Morgunblaðið - 18.04.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
TANNLÆKNAFÉLAG Íslands og
Tannlæknadeild Háskóla Íslands
munu bjóða barnafjölskyldum upp
á ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir
börn yngri en 18 ára. Þjónustan
verður veitt í dag, laugardag, kl.
10-13 í húsnæði Tannlæknadeildar
Háskóla Íslands að Vatnsmýravegi
16.
Fyrst var boðið upp á þessa þjón-
ustu þann 4. apríl sl., en þá komu
yfir 30 börn og unglingar í skoðun.
Ekki verður tekið við tímapönt-
unum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ókeypis tannskoðun
STOFNAÐ hefur verið nýtt ung-
mennafélag ABC barnahjálpar fyr-
ir ungt fólk sem vill láta gott af sér
leiða með því að styðja við starf
ABC barnahjálpar. Félagið er
skráð á Facebook undir Ung-
mennafélag ABC og er hægt að
gerast meðlimur þar. Einnig er
hægt að skrá sig með því að hringja
á skrifstofu ABC barnahjálpar eða
skrá sig á heimasíðu ABC,
www.abc.is.
Opinn kynningarfundur verður
haldinn á þriðjudag nk. kl. 20 á
skrifstofu ABC barnahjálpar að
Síðumúla 29, 2. hæð. Léttar veit-
ingar verða í boði.
Ungmennafélag
ABC barnahjálpar
STARFSFÓLK stjórnstöðvar Ice-
landair á Keflavíkurflugvelli hlaut í
fyrradag viðurkenningu fyrir nýtt
met í stundvísi félagsins. Á fyrstu
þrem mánuðum ársins komu og
fóru farþegaþotur Icelandair á
réttum tíma í 92,6% tilvika. Fyrra
metið var sett árið 2003, en þá var
84,7% stundvísi. Stundvísi flug-
félaga innan Samtaka evrópska
flugfélaga var að meðaltali 68,3-
80,4% á sama tíma í fyrra.
Met í stundvísi
Á MORGUN sunnudag, rennur út
frestur til að leggja inn umsókn um
sumarstörf hjá Reykjavíkurborg.
Þeir sem fæddir eru árið 1992 eða
fyrr geta sótt um. Hægt er að sækja
um á vef Reykjavíkurborgar eða í
Hinu húsinu.
Vinnuskóli Reykjavíkur, sem sér
um sumarstörf fyrir unglinga 13-16
ára, er enn að taka við umsóknum
og er frestur til 24. maí.
Sumarstörf
KOLBRÚN Halldórsdóttir um-
hverfisráðherra tók í fyrradag
fyrstu skóflustunguna að gesta-
stofu Vatnajökulsþjóðgarðs á
Skriðuklaustri og undirritaði við
það tækifæri reglugerð um stækk-
un þjóðgarðsins til norðurs. Verður
þá Trölladyngja í heild, Askja og
stór hluti Ódáðahrauns hluti af
þjóðgarðinum. Stækkunin nemur
1.900 ferkílómetrum og verður
þjóðgarðurinn þá alls orðinn 13.610
ferkílómetrar að stærð.
Ný gestastofa
STUTT
Morgunblaðið/Kristinn
Nám Korpuskóli myndi senda
nemendur í safnskólann.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
STARFSHÓPUR á vegum mennta-
sviðs Reykjavíkurborgar skoðar nú
kosti þess að setja á laggirnar safn-
skóla í norðurhluta Grafarvogs.
Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri
Reykjavíkur, segir að ástæðan sé
tvíþætt; annars vegar hafi börnum
fækkað í hverfinu en hins vegar séu
nú í grunnskólalögum gerðar auknar
kröfur um val í efri bekkjum grunn-
skóla sem auðveldara sé að uppfylla í
stærri skólum.
„Þegar um er að ræða skóla þar
sem um 30 eru í árgangi þá eru minni
möguleikar á skemmtilegu vali fyrir
krakkana, en það er mjög mikilvægt
fyrir þá að fá gott val. Það eykur
bæði áhuga þeirra og árangur,“
sagði Ragnar. Helst þurfi um 100 að
vera í árgangi til að hægt sé að bjóða
upp á fjölbreyttar valgreinar.
Ef af stofnun safnskóla verður
yrði unglingum úr fjórum skólum;
Korpuskóla, Engjaskóla,Víkurskóla
og Borgarskóla, „safnað“ saman í
einn skóla, líkt og m.a. er gert í
Hagaskóla í Vesturbæ Reykjavíkur.
Ragnar sagði að málið væri flókið
af ýmsum ástæðum, m.a. vegna sam-
gangna, húsnæðis, starfsfólks og
nemenda. Líklega myndi starfshóp-
urinn benda á nokkra valkosti sem
stjórnmálamenn myndu síðan taka
tillit til.
Skemmtilegra í safnskólum
Ragnar tók fram að rannsóknir
hefðu ekki sýnt neinn mun á því
hvernig nemendur úr safnskólum og
heildstæðum skólum (1.-10. bekkur)
stæðu sig í framhaldsskólum. „Að-
eins eru þó líkur á því að börnunum
þyki safnskólinn skemmtilegri,“
sagði Ragnar.
Í suðurhluta Grafarvogs eru þrír
fremur litlir grunnskólar. Ragnar
sagði að ekki væri verið að skoða
breytingar á þeim skólum.
Kanna kosti safnskóla fyrir ung-
linga í norðurhluta Grafarvogs
Minni möguleikar á valgreinum í efri bekkjum ef skólarnir eru fámennir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kosið Landsmenn ganga til kosninga eftir viku. Aldrei fyrr hefur kosningabarátta flokkanna verið jafnstutt á veg komin svo skömmu fyrir kosningar.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„MÉR finnst ólíklegt að miklar
breytingar verði á fylginu í kosning-
unum miðað við hvernig það er að
mælast núna,“ segir Einar Mar
Þórðarson, stjórnmálafræðingur hjá
félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Vika er nú þangað til kosið verður
til alþingis. Samkvæmt könnunum
Capacent fyrir Morgunblaðið og
Ríkisútvarpið hafa Vinstri græn og
Samfylkingin öruggan meirihluta,
eða samanlagt 58,9 prósent. Sam-
fylkingin mældist með 30,7 prósent
fylgi og Vinstri græn með 28,2 pró-
sent, samkvæmt könnun sem gerð
var dagana 8. til 14. febrúar.
Einar segir landslag í íslenskum
stjórnmálum að mörgu leyti einstakt
um þessar mundir. Aldrei fyrr hafi
kosningabarátta flokkanna verið
jafn stutt á veg komin svo skömmu
fyrir kosningar. „Þessi staða skýrist
auðvitað öðru fremur af því að þingið
hefur verið óvenju lengi starfandi,
vegna aðstæðna sem rekja má til
hruns bankakerfisins. Það er ekki
hægt að útiloka að fylgi flokkanna
muni taka einhverjum breytingum í
síðustu vikunni fram að kosningum.
Það hefur verið sérstaklega áber-
andi hversu mikið fylgi Vinstri græn
hafa verið með hjá fólki 30 ára og
yngri. Það hefur ekkert minnkað
eftir því sem nær hefur dregið kosn-
ingum,“ segir Einar.
Vinstri græn hafa á undanförnum
vikum verið að mælast með á bilinu
35 til 40 prósent hjá þeim hópi, og
halda þeirri stöðu í nýjustu könnun
Capacent. Með rúmlega 35 prósent
fylgi.
Lítið breyst síðustu vikuna
Þegar horft er til síðustu alþing-
iskosninga, árið 2007, þá segir Einar
að litlar breytingar hafi orðið á
fylginu miðað við kannanir í síðustu
vikunni fyrir kosningar. Svipað hafi
verið upp á teningnum fyrir kosn-
ingarnar 2003 og einnig í kosning-
unum þar á undan.
Þrátt fyrir þá staðreynd segir
Einar að ekki sé hægt að útiloka
breytingar. „Þó þróunin hafi verið
með einhverjum ákveðnum hætti
fyrir fyrri kosningar þá er ekki víst
að það sama verði upp á teningnum
nú. Aðstæðurnar eru þannig. Innra
starf flokkanna fyrir kosningar, þar
sem flokksmenn eru virkjaðir í að-
draganda kosninga, getur skipt
miklu máli. Flokkar geta náð vopn-
um sínum með öflugu flokksstarfi á
síðustu metrunum þó vitaskuld séu
takmörk fyrir því hversu mikið
flokkarnir geta bætt við sig, eða
misst fylgi, miðað við kannanir,“
segir Einar.
Sjálfstæðisflokkurinn mældist
með 23,3 prósenta fylgi í síðustu
könnun og má ljóst vera að umræða
um styrki frá FL Group og Lands-
bankanum til flokksins árið 2006,
upp á samtals 60 milljónir króna,
hefur áhrif á niðurstöður könnunar-
innar þar sem umræða um þá stóð
sem hæst þegar könnunin var gerð.
35% yngra fólks kýs VG
Ólíklegt að fylgi breytist mikið fram að
kosningum, segir Einar Mar Þórðarson
! !
"#
$ $%#
%#
%#
&
#
$
!
! %
#'()
)*
+
''()
)*
'()
)*
! %
$
!
!"
#
,
+-
$$ ./%%
.$ %
$ .%%
-
$
!
! $
/
,
"# #
0
1
2
3
!
! $
/
,
Í Grafarvogi eru átta grunn-
skólar en enginn þeirra er safn-
skóli. Rimaskóli er stærstur
með um 700 nemendur.
Aðspurður hvers vegna ekki
var stofnaður safnskóli þegar
hverfið byggðist, sagði Ragnar
Þorsteinsson að á þessum ár-
um, 1975-1980, hafi spár um
íbúaþróun ekki gert ráð fyrir að
þörf væri á slíku.
Þegar skólahald var skipu-
lagt í Úlfarsárdal, fyrir kreppu,
hefði verið samþykkt að stofna
þrjá skóla fyrir 1.-7. bekk og
einn safnskóla fyrir 8.-10.
bekk.
Átta grunnskólar