærleiksganga með kærleiks-
söng hefst svo á Austurvelli kl. 18.
Nánar um dagskrána á vef Vetrarhátíðar.
Tugir viðburða
á Vetrarhátíð
ÞJÓÐARSAFNIÐ í Írak verður opn-
að aftur í þessum mánuði, eftir end-
urnýjun vegna skemmda og hörm-
unga sem stríðið í landinu leiddi yfir
það. Á safninu eru ómetanlegar forn-
minjar, en til forna var mikið menn-
ingarríki í Mesópótamíu, landinu milli
ánna Evfrat og Tígris, og þar stóð
borgríkið forna, Babýlon.
Opnun safnsins er sögð marka ný
tímamót í sögu þess þar sem yfirvöld
fólu því það erfiða verk að gæta
þeirra staða í landinu þar sem minjar
eru, og jafnframt að ná aftur munum
og minjum sem hurfu í stríðinu. Qaht-
an al-Jibouri, ráðherra ferðamála og
fornminja í Írak, segir að stjórnvöld
hafi lagt allt í sölurnar til að vernda
fornminjarnar og hafi nú nánast
byggt innviði safnsins upp á nýtt.
Safnið, sem er í Bagdad, hefur fengið
í sína þjónustu sérstaka sérsveit sem
sinna mun því verki að gæta forn-
leifasvæða víðs vegar um landið, og
muna á safninu, en það er forsæt-
isráðuneytið sem borgar brúsann og
rekur nýju fornminjasveitina.
Fornminjar
sýndar á ný
Minjar Endurheimtir forngripir.
FÉLAG fagfólks
á skólasöfnum
hefur tilnefnt
bókina Drauga-
slóð eftir Kristínu
Helgu Gunn-
arsdóttur til
Norrænu barna-
bókaverðlaun-
anna 2009. Verð-
launin, sem eru
veitt af Nordisk
skolebibliotekarforening, hafa verið
veitt árlega frá 1985 en sú breyting
hefur orðið á að nú eru þau pen-
ingaverðlaun og veitt annað hvert
ár. Verðlaunin verða afhent á ráð-
stefnu Nordisk skolebibliotekarfor-
ening í Finnlandi næsta haust.
Draugaslóð
tilnefnd
Kristín Helga
Gunnarsdóttir
Myndlistarmaðurinn Erlingur Jón Valgarðs-
son, Elli, opnar einkasýningu á Vetrarhátíð í
Sjónlistamiðstöð Korpúlfsstaða á morgun,
laugardaginn 14. febrúar, kl. 13. Á sýning-
unni, sem listamaðurinn kallar Hugverur,
eru málverk af kynlausum mannverum sem
endurspegla hugsun og tjáningu.
Erlingur er menntaður frá Myndlist-
arskólanum á Akureyri og stundaði nám í
málun hjá Rafael Lopes í Svíþjóð og list-
nám við Haraldsboskolan.
Vinnustofur listamanna á Korpúlfs-
stöðum og nokkrar einkavinnustofur víðs-
vegar um borgina verða opnar almenningi á
morgun milli kl. 13 og 17. Auk einkasýn-
ingar Erlings verða gangar Korpúlfsstaða
skreyttir með verkum eftir listamenn húss-
ins.
Sýningin Erlings er opin laugardag og
sunnudag frá kl. 13 til 17.
Hugverur á Korpúlfsstöðum
Hugvera Eitt verka Erlings.
vetrarhatid.is
Útvarp er miðill 21.
aldarinnar, þar starfar
granna og fallega fólkið 40
»
Íslenska óperan tekur forskot á
óperuhelgina, því í kvöld kemur
aftur á svið sýningin Óperuperlur
sem fyrst var sett upp í fyrra, en
færri en vildu náðu að sjá vegna
þess hve sýningar þá voru fáar.
Í Óperuperlunum eru flutt svið-
sett atriði úr yfir tuttugu óperum,
meðal annars eftir Mozart, Verdi,
Bizet, Donizetti, Puccini, Rossini
og Wagner auk söngleikja- og
óperettuatriða eftir Gershwin,
Bernstein og Lehár. Atriðin eru
tengd saman og samtvinnuð í leik
og glensi, en það er óperustjórinn,
Stefán Baldursson, sem er leik-
stjóri sýningarinnar.
Söngvararnir eru Ágúst Ólafs-
son, sem var lengi vel fastráðinn
við Óperuna, Bjarni Thor Krist-
insson, einn af okkar fremstu
bassasöngvurum, Sigríður Að-
alsteinsdóttir sem sungið hefur
víða hér heima og erlendis og Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, sem þarf tæp-
ast að kynna fyrir Íslendingum.
Antonía Hevesi leikur með þeim á
píanó.
Óperuperlur í
Íslensku óperunni