Morgunblaðið - 18.04.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞRJÁTÍU ár eru liðin síðan þing var síðast rofið fyrir
mitt kjörtímabil og aldrei hefur Alþingi setið að störfum
jafn nærri alþingiskosningum og nú hefur orðið. Þetta
sagði Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, þegar
þingfundum var frestað í gærkvöldi. „Það er því ljóst að
þetta þing mun eiga sinn sess í sögubókum,“ sagði hann.
Alls voru afgreidd 100 frumvörp sem lög og 13 þings-
ályktunartillögur á þinginu. Guðbjartur sagði að á tíma-
bilinu eftir að minnihlutastjórnin tók við völdum hefðu
fleiri nefndar- og þingmannafrumvörp verið afgreidd en
sést hefði um árabil, 17 nefndarfrumvörp og 5 þing-
mannafrumvörp. Guðbjartur þakkaði sérstaklega Sturlu
Böðvarssyni, fyrrverandi forseta Alþingis, fyrir sam-
starfið, en Sturla býður sig ekki fram aftur. Hann óskaði
einnig Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur góðs bata í veik-
indum sínum. Einnig nefndi hann nokkra fyrrverandi
ráðherra sem hverfa af þingi, þá Árna M. Mathiesen,
Björn Bjarnason og Magnús Stefánsson og fjölmarga
þingmenn sem ekki sækjast eftir endurkjöri.
Búast má við verulegri endurnýjun
Fram kom í máli Guðbjarts að margt bendi til að veru-
leg endurnýjun verði á þinginu eftir þær kosningar sem
nú fara í hönd. Gera megi ráð fyrir að meira en helmingur
þingmanna á næsta þingi eigi að baki tveggja ára þing-
reynslu eða skemmri. omfr@mbl.is
100 frumvörp voru sam-
þykkt sem lög á þinginu
STJÓRNENDUR Háskólans á Ak-
ureyri (HA) hafa kynnt háskólaráði
áætlun um aukið framboð sum-
arnáms. Rætt er
við menntamála-
ráðuneytið um
fjármögnun.
Í áætlun Há-
skólans er gert
ráð fyrir 32 nám-
skeiðum í sumar,
samtals 210 ein-
ingar. Auk þess
er nemendum
boðið að taka próf
í samtals 150 námskeiðum í ágúst. Í
mörgum tilvikum þurfa nemendur
að hafa setið námskeið til að öðlast
rétt til próftöku.
Sex námskeið við viðskiptaskor
Fram kemur í tilkynningu HA að í
viðskiptaskor verður boðið upp á
kennslu í sex námskeiðum í sumar.
Þau eru í samvinnu við viðskipta-
deild Háskóla Íslands og geta nem-
endur deildanna sótt námskeið í
hvorri deild sem er. Kennsla verður
með fjarnámsfyrirkomulagi.
Í raunvísindum eru átta nám-
skeið, lesnámskeið ýmist með fjar-
kennslusniði eða með verklegum æf-
ingum. Fjögur námskeið eru í
félagsvísindum, kennd á staðnum.
Eitt námskeið er í boði í kennara-
námi, grunnnám í fjarkennslu. Þá
stendur nemendum til boða meist-
aranám í haf- og strandsvæða-
stjórnun hjá Háskólasetri Vest-
fjarða. helgi@mbl.is
Áætlun um
32 sumar-
námskeið
HA Íslandsklukkan
er tákn háskólans.
HA ræðir við ráðu-
neyti um fjármögnun
RÍKISSTJÓRNIN klofnaði í af-
stöðu sinni þegar Alþingi samþykkti
í gærkvöldi lög sem veita iðnaðar-
ráðherra heimild til að gera fjárfest-
ingarsamning fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar við Century Aluminum og
Norðurál Helguvík ehf., sem mun
reisa og reka álver í Helguvík.
Miklar deilur urðu við meðferð
málsins á þinginu. Þingmenn Vinstri
grænna lýstu sig andvíga frumvarp-
inu en sjálfstæðismenn sögðust
styðja það heilshugar.
Frumvarpið var samþykkt sem
lög með 38 atkvæðum gegn níu. Allir
þingmenn VG greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu og það gerði líka Mörð-
ur Árnason, Samfylkingu. Þórunn
Sveinbjarnardóttir, flokkssystir
Marðar, sat hjá en aðrir viðstaddir
þingmenn Samfylkingarinnar auk
þingmanna Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og Frjálslynda flokks-
ins, studdu frumvarpið. omfr@mbl.is
Álversmálið
samþykkt
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
MP BANKI hefur hætt við að
kaupa hluta af útibúum SPRON og
Netbankann nb.is á 800 milljónír
króna. Margeir Pétursson, stjórn-
arformaður MP banka, segir að
Nýja Kaupþingi hafi tekist að
hindra kaupin með samkeppnis-
hindrandi aðgerðum. Fjármálaeft-
irlitið (FME) birti síðdegis í gær
ákvörðun þess efnis að skilanefnd
SPRON, sem hafði selt útibúin og
nb.is, væri óheimilt að ráðstafa
eignum SPRON nema með sam-
þykki FME. Margeir segir að sú
ákvörðun hafi gert útslagið. „Eftir
að hún var tekin þá var ljóst að
þetta mál verður tafið von úr viti
og þá í sjálfu sér er vörumerkið
ónýtt. Úr því sem komið er verður
betra að hefja viðskiptabankaþjón-
ustu undir eigin formerkjum.“
MP banki ætlaði að ráða 45 fyrr-
um starfsmenn SPRON til starfa í
útibúunum ef af kaupunum yrði.
Margeir segir að af því verði ekki.
„Við munum standa við samninga
við þá starfsmenn sem þegar voru
komnir til okkar. Það eru sex
starfsmenn og mjög gott að fá þá.
En það er sorglegt að hafa haldið
40 manns til viðbótar í óvissu. Það
er hins vegar ekki við okkur að
sakast í því máli. Þetta mál tefur
okkar áform um einn til tvo mán-
uði. Við spörum okkur auðvitað
heilmikla peninga á þessu, en hefð-
um fengið mikið í staðinn fyrir þá.
Við hefðum fengið mjög þjálfað
starfsfólk og staðsetningar sem
viðskiptavinirnir þekkja. Þarna
stendur líka búnaður fyrir millj-
ónatugi ónotaður. Við vildum
kaupa hann en fáum það ekki
vegna samkeppnishindrandi að-
gerða Nýja Kaupþings. Ætli við
þurfum ekki að kaupa nýjan búnað
til landsins frá grunni. Búnaðurinn
í þessum útibúum SPRON mun þá
rykfalla þar.“
Slæm tíðindi fyrir starfsmenn
Ólafur Már Svavarsson, formað-
ur Starfsmannafélags SPRON,
segir þetta slæm tíðindi. „Þetta
hefur auðvitað gríðarleg áhrif.
Reyndar fengu 60 starfsmenn
SPRON frestun á uppsögn sinni
þar sem ýmis störf fyrir skila-
nefndina eru í gangi. Svo er spurn-
ing hvort það muni ekki verða
meira þegar þessi kaup eru dottin
upp fyrir. En þetta setur allt í upp-
nám. Ég veit að margir af fyrrum
starfsmönnum SPRON frestuðu
því að ráða sig til annarra spari-
sjóða, til dæmis BYR, af því að
þeir vildu halda áfram í SPRON.“
Kaup MP banka á eignum
SPRON voru háð samþykki FME.
Það samþykki hafði dregist í
marga daga vegna þess að Seðla-
bankinn skilaði ekki inn umsögn
sinni um málið. Bankinn óttaðist að
Kaupþing gæti ekki staðið af sér
flótta fyrrum viðskiptavina
SPRON yfir í sín gömlu útibú.
MP banki hættir við að
kaupa útibú SPRON
Allt að 40 fyrrum starfsmenn SPRON fá því ekki vinnu á ný í útibúum sjóðsins
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
tilboðsvika
mikið úrval
af sófum og
sófasettum
10-50%
afsláttur
af völdum vörum
VEL logaði í fúnum spýtum Sunnubragga í
Siglufirði í gær þegar honum var fargað undir
eftirliti slökkviliðs. Áður hýsti hann sjómenn og
beitingaraðstöðu en þar sem hann var að hruni
kominn var ákveðið að farga honum með því að
bera að honum eld og var Sunnubraggi horfinn á
innan við tveimur klukkustundum. Áform eru
um að byggja hann upp í sömu mynd á ný og
reka þar hótel þegar fram líða stundir.
Ljósmynd/Gunnar Freyr
Sunnubraggi í Siglufirði heyrir sögunni til