Morgunblaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Hinn gamli
hafnaboltavöllur hermannanna á
Keflavíkurflugvelli, nú Ásbrú,
hefur fengið nýtt hlutverk. Völl-
urinn þykir ákjósanlegur staður
til þess að viðra hundana sína á
öruggu svæði. Þó eiga þeir smá-
vöxnu til að smjúga undir girð-
inguna eins og Herkúles, ef
marka mátti hróp eigandans
sem var að viðra hann og tólf
aðra hunda sína á svæðinu ný-
verið.
Eitthvað virðist þó vanta upp
á að aðrir hundaeigendur
hreinsi upp eftir hunda sína.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Girðingin við Völlinn
fær nýtt hlutverk
Hundar og menn við víravirkið
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„Í MAÍ ætlum við að setja af stað
nýtt úrræði sem verður á lágu verði
svo foreldrar geti leitað beint hingað
með börn sín. Þar
verður boðið upp
á einkaviðtöl, fjöl-
skyldumeðferð,
listmeðferð og
tónlist svo þetta
verður mjög
skemmtilegt,“
segir Hrafndís
Tekla Pétursdótt-
ir, sálfræðingur
hjá Vímulausri
æsku og Foreldrahúsi, um ný nám-
skeið fyrir börn og unglinga með
áhættuhegðun og fjölskyldur þeirra.
Úrræðið nefnist V.E.R.A. eða
Virðing, Efling, Reynsla, Auður og
er markhópurinn börn á aldrinum 6-
18 ára. Hrafndís segir að námskeiðin
verði í boði í allt sumar og fram til
áramóta. „Dagskráin verður einstak-
lingsmiðuð þar sem ungmennin hafa
mismunandi þarfir,“ segir Hrafndís.
„Það er mikil þörf fyrir aðstoð því
ástandið hefur valdið miklu álagi og
streitu hjá fjölskyldum,“ segir
Hrafndís. Hún segir ástandið í sam-
félaginu sérstaklega snerta börn og
unglinga með áhættuhegðun sem
þurfi mikið aðhald og öryggi.
„Þegar los kemur á rútínuna og
streita er í umhverfinu veldur það
enn meiri vanlíðan hjá þessum börn-
um,“ segir Hrafndís. Aukið atvinnu-
leysi foreldra og umræða um gjald-
þrot sem og aðrar afleiðingar
kreppunnar hafi áhrif um allt sam-
félagið.
Eiga von á holskeflu
Hrafndís segir eftirspurnina eftir
aðstoð vera mismunandi. „Þetta
kemur í sveiflum. Nú eru margir í
mikilli óvissu og eru bara að reyna að
ná endum saman til komast í gegn-
um hver mánaðamót. Í það fer mikil
orka og því eru vandamálin oft sett
til hliðar,“ segir Hrafndís. Fólk sé
því síður að leita hjálpar eins og stað-
an er nú. „En við eigum von á hol-
skeflu eftir u.þ.b. hálft ár,“ segir
Hrafndís. Hún segir það vissulega
líka spila inn í að foreldrar þurfi að
borga fyrir sálfræðiþjónustu, það sé
því lúxus að leita sér aðstoðar. „En
þannig á það ekki að vera,“ segir
Hrafndís.
Foreldrahús var stofnað af Vímu-
lausri æsku fyrir tíu árum síðan og
er það ætlað til að koma til móts við
foreldra sem leita sér aðstoðar hjá
Vímulausri æsku. Foreldrahús hefur
greitt niður viðtöl við sálfræðinga og
vímuefnaráðgjafa og reynt þannig að
koma til móts við foreldra. Ýmis
námskeið eru í boði eins og sjálfs-
styrkingarnámskeið fyrir börn og
unglinga en auk þess er foreldrasími
Foreldrahúss opinn allan sólarhring-
inn fólki að kostnaðarlausu.
Fjölskyldur und-
ir miklu álagi
Foreldrahús á 10 ára afmæli en starf-
semin hefur sjaldan verið mikilvægari
Hrafndís Tekla
Pétursdóttir
HÆRRA verð hefur fengist fyrir
slægðan þorsk og ýsu á uppboðum
fiskmarkaða í vikunni heldur en áð-
ur á þessu ári. Það skýrist fyrst og
fremst af litlu framboði en bátarnir
hafa þurft að sækja dýpra und-
anfarið vegna hrygingarstopps.
Sem dæmi um ýsuna þá fengust um
400 krónur fyrir kíló af ýsu á
fimmtudag og þorskkílóið fór á hátt
í 300 krónur.
Páll Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðs Íslands, segir
að vegna lítils framboðs hafi útflytj-
endur boðið grimmt til að geta
staðið við samninga. Í aflahrotunni í
byrjun mánaðarins fór verðið niður
í um 150 krónur fyrir þorskinn.
Páll á von á að um miðja næstu
viku lækki verð þegar kraftur verð-
ur kominn í veiðar að loknu „fæð-
ingarorlofi“ þorsksins. Hins vegar
segist hann bjartsýnn á að verðið
hækki að nýju þegar líði á mán-
uðinn, þó svo að ólíklegt sé að það
nái sömu hæðum og í þessari viku.
aij@mbl.is
Hátt verð
fyrir fisk á
mörkuðum
Hátt í 400 krónur fyr-
ir ýsukílóið í vikunni
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
3
4
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.