Morgunblaðið - 13.02.2009, Side 48
ÞAÐ komu óhjákvæmilega á aura-
teljara brosviprur þegar hann
frétti að það kostaði heilar 3.400
krónur fyrir fullorðið fólk að baða
sig í Bláa lóninu. Lækningar-
máttur lónsins hefur löngum verið
talinn mikill en fyrr má nú vera.
Verðið er reyndar komið niður í
3.000 kr., mögulega vegna heitrar
umræðu um verðlagið.
Íslendingar eru temmilega sund-
óðir og best búnu sundlaugar geta
hæglega vegið upp á móti vatninu
helga á Suðurnesjum en verðlag
þar er oftast í kringum 350-
kallinn.
Ódýrasti kosturinn í þessum
efnum er þó allt um kring. Sjóböð
hafa verið í nokkurri tísku að
undanförnu og þeir sem þau
stunda ræða gjarnan um þau
mögnuðu áhrif sem slíkir sprettir
hafa á líkama og sál. Lækningar-
mátturinn sé mikill – og um leið
algerlega ókeypis. arnart@mbl.is
Auratal
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ábyrgðarfullur
Forystugrein: Tímabundin
afskipti
Pistill: Friendska
Ljósvaki: Þú færð það
í Harðviðarvali
Á fleygiferð í heila öld
Nýtt ú́tlit en hóflega breyttur kjarni
VW boðar Touareg-tvinnbíl
BÍLAR »
3
$
4)& .
)+
567789:
&;<97:=>&?@=5
A8=858567789:
5B=&A)A9C=8
=69&A)A9C=8
&D=&A)A9C=8
&2:&&=%)E98=A:
F8?8=&A;)F<=
&59
<298
-<G87><=>:,2:G&A:?;826>)H9B=>
" "I
I I
"I I
I"
>
!
)) %). ) I""
" "I
I I
"I
"
I
-
A1 &
I
" I
"I
I I
"I"
I
Heitast 6°C | Kaldast 1°C
A og SA 8-15 m/s og
rigning, en sums stað-
ar talsverð rigning.
Skýjað og úrkomulítið
fyrir norðan. »10
Það er hægt að lýsa
borgir á fleiri vegu
en með þráðbeinum
ljósastaurum. Berg-
þóra Jónsdóttir
komst að því. »39
HÖNNUN»
Flott borg-
arlýsing
ÍSLENSKUR AÐALL»
Einar Þorsteinsson velur
erfiðari leiðina. »40
Birgir Örn Stein-
arsson veltir fyrir
sér hvort bylgja af
pólitískri tónlist
gangi yfir í kjölfar
kreppunnar. »41
AF LISTUM»
Nýir bar-
áttusöngvar
TÓNLIST»
Bárujárn blandar ólíkum
stílum saman. »45
FJÖLMIÐLAR»
Eva og Ragnhildur eru
andlegar systur. »40
Menning
VEÐUR»
1. „Aldrei kynnst eins miklum …“
2. Læknar sem vinna miklu hraðar
3. Lést eftir að hafa drukkið …
4. Föst í of lítilli íbúð
Íslenska krónan styrktist um 0,8%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
EYJAMENN, sem greiða tugmillj-
ónir árlega í ferðakostnað íþróttaliða
sinna, sjá fram á enn erfiðari tíma
vegna aðhaldsaðgerða hjá sam-
gönguráðuneytinu því frá og með 1.
apríl verður flugvellinum í Vest-
mannaeyjum lokað snemma á kvöld-
in. Þar með geta þeir væntanlega
ekki snúið aftur heim að kvöldi eftir
leiki á meginlandinu. „Ég sé ekki bet-
ur en að við verðum að spila í hádeg-
inu,“ sagði Friðbjörn Ó. Valtýsson,
framkvæmdastjóri ÍBV. | Íþróttir
„Sé ekki betur en að við
verðum að spila í hádeginu“
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Eyjamenn Sjá fram á erfiða tíma
vegna kvöldlokunarinnar.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
STEFNT er að því að smíðuð verði
víkingaskip í Víkingaheimum við
Naust Íslendings á Njarðvík-
urfitjum í sumar. Viðræður standa
yfir við framleiðendur vík-
ingakvikmyndar um smíði tveggja
langskipa, eins og Íslendings. Skipa-
smíðin yrði jafnframt aðdráttarafl
fyrir gesti safnsins.
Búið er að byggja hús yfir vík-
ingasafnið í Reykjanesbæ og hafin
vinna við að setja upp víkingasýn-
ingu þar sem Íslendingur er í aðal-
hlutverki. Við sýninguna eru notaðir
munir frá víkingasýningu Smith-
sonian-stofnunarinnar sem sett var
upp í Washington árið 2000 og fór til
fimm annarra borga í Bandaríkj-
unum og Kanada. Sýningin verður
opnuð í maí.
Þekking Gunnars nýtist vel
Gunnar Marel Eggertsson smíð-
aði Íslending, sigldi honum til Am-
eríku árið 2000 og hefur alla tíð fylgt
honum eftir. Hann hefur lengi haft
áhuga á því að smíða knörr. Stefnt
hefur verið að því að ráðast í það
verkefni í sumar. Nú hefur það kom-
ið upp að fyrirtækið sem framleiðir
væntanlega víkingamynd Baltasars
Kormáks kvikmyndaleikstjóra hefur
sýnt áhuga á að láta smíða tvö lang-
skip til að nota við kvikmyndatökur
og ef til vill fleiri leikmuni. Einar
Bárðarson, verkefnisstjóri vík-
ingasafnsins, segir smíði skipanna
skemmtilegt verkefni þar sem þekk-
ing Gunnars Marels myndi nýtast
vel. „Við treystum okkur vel til þess
að gera þetta,“ segir Einar.
Skipasmíðastöðin yrði í garðinum
við Naust Íslendings þar sem fyr-
irhugað er að koma upp lifandi vík-
ingagarði. Smíði skipanna fellur vel
að þeirri hugmynd og telur Einar að
starfsemin muni draga að gesti.
Þá yrði þetta atvinnuskapandi
verkefni sem ekki veitir af vegna
þess mikla atvinnuleysis sem er á
Suðurnesjum. Ráða þarf 8 til 14
handverksmenn til smíðinnar.
Elisabeth Ward, sem var aðstoð-
arsýningarstjóri við víkingasýningu
Smithsonian, setur upp sýninguna í
víkingasafninu. Hún er af íslenskum
ættum og er að ljúka doktorsritgerð
um víkingatímann.
Lögð er áhersla á skipasmíðar og
siglingar við uppsetningu sýning-
arinnar. „Víkingaskipið er mik-
ilvægt. Ef ekki væri fyrir þau, hefðu
engir víkingar orðið til,“ segir El-
isabeth. Sagt er frá landnámi nor-
rænna manna á eyjunum í Norður-
Atlantshafi og siglingum þeirra til
Ameríku. Einnig er fjallað um mik-
ilvægi skipanna í hernaði, verslun og
trúarbrögðum, eins og til dæmis
kemur fram í því að fornmenn létu
heygja sig í bátum. Vitaskuld er
fjallað um smíði Íslendings og sigl-
ingu Gunnars Marels á skipinu vest-
ur um haf árið 2000. Verið er að gera
heimildarmynd um það afrek.
Líf færist í Víkingaheima í Reykjanesbæ í maí þegar sýning verður opnuð
Hyggjast smíða
tvö langskip í
víkingagarðinum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Víkingar Gunnar Marel Eggertsson, Elisabeth Ward og Einar Bárðarson
vinna við að koma upp víkingasýningu í Nausti Íslendings í Njarðvík.
Yrðu hluti leikmyndar fyrirhugaðrar
víkingamyndar Baltasars Kormáks
Skoðanir
fólksins
’Til að virkja kortin þurfa hand-hafar augljóslega að kaupa flugeða skipsfar til Íslands, borða og nýtaíslensk þjónustufyrirtæki meðan ádvöl stendur þannig að afleiddar
tekjur ríkisins verða gríðarlegar. » 24
KARL RÚNAR SIGURBJÖRNSSON
’Tökum höndum saman um aðhalda gömlu flokkapólitíkinni ogþeirra klíkum frá því verki. Það er til nógaf öðru fólki í landinu sem hefur hug-myndir, sanngirni og lýðræðislega sýn
til framtíðar. Gefum stirðnaðri flokka-
pólitík frí frá stjórnlagaþingi. » 24
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
’Við höfum verið óupplýst um eðlikapítalismans. Þeirri þekkinguhefur verið haldið frá okkur og þegarvið stöndum frammi fyrir veru-leikanum eftir að hafa verið leidd í
blindni áratugum saman bregðumst
við reið við. » 24
SIGURJÓN BJARNASON
’Erlendir bankar geta yfirtekið öllsjávarútvegsfyrirtæki landsinsmeð því að gjaldfella lánin án þess aðvið getum gert nokkuð í því. Aðrarskuldir þjóðarinnar eru um 1.800 millj-
arðar sem við ráðum engan veginn við
án utanaðkomandi aðstoðar. » 25
LÁRUS STEFÁN INGIBERGSSON
’Sú framtíðarsýn sem ég tel væn-legasta fyrir íslensku þjóðina erríkjasamband með Noregi. Með þeimhætti höldum við forræði yfir þeim mál-um sem við viljum ekki missa en losn-
um við þá málaflokka sem okkur hefur
reynst erfitt að standa ein fyrir. » 25
FRIÐBJÖRN NÍELSSON