Morgunblaðið - 18.04.2009, Side 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
STEFÁN Ásmundsson hefur fengið leyfi frá
störfum í sjávarútvegsráðuneytinu og hefur
byrjað störf sem sérfræðingur hjá Evrópu-
sambandinu í Brussel. Hann hefur um árabil
verið fulltrúi Íslands gagnvart Alþjóðahval-
veiðiráðinu og farið fyrir
sendinefnd Íslands í
Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndinni
(NEAFC) svo dæmi séu
tekin. Oft hefur hann
verið formaður samn-
inganefnda á vegum ís-
lenskra stjórnvalda í við-
ræðum við ESB, en nú
sest þjóðréttarfræðing-
urinn niður hinum megin
við borðið og miðlar af
reynslu sinni og þekk-
ingu við endurskoðun á fiskveiðistefnu Evr-
ópusambandsins.
„Það er stór hópur sem kemur að þessari
endurskoðun með beinum eða óbeinum
hætti,“ segir Stefán í samtali við Morgun-
blaðið. „Þegar rætt er um endurskoðun á
sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusam-
bandsins erum við að tala um flókið ferli.
Margir þættir koma þar við sögu og eðlilega
þarf fólk með sérfræðiþekkingu á mörgum
ólíkum sviðum að koma að þeirri vinnu.
Í mínu tilviki reikna ég með að Evrópu-
sambandið vilji fá einhvern til þessara starfa
sem hefur aðra nálgun en innanbúðarmenn
hjá sambandinu. Ég geri líka ráð fyrir að
þeir hafi viljað fá einhvern til starfa sem hef-
ur íslenskt sjónarhorn; einhvern utanaðkom-
andi en samt með þekkingu á stjórnun fisk-
veiða í Norður-Atlantshafinu,“ segir Stefán.
Hann hefur haft í nógu að snúast síðustu
daga og hefur ásamt Margréti Stefánsdóttur,
sambýliskonu sinni, verið að koma sér fyrir í
Brussel. Með þeim í för er dóttirin Guðrún
Sif, sem er fjögurra mánaða gömul. Sonur
Margrétar, Natan Freyr Guðmundsson,
nítján ára kvennaskólanemi, varð hins vegar
eftir heima á Íslandi.
Endurskoðun ljúki árið 2012
Stefán segir að árið 2002 hafi verið ákveðið
að ljúka endurskoðun á fiskveiðistefnu ESB
eigi síðar en árið 2012 og verið sé að setja
fullan kraft í þá vinnu. Ljóst sé að breyt-
ingar verði skoðaðar á ýmsum þáttum stefn-
unnar, nákvæmlega hverju verði breytt liggi
ekki fyrir. Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins dragi vagninn en aðildarríkin ráði á
endanum niðurstöðum.
Það er ekki nýtt fyrir Stefán að velta fyrir
sér framþróun Evrópusambandsins, því hann
var meðal fulltrúa í starfshópi á vegum ís-
lenskra stjórnvalda, sem hafði það á sinni
könnu að fylgjast með þróun sjávarútvegs-
stefnu ESB og endurskoðun hennar fyrir ár-
ið 2012.
Stefán reiknar með að vinnan við endur-
skoðunina geti tekið tvö ár, en hann hefur
titilinn „Seconded National Expert“. Hlut-
verk „SNE“ er tvíþætt: Annars vegar eru
þeir framkvæmdastjórninni til ráðgjafar og
miðla henni af reynslu sinni og hins vegar
upplýsa þeir eigin stjórnvöld um þá þekk-
ingu, sem þeir hafa öðlast vegna þessa
starfs, á viðkomandi málaflokkum innan
ESB.
Ekki samningamaður
„Ég er alls ekki að gerast samningamaður
fyrir ESB gagnvart öðrum ríkjum,“ segir
Stefán. „Ég kem eingöngu að störfum sem
snerta innri málefni Evrópusambandsins. Ég
sest ekki við samningaborð gagnvart Íslandi
eða neinu öðru ríki. Hins vegar gætu störf
mín nýst íslenskum stjórnvöldum samkvæmt
því sem felst í starfslýsingu minni sem „Se-
conded National Expert“,“ segir Stefán.
Úr ráðuneyti til ráðgjafar í Brussel
Stefán Ásmundsson miðlar af reynslu sinni við endurskoðun á fiskveiðistefnu Evrópusambandsins
„Ég geri líka ráð fyrir að þeir hafi viljað fá einhvern til starfa sem hefur íslenskt sjónarhorn“
Í HNOTSKURN
»Stefán Ásmundsson er þjóðréttar-fræðingur að mennt og hefur verið
skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu
sjávarútvegsráðuneytisins.
» Í sjávarútvegsráðuneytinu hefurHrefna Karlsdóttir verið sett til
tveggja ára í stöðu skrifstofustjóra
alþjóðaskrifstofu.
»Tómas Heiðar hefur verið skipaðuraðalfulltrúi Íslands gagnvart
Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Stefán
Ásmundsson.
EC/Georges Boulougouris
Vinna Stór hópur kemur að endurskoðun á fiskveiðistefnu ESB, sem ráðgert er að ljúki 2012.
Við vinnum með þér
að lausnum fyrir heimilið
L A U S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð